Fréttablaðið - 12.01.2023, Síða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Sólveig Anna segir að jakkarnir henti loftslaginu á Íslandi betur en stuttermabolir, enda kalt í veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sólveig Anna Jónsdóttir,
formaður Eflingar, segir
hugmyndina að jökkum
samninganefndar Eflingar
hafa kviknað á fyrirlestri hjá
bandarískum verkalýðsfor-
kólfi. Félagið fái fyrirspurnir
frá fólki sem vilji kaupa jakka.
odduraevar@frettabladid.is
„Við höfum mikið verið að spá í
baráttu verkafólks, ekki bara hér
á Íslandi heldur líka úti um allan
heim,“ segir Sólveig Anna Jóns-
dóttir, formaður Eflingar, spurð að
því hvaðan hugmyndin að svörtum
bomber-jökkum samninganefndar
Eflingar hafi komið. Nefndin hefur
klæðst jökkunum í Karphúsinu
undanfarnar vikur svo athygli hefur
vakið.
„Við höfum verið að kynna okkur
baráttuna annars staðar og höfum
meðal annars setið námskeið hjá
verkalýðsfrömuði bandarískum
sem heitir Jane McAlevey, sem hefur
leitt mjög mikið af mjög árangurs-
ríkum kjaraviðræðum og kjara-
baráttu þar,“ segir Sólveig.
„Í þessari rannsóknar vinnu
okkar sáum við að það er alþekkt
að fólk sem er í kjarasamningsvið-
ræðum og kjarabaráttu sýni sam-
stöðu hvert með öðru og sýni út í
samfélagið að það tilheyri þá þeim
hóp sem er í þessari kjarabaráttu,
með því að klæðast þá stutterma-
bolum og eða merkja sig með skýr-
um hætti.“
Hún segir hópinn hafa hrifist af
þessu. „Og viljum auðvitað einmitt
geta sýnt að við erum fjölmennur
hópur sem stendur saman. Það er
kannski ekki alveg raunhæft fyrir
fólk á Íslandi um haust og vetur að
fara í stuttermaboli, þannig að við
ákváðum að fá okkur jakka í stað-
inn. Sem er þá það sem við gerðum.“
Tók langan tíma að velja jakkann?
„Nei, það tók nú bara ekkert lang-
an tíma. Þetta þurfa náttúrulega að
vera jakkar sem eru smart og fara
öllum og fólk vill fara í. Þannig að
svartur, einfaldur jakki með merki
uppfyllir þau skilyrði.“
Margir hafa líkt samninganefnd
Eflingar við mótorhjólaklíku. „Já,
ókei,“ segir Sólveig Anna hlæjandi
þegar það er borið undir hana.
„Við vorum samt ekkert að pæla í
því sko. En þú veist, það getur alveg
verið töff að vera í mótorhjólaklíku.
Það er svona almennt í það minnsta
álitið frekar kúl. En það var samt
ekki það sem við vorum að spá,
við vorum að horfa á þetta eins og
ég segi, baráttu verkafólks í öðrum
löndum og svo sökum almenns
hitastigs hér þá fannst okkur stutt-
ermabolir ekki alveg vera málið
fyrir okkur, ekki það að það er auð-
vitað líka alveg fínt að eiga stutt-
ermaboli og kannski bara bætum
við því við. En jakkarnir, þeir voru
niðurstaðan.“
Hafið þið upplifað valdef lingu í
jökkunum á fundunum?
„Bara algjörlega. Ég meina, það er
bara þannig að það er auðvitað mjög
valdef landi fyrir okkur að koma
saman í stóru samninganefnd-
inni. Og öll barátta Eflingar síðustu
ár hefur náttúrulega verið vald-
eflandi fyrir okkur í félaginu. Við
tókum þetta félag og breyttum því
úr sofandi risa í öflugasta baráttu-
félag verka- og láglaunafólks á þessu
landi. Þannig að já, ég myndi segja
að það að mæta saman í jökkunum
sé að sjálfsögðu valdeflandi.“
Sólveig Anna bætir því við að
mikill áhugi sé á jökkunum. „Við
höfum fengið fyrirspurnir um það
hvort það sé hægt að kaupa svona
jakka, af því að fólki finnst þeir
vera töff sko. Við erum ekki ennþá
komin á þann stað en hver veit hvað
verður.“ n
Upplifa valdeflingu í bomber
Það er ekki hægt að neita því að Eflingarfólk er nokkuð vígalegt í jökkunum.
Þetta þurfa náttúrulega
að vera jakkar sem eru
smart og fara öllum og
fólk vill fara í.
22 Lífið 12. janúar 2023 FIMMTUDAGURFréttablaðið
Má bjóða
þér blað
dagsins?
Stafrænar útgáfur
Dreifikerfi
Opnaðu myndavélina
í snjalltækinu þínu og
skannaðu QR kóðana