Fréttablaðið - 04.02.2023, Page 56
Við erum búin að
þræða landið og kynna
boðskapinn.
Besta land í heimi á útsölu
TF-Sif, TF-Gná og TF-Líf fljúga yfir borgina. MYND/AÐSEND
Neyðarlending dómsmála-
ráðherra á Landhelgisgæslu-
vélinni TF-Sif ofan í botnlaust
skuldafen ríkisins er þrungin
merkingu og enn ein stað-
festing þess að þjóðin hefur
ekki efni á því að standa undir
lífseigri ranghugmynd sinni
um að Ísland sé best í heimi.
benediktboas@frettabladid.is
toti@frettabldid.is
Íslendingar hafa löngum byggt
sjálfsmynd sína á óbilandi trú á
að hér sé allt best í heimi. Vatnið,
loftið, lambakjötið og ekki síður
norræna velferðarsamfélagið sem
við byggðum upp af fádæma mann-
gæsku og samkennd. Eða þannig.
Jón Gunnarsson, ráðherra dóms-
mála, og aðstoðarf lugstjóri hans,
Brynjar Níelsson, mátu fjárhags-
stöðuna þannig að f ljúga þyrfti
Gæsluflugvélinni TF-Sif lóðbeint á
íslensku skýjaborgina en komið var
í veg fyrir það í gær.
Gæslan er þó síður en svo eina
fjársvelta opinbera stofnunin.
Þær eru margar eins og allir sjá
sem vilja. Hvert sem litið er vant-
ar krónur og aura nema á RÚV.
Sú stofnun getur leikið sér með
skattfé og sótt auglýsingar ofan í
þá átta milljarða sem stofnunni er
úthlutað úr tómum ríkiskassanum
árlega. n
Leikskólarnir
Hér þarf lítið að segja. Leikskólar
eru sums staðar í fínum málum og
geta hlúð að yngstu borgurunum.
En hjá skóla- og frístundasviði
Reykjavíkur Dags B. Eggertssonar
virðist lítill sem enginn skilningur
á grundvallarlögmálum dagvist-
unar barna. Þar reiknaði fólk sig að
þeirri niðurstöðu að leikskólarnir
væru ofmannaður sem nemur 75
starfsmönnum á meðan leikskóla-
stjórar í borginni sendu frá sér
neyðarkall í fyrra um að 400 millj-
ónir vantaði í reksturinn. Borgin
á víst enga flugvél og spurning
hvort hún eigi yfirleitt eitthvað
eftir sem hægt er að selja?
Grunnskólarnir
Það eru ekki til kennarar til að
kenna krökkum. Þau er flest búin
að segja upp til að gerast flug-
freyjur eða -þjónar. Þá eru myglað-
ir skólar um allt land, og í skýrslu
frá 2019 kom fram að skólastjórn-
endur og skóla- og frístundasvið
liti myglað menntakerfið ekki
sömu augum og greindi á um
hversu mikið fé þyrfti til þess að
halda því gangandi sómasamlega.
Ótrúlegt en satt þá var stofnaður
stýrihópur til að vinna að rétt-
látari dreifingu fjármagnsins sem
er eyrnamerkt málaflokknum.
Háskólarnir
Landssamtök íslenskra stúdenta
lýstu í desember yfir þungum
áhyggjum af langvarandi fjársvelti
á háskólastigi og bentu á að Ísland
væri eftirbátur samanburðarþjóða
sinna þegar kemur að fjárfestingu
í háskólamenntun. Heildartekjur á
ársnema við Háskóla Íslands voru
2,9 milljónir árið 2019. Þetta ár,
voru til samanburðar, meðaltekjur
á ársnema við háskóla í Danmörku
5,5 milljónir og 4,8 milljónir í Nor-
egi. Samt er þó enn talið raunhæft
að koma Háskóla Íslands í fremstu
röð háskóla á heimsvísu. En ekki
hvað?
