Rökkur - 01.12.1949, Síða 78
190
RÖKKUR
fyrir hverja fjölskyldu var
nokkurir aurar. Rauði kross-
inn léði flöskur og ger-
ilsneyðingaráhöld, Læknun-
um voru greidd lítilsháttar
laun af ríkinu. Mjólk var ó-
keypis úr búi Sylviu.
Skólastjórinn í Monom var
mjög áhugasamur í íþrótta-
málum og vann að þvi að
láta gera nýjan íþróttavöll.
Þar átti að vera pallur fyrir
líkamsæfingar og leikvöllur
fyrir telpur, einnig rólur og
margvísleg tæki fyrir sam-
eiginlega leiki bama.
Kerlaugar voru aðeins í
sjö húsum í Monom. — En
Sylvia kom upp opinberum
fosslaugum í drengjaskóla,
rétt hjá skrifstofu sinni. Geta
nú börnin fengið þar ókeypis
fosslaug á hverjum föstu-
dagsmorgni. Tvisvar í viku
em þessi böð opin öllum og
er því tekið með fögnuði í
Monom.
Bæjarstjórinn og bæjarbú-
ar vinna af alúð að því að
endurbæta bæinn sinn og
gera hann notalegan. Frá
stálgerðunum em flutt heil
bílhlöss af úrgangi til þess
að gera við göturnar, sem
voru sundur tættar. Hús-
bændum er ætlað að sópa
fyrir framan hús sitt tvisvar
í viku og eiga þeir að sópa
út á miðja götu.
Með innanbæjarskatti og
stríðsbótafé frá ríkinu var
keypt stór lokuð bifreið, sem
á að annast sjúkraflutninga,
en einnig vera til taks ef elds-
voða ber að höndum. Sjálf-
boðaliðar sjá um aksturinn
og em alltaf nokkurir menn
til taks ef þörf er á, hvort
sem er að nóttu eða degi.
Mikil flóð urðu þama óvænt
árið 1948 og bjargaði þessi
sveit mörgum mönnum, en
flutti mjólk5 meðöl og aðrar
nauðsynjar til þeirra sem
höfðust við á efri hæðum
heimila sinna.
Sylvia • vinnur kauplaust.
Hún hefir eftirlit með gatna-
viðgerð, holræsum, vatns-
veitu, skólum og eldvamar-
stöðvum, skrásetur fæðingar
og dánardægur, annast borg-
aralegar hjónavígslur og
ráðgast við bæjarstjórnina,
en í henni era 17 menn.
Hún er stöðugt að hugsa
um að bæta hag og heimilis-
líf bæjarbúa og í fyrra setti
hún á stofn húsmæðra-
kennslu, en hún sér nauðsyn
þess að ungar konur kunni að
búa til mat og að heimilin sé
rekin með myndarskap og
verklægni. — I framtíðinni
j