Fréttablaðið - 04.02.2023, Síða 4
Aðeins Allra síðasta
veiðiferðin komst á
topp 10.
Ekkert messufall hjá Controlant
Controlant fékk aðalverðlaun UTmessunnar í Hörpu fyrir vöktunarlausnir sem koma í veg fyrir skemmdir á lyfjum og matvælum í allri virðiskeðjunni. Tryggir
það þar með öryggi sjúklinga, dregur úr sóun og minnkar kolefnisspor. Aðalheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri UTmessunnar, veitir þeim Erlingi
Brynjúlfssyni og Gísla Herjólfssyni verðlaunin í viðurvist Guðna Th. Jóhannessonar, forseta lýðveldisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AÐALFUNDUR
Hollvinasamtaka Reykjalundar verður haldinn í hátíðarsal Reykjalundar
laugardaginn 4. febrúar 2023, kl. 14:00.
DAGSKRÁ
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Stutt fræðsluerindi úr starfsemi Reykjalundar:
Meðhöndlun á langtímaeinkennum Covid, endurhæfing
hjartasjúklinga og fleira.
Á fundinum mun Hollvinir afhenda Reykjalundi hjartarafrit og 6 senda af
fullkomnustu gerð, til að fylgjast með hjartalínuriti einstaklinga í þjálfun
en gjöfin er að verðmæti tæplega 4 miljónir króna.
Hollvinir eru hvattir til að mæta og nýir félagar velkomnir.
Stjórn Hollvinasamtaka Reykjalundar
Kjaragliðnun á milli öryrkja
og lægst launaða fólksins úti
á almennum vinnumarkaði
hefur verið árviss í hálfan
annan áratug, að mati forvígis-
manna helstu samtaka fatlaðs
fólks. Það þurfi launahækk-
anir eins og aðrir landsmenn.
ser@frettabladid.is
KJARAMÁL Forvígismenn helstu
samtaka fatlaðs fólks á Íslandi,
Geðhjálpar, Landssamtakanna
Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasam-
taka segja félagsmenn sína vera að
dragast enn meira aftur úr öðrum
landsmönnum í tekjum.
Bilið á milli örorkulífeyris og
launa á almennum vinnumarkaði sé
að aukast. Kjaragliðnun á milli þess-
ara tveggja hópa hafi verið árviss í
hálfan annan áratug.
Þuríður Harpa Sigurðardóttir,
formaður ÖBÍ réttindasamtaka,
segir þetta vera tusku í andlit þeirra
sem síst skyldi á Íslandi. „Okkar
fólk situr bara á hakanum. Það er
ekki hægt að upplifa það öðruvísi,“
segir hún og kveðst sár og reið fyrir
hönd þessa hóps sem ber minnst úr
býtum í samfélaginu.
„Hér á okkar skrifstofu er stöðugt
símaálag. Fólk er reitt og það kvíðir
næstu dögum,“ lýsir hún og bætir
því við að á sama tíma og kjörin
rýrni í samanburði við aðra hópa
hækki allt; húsleigan, matarkarfan,
lyf og læknisþjónusta.
„Fyrir vikið á þessi hópur enga
möguleika á að borga það verð sem
sett er upp í samfélaginu,“ segir
Þuríður Harpa. „Allt hefur hækkað
umfram þolmörk,“ bætir hún við.
Í ályktun samtakanna segir að í
dag muni 80 til 150 þúsund krón-
um á lægstu óskertu greiðslum
Segja fatlað fólk dragast
meira aftur úr í launum
Tekjubilið á milli öryrkja og lægst launaða fólksins úti á vinnumarkaði er að
aukast að mati helstu samtaka fatlaðs fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Þuríður Harpa
Sigurðardóttir,
formaður ÖBÍ
almannatrygginga og launatöxtum
ef miðað er við launatöflur Starfs-
greinasambandsins (SGS).
Það sé ekki aðeins réttlætismál að
kjör fatlaðs fólks fylgi launaþróun í
landinu, heldur sé það lífsspursmál.