Íþróttir
Landsliðin í körfubolta fengu
aðeins nokkrar krónur og aura frá
Afrekssjóði ÍSÍ. Framtíð A-lands-
liða Íslands í körfuknattleik gæti
verið í hættu vegna þessa. Andri
Stefánsson, framkvæmdastjóri
ÍSÍ, benti nýlega á þá staðreynd
að iðkendur þyrftu að punga
einhverju út í öllu landsliðastarfi
nema knattspyrnu. Sem þýðir að
ef barn eða unglingur stendur sig
vel og kemst í landslið í annarri
íþrótt en knattspyrnu þá fellur
kostnaðurinn á foreldrana.
Íþróttamannvirki
Hér þarf ekki að hafa mörg orð.
Þjóðarleikvangar landsins eru þeir
elstu í álfunni.
Lögreglan
Fyrir tíu árum kynnti innanríkisráðherra áfanga-
skýrslu á Alþingi þar sem fram kom að staða lög-
gæslu í landinu væri grafalvarleg. Brugðist var við
með auknum fjárframlögum en svo byrjaði ferðafólk
að streyma til landsins í kjölfar makrílsins. Í ársbyrjun
2018 var fjöldi lögreglumanna 1,7 á hverja 1.000 íbúa
en aðeins 0,3 þegar ferðamenn eru taldir með, sam-
kvæmt skýrslu ríkislögreglustjóra.
Hafrannsóknastofnun
Rannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson er ekki nema
53 ára gamalt. Kom hingað nýtt árið 1970. Sama ár
og Apollo 13 var þeytt út í geim í frægri ferð. Nýrra
skipið, Árni Friðriksson, er um 23 ára og væntanlega
tímabært að fara huga að endurnýjun því tækninni
fleygir fram. En kannski telst það kostur að með
úreltar og bilaðar ratsjár sést ekki meira en aðeins
þessir örfáu toppar á ísjökum þrotaðs samfélags.
Heilbrigðiskerfið
Án orða.
Gatnakerfið
Ef það snjóar á landi sem heitir
Ísland fer allt í hnút og ekki tekur
betra við þegar hlánar. Gatnakerfi
landsins er að mestu leyti hand-
ónýtt. Sérstaklega í höfuðborg-
inni með endalausum plástur-
viðgerðum svo lífi og limum er
ógnað með holum og sleipu mal-
biki auk þess sem Teslum stendur
stórkostleg ógn af stöðuvötnum á
götum borgarinnar.
lovisa@frettabladid.is
Í kvöld fara fram í Iðnó styrktartón-
leikar á vegum Krafts, stuðnings-
félags fyrir ungt fólk sem greinist
með krabbamein og aðstandendur.
Um 70 ungir einstaklingar greinast
á ári hverju og hefur það bæði áhrif
á þau greindu sem og fjölskyldur og
ástvini þeirra.
Tónleikarnir eru þeir síðustu í
tónleikaferðalagi styrktarfélagsins
um landið allt en tilefni þeirra er
er alþjóðlegur baráttudagur gegn
krabbameinum sem er í dag. Mark-
mið tónleikanna er að fá fólk til
að koma saman og njóta líðandi
stundar því lífið er núna og styrkja
gott málefni í leiðinni.
Tónleikaröðin hófst á þriðjudag á
Höfn í Hornafirði en þaðan var farið
í Neskaupstað, til Akureyrar og svo í
Reykjanesbæ í gær. „Við erum búin
að þræða landið og kynna boðskap-
inn,“ segir Stefán Magnússon fram-
kvæmdastjóri styrktarfélagsins.
Að hans sögn er um að ræða
fjölbreytta skemmtun sem hentar
breiðu aldursbili.
Tónlistarfólkið sem kemur fram
eru þau Anya, Elín Hall, Sycamore
Tree, Langi Seli og skuggarnir, Unn-
steinn og Hermigervill, Bríet og
hljómsveit og Grunge rokkmessa
og Stebbi Jak sem hefur ferðast með
félaginu um landið allt.
„Þegar ég setti line-upið saman
vissi ég ekki að Langi Seli og skugg-
arnir væru í Söngvakeppninni en
það má fastlega búast við því að þeir
taki Eurovision-lagið, og Breiðholts-
búgí,“ segir Stefán léttur.
Tónleