Fréttablaðið - 04.02.2023, Qupperneq 27
hagvangur.is
Störf hjá Skóla- og
velferðarþjónustu
Árnesþings bs.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar nk.
Umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá, prófskírteini og kynningar bréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til starfsins.
Nánari upplýsingar um störfin veita Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is,
og Þórdís Sif Arnardóttir, thordis@hagvangur.is.
Stefna Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. er að þróa faglega og samþætta skóla- og velferðarþjónustu með farsæld barna og
fjölskyldna að leiðarljósi. Starfssvæðið er víðfeðmt og munu stjórn og starfsmenn þróa stafræna þjónustu og lausnir eftir því sem við á.
Starfsmenn geta valið starfsstöð á starfssvæðinu í samræmi við verkefni hverju sinni og fjarvinnustefnu en megin starfsstöð þjónustunnar er
í Laugarási. Sveitarfélögin sem standa að Skóla- og velferðarþjónustunni eru Bláskógabyggð, Flóahreppur, Grímsnes- og Grafningshreppur,
Hrunamannahreppur og Skeiða- og Gnúpverjahreppur og hafa þau flest hlotið viðurkenningu BSRB sem framúrskarandi vinnustaðir.
Á starfssvæðinu eru um 650 börn á leik- og grunnskólaaldri sem sækja nám í 10 leik- og grunnskólum og eru tveir þeirra samreknir.
Sótt er um störfin
á hagvangur.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Leiða skólaþjónustu og vinna að innleiðingu
farsældarþjónustu
• Móta samþætta stefnu í þjónustu við skóla
og fjölskyldur
• Efla skólana sem faglegar stofnanir
• Tryggja nýtingu kennslufræði- sálfræði-
og þroskafræðilegrar þekkingar
• Veita stuðning við þróun, umbætur og nýbreytni
og efla samstarf og samvinnu á milli skólastiga
• Samskipti við aðrar greiningastofnanir og samræming
þjónustu við nemendur með sérþarfir
• Umsjón með frágangi ýmissa stjórnsýsluerinda
• Veita ráðgjöf til leik- og grunnskóla
Deildarstjóri skólaþjónustu
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu og reynslu af skólamálum og stjórnsýslu og hefur hæfni
til að móta starfsemina og leiða öflugan hóp starfsmanna í góðu samstarfi við leik- og grunnskóla á svæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem innan
kennslu, náms- og starfsráðgjafar eða sálfræði
• Framhaldsmenntun er æskileg
• Þekking og reynsla af leik- og grunnskólastarfi
• Reynsla af stjórnunarstörfum og góð þekking
á stjórnsýslu sveitarfélaga
• Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
• Lipurð í samstarfi og góð hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góð almenn tæknikunnátta er nauðsynleg
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig
í ræðu og riti
Talmeinafræðingur
Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum einstaklingi í
60% starfshlutfall. Starfið er tímabundið vegna fæðingarorlofs.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skima fyrir og greina málþroskavanda barna
með áherslu á áætlanagerð og eftirfylgd
• Veita íhlutun með áherslu á snemmtæka íhlutun
• Teymisvinna með starfsfólki leik- og grunnskóla
• Þátttaka í fræðslu um málþroska, málþroskaröskun
og áhrif hennar á möguleika til menntunar
• Leiðbeina og fræða foreldra um málþroska
og leiðir til að efla hann
• Stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum varðandi
málþroska og læsi barna
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf í talmeinafræði og leyfi til að starfa
sem talmeinafræðingur
• Þekking og reynsla af skólastarfi er æskileg
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Hæfni til að sinna fræðslu og ráðgjöf til nemenda,
starfsmanna og foreldra
• Faglegur metnaður
• Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig
í ræðu og riti
Sálfræðingur
Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum
einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á skóla- og/eða
velferðarþjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Mat á þroska, hegðun og líðan nemenda
• Sálfræðilegar athuganir og greiningar á börnum og
unglingum, ráðgjöf og eftirfylgni mála
• Ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla
• Ráðgjöf og stuðningur við barnaverndarþjónustu
• Samskipti við aðrar stofnanir sem sinna börnum
og fjölskyldum og samræma þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
• Sálfræðimenntun og réttindi til að starfa
sem sálfræðingur
• Þekking og reynsla af sálfræðilegum greiningum
á börnum
• Þekking og reynsla af leik- og grunnskólastarfi,
þekking af velferðarþjónustu og barnavernd er kostur
• Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni
• Lipurð í samstarfi og góð hæfni í mannlegum
samskiptum
• Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig
í ræðu og riti