Samtökin skori því á ríkisstjórnina
að leiðrétta lífeyrisgreiðslur og
hækka þær um að minnsta kosti 42
þúsund krónur á mánuði.
„Gleymum því ekki,“ segir Þur-
íður Harpa, „að sjálfur fjármálaráð-
herra hefur lýst því yfir í fjölmiðlum
að vísitölufjölskylda á lágmarks-
launum nái ekki endum saman.
Hvað megum við þá segja um
öryrkja sem eru eftirbátar allra ann-
arra í kjörum?“ spyr Þuríður Harpa
og minnir jafnframt á að kannanir
sýni að 80 prósent fatlaðs fólks sem
þarf að reiða sig á tekjur almanna-
trygginga nái ekki endum saman.
„Samt er bilið að aukast á milli
öryrkja og lægstlaunaða fólksins
úti á vinnumarkaði,“ segir Þuríður
Harpa Sigurðardóttir. n
(Hækkun frá janúar 2022)
Samanburður á launataxta SGS og öryrkja
Öryrkjar – Lægstu óskertar greiðslur 319.666 kr. hækkun: 10,31%
Öryrkjar – Hæstu óskertar greiðslur 427.734 kr. hækkun: 10,31%
SGS – Byrjunarlaun 402.235 kr. hækkun: 12,39%
SGS – Eftir 5 ára starf 472.172 kr. hækkun: 15,17%
kristinnhaukur@frettabladid.is
KVIKMYNDIR Aðeins 10 prósent
kvikmyndahúsagesta völdu að
fara á íslenska bíómynd á síðasta
ári. Þetta er langlægsta hlutfall á
Norðurlöndunum. Danir eru dug-
legastir að sjá eigin kvikmyndir, 30
prósent, og Finnar eru ekki langt á
eftir með 27 prósent. Í Noregi og
Svíþjóð er hlutfallið í kringum 20
prósentin.
Aðeins ein íslensk kvikmynd
komst á lista yfir þær 10 aðsóknar-
mestu, Allra síðasta veiðiferðin.
Teiknimyndin Minions: The Rise
of Gru fékk mesta aðsókn. Þar
á eftir komu Elvis, The Batman,
Avatar: The Way of Water og Thor:
Love and Thunder. Kvikmyndirnar
Abbabbabb, Svar við bréfi Helgu og
Berdreymi komust ekki á topp 10
listann.
Tekjur kvikmyndahúsanna voru
tæpir 1,3 milljarðar króna sem er
aukning um 18 prósent frá árinu
áður. Aðsókn jókst um rúm 10 pró-
sent en er enn þriðjungi minni en
fyrir Covid-19 faraldurinn. n
Velja Hollywood fram yfir íslenskar
jonthor@frettabladid.is
KJARAMÁL Tekist var á í kjaradeilu
Eflingar og SA í tveimur dómstólum
í gær. Annars vegar var það mál Rík-
issáttasemjara gegn Eflingu í hér-
aðsdómi vegna afhendingar félaga-
tals til að kjósa um miðlunartillögu.
Hins vegar mál SA gegn Eflingu í
félagsdómi vegna verkfallsboðunar.
Um hið fyrrnefnda sagði Sólveig
Anna málatilbúnaðinn veikan og
málið hápólitískt. Engum myndi
dirfast að fara fram með þessum
hætti gegn öðru félagi. Málið væri
aðför að lýðræðislega vörðum rétt-
indum samninganefndar Eflingar.
Andri Árnason, lögmaður Ríkis-
sáttasemjara, minntist einnig á lýð-
ræðið í sínum málflutningi í gær.
„Þarna er verið að svipta félagsmenn
kosningarétti sínum. Það er óum-
deilt að það er einsdæmi í kjara-
deilum að synja þeim þátttöku í
atkvæðagreiðslu,“ sagði hann. n
Tekist á um mál
Eflingar í tveimur
réttarsölum í gær
Sólveig Anna með lögmanninum
Flóka Ásgeirssyni.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR