Rökkur - 01.12.1949, Síða 68
180
R O K K U R
misseri að læra rússnesku, en
þrjú ár að læra tyrknesku.
Miinchen-sáttmálinn
var vonbrigði.
Fullnumi i málinu gerðist
hann fyrirlesari i skóla fyrir
verðandi tyrkneska embætt-
ismenn og fjölluðu erindin
um bæjarmálefni. Reuter var
í Tyrklandi tíl ársins 1946.
Þegar Bandarikjamaðurinn
Dwight Griswold fór frá
Berlín til þess að taka að sér
umsjón með hversu varið
væri lánunum til Tyrkja og
Grikkja, leitaði hann ráða
lijá Reuter. — f útlegðinni
þjáðist Reuter af heimþrá. I
september 1938 þóttí honum
svo horfa, sem hinn mikli
dagur væri að nálgast. Hann
sat í gistihúsi i Ankara og
hlustaði á fregnir brezka
útvarpsins um Múnchen-
viðræðurnar. Þegar hann
heyrði, að Chamherlain og
Daladier liefðu látið kúgast,
varð hann æfur af reiði. Kona
hans segir, að liann hafi ver-
ið gripinn æði. Hann greip
járnstöng og lét reiði sína
bitna á gluggatjöldunum í
gistihúsherberginu. Fregn-
irnar gerðu hann gramari og
vonsviknari en jafnvel valda-
taka Hitlers.
.... Átta árum síðar, á
aprildegi, í hlýinda- og
molluveðri, var hann stadd-
ur í grennd við Istanbul, og
horfði á orustuskipið Misso-
uri á hægri ferð inn Bospor-
us-sund. Hann ályktaði, að ef
Bandaríkin gætu sent Iierskip
tíl Tyrklands, mundi ekki á
löngu líða, þar til Bandaríkja-
menn greiddu götu þess, að
hann fengi vegabréfsáritun
til heimferðar.
Heim til
Berlínar.
Reuter kom aftur tilBerlín-
ar 1946. Það var orðið aug-
ljóst, að Fjórveldasamvinnan
mundi fara vaxandi. Berlín,
sem Fjórveldin höfðu skipt á
milli sin, var sem ey i „Rauða
hafinu“. Og Berlín var orðin
eins mikilvæg á tímum ósig-
urs sem sigurs. Hinn gamli
flokkur Reuters, Jafnaðar-
mannaflokkurinn, hafði ný-
lega unnið glæsilegan sigur í
fyrstu kosningunum eftír
styrjöldina. Lýðræðisflokk-
arnir þrir höfðu fengið 61 af
liundraði greiddra atkvæða,
en hinn „socialistiski eining-
arflokkur“ sem Rússar
studdu, afganginn. En jafn-
aðarmenn fóru ekki hyggi-
lega að ráði sínu. Þeir gerðu
Ostrowski nokkum að borg-
arstjóra, mann, sem gat ekki