Rökkur - 01.12.1949, Side 25
RÖKKUR
137
eða persónuleg viðfangsefni
vor geta leitt af sér maga-
veilu, hár blóðþrýstingur
hjartaveilu eða höfuðverk.
Fyrir nokkurum árum var
sett á stofn höfuðverkjar
lækningastofnun við Monte-
fiore spítalann í New York
— ein fyrsta sinnar tegund-
ar. — Nú eroi nokkurar slík-
ar starfandi hingað og þang-
að í landinu. Meðferðin á
Montefiore er bæði lyflæknis-
meðferð og sálræn. Góður ár-
angur^ lækning eða nokkur
bati er árangurinn hvað
snertir háan hundraðshluta
af þeim tilfellum, sem hafa
fengið meðferð þar.
Dr. Friedman, yfirlæknir
deildarinnar^ og samstarfs-
menn hans fengu sérstakan
áhuga fyrir höfuðverk, sem
afleiðingu höfuðmeiðsla og
komust meðal annars að
þeirri niðurstöðu, að þess-
konar höfuðverkur stæði oft
lengi eftir ag meiðlin væru
gróin og virtust venjulega
vera í sambandi við kviðatil-
finningu sjúklingsins.
Dr. Friedman álítur að hin
leyndardómsfulla migræna
sé af psychosomatiskum
uppruna. 1 samræmi við þetta
er sú skoðun margra sérfræð-
inga, að verkjarköstunum
bæði fækki og verði ekki eins
svæsin þegar sjúkl. eldist, þ.
e. a. s. þegar hann verður
ráðsettari og lagar sig betur
eftir kringumstæðunum.
Jafnvel höfuðverkur, sem
stafar af einhverjum organ-
iskum sjúkdómum, verður
fyrir áhrifum af truflunum
á geðhrifum. Sjúkdómurinn
sjálfur getur orðig fyrir
áhrifum, ef orsök hans er
ekki áhyggjur og kvíði.
Loks er allstór hundraðs-
hluti þeirra tilfella, sem
koma á deildina, sálræns
eðlis.
Konan virðist
stálhraust.
Gott dæmi frá Montefiero
var aðlaðandi kona 35 ára,
sem virtist stálhraust að
öðru leyti. Hjarta, augu, enn-
is- og kjálkaholur, magi og
lifur, allt var í bezta ásig-
komulagi. En hún þjáðist af
stöðugum kveljandi höfuð-
verk. Athugun á fjölskyldu-
ástæðum hennar leiddi í ljus,
að hún var haldin hugarangri
yfir dauða móður sinnar,
sem hafði dáið af heilaæxli.
Stuttu eftir fór hún sjálf að
fá höfuðverki, nákvæmlega
eins og móðir hennar hafði
haft. Spítalalæknunum tókst
að sannfæra hana um, að hún
hefði ekki heilaæxli. Og ár-