Fréttablaðið - 04.02.2023, Page 30
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga leitar að öflugum og framsýnum hjúkrunarfræðingi sem brennur fyrir málefnum hjúkrunar, til að leiða starf fagsviðs
félagsins. Tilgangur fagsviðs er að efla fagmennsku og styðja við þekkingarþróun í hjúkrun, með fræðslu og símenntun, ráðstefnuhaldi, erlendu samstarfi,
ráðgjöf og rannsóknum á sviði hjúkrunar- og heilbrigðismála. Sviðsstjóri fagsviðs vinnur í nánu samstarfi við formann og annað starfsfólk.
Félagið er fag- og stéttarfélag stærstu heilbrigðisstéttar á Íslandi með um 5.000 félagsmenn. Á skrifstofu félagsins starfa 10 manns á fagsviði, kjara- og
réttindasviði og við aðra þjónustu við félagsmenn. Við bjóðum upp á fjölbreyttan og líflegan vinnustað í stöðugri framþróun.
Sviðsstjóri fagsviðs
• Þátttaka í stefnumótun félagsins varðandi hjúkrunar- og heilbrigðismál
• Gerð ályktana og umsagna
• Skipulagning faglegra ráðstefna, viðburða og námskeiða
• Vinna að eflingu símenntunar, sérþekkingar og nýsköpunar
• Þátttaka í starfi nefnda á vegum félagsins sem fjalla um fagleg málefni
• Þátttaka í erlendu samstarfi
Helstu verkefni
• Hjúkrunarfræðimenntun áskilin, ásamt meistaraprófi
• Víðtæk reynsla og þekking af málefnum hjúkrunar skilyrði
• Leiðtoga-, samstarfs- og samskiptafærni
• Metnaður, frumkvæði og skipulagshæfni
• Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar
• Reynsla af textaskrifum og miðlun upplýsinga
• Færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
Menntunar- og hæfniskröfur
Umsóknarfrestur er til og með 17. febrúar 2023. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn er skilað með tölvupósti á netfangið umsokn@hjukrun.is
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í síma 540-6400 eða gudbjorg@hjukrun.is
Frekari upplýsingar um starfsemi félagsins má finna á vefnum www.hjukrun.is
Skrifstofustjóri samgangna
í innviðaráðuneytinu
• Háskólagráðu sem nýtist í starfi
• Farsælli stjórnunarreynslu og færni í að skapa
liðsheild á vinnustað
• Frumkvæði, metnaði og jákvæðu og lausnamiðuðu
hugarfari
• Samskiptafærni og færni til að leiða fólk til árangurs.
• Árangursríkri reynslu af stefnumótun og áætlunargerð
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir:
• Þekkingu eða reynslu af málefnasviði skrifstofunnar
• Áhuga á nýsköpun og framþróun
• Góðri færni í íslensku og ensku í ræðu og riti, haldbær
reynsla í Norðurlandamáli er kostur
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Þekking á EES samningnum og framkvæmd hans kostur
Innviðaráðuneytið leitar að öflugum stjórnanda sem hefur brennandi áhuga, þekkingu eða reynslu af samgöngumálum
til að leiða skrifstofu samgangna.
Hlutverk skrifstofunnar er að vinna að stefnumörkun um að tryggja markmið um greiðar, hagkvæmar, öruggar og
umhverfislega sjálfbærar samgöngur á landi, sjó og lofti og að þær stuðli að jákvæðri byggðaþróun. Skrifstofustjóri leiðir
starf skrifstofunnar undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra. Við viljum ráða til starfa einstakling sem hefur áhuga á samfélaginu,
samgöngum og nýsköpun og hefur farsæla reynslu af því að skapa liðsheild og virkja fólk til árangurs.
Innviðaráðuneytið
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingilín Kristmannsdóttir,
skrifstofustjóri ingilin.kristmannsdottir@irn.is eða 545-8200.
Innviðaráðherra skipar í embættið til fimm ára. Hæfnis-
nefnd skipuð af ráðherra metur hæfni umsækjenda
samkvæmt reglum nr. 393/2012. Laun eru samkvæmt
gildandi kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við
Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Umsókn skal skila rafrænt á starfatorg.is eigi síðar en
17. febrúar 2023.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningar-
bréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann
árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist
embættinu. Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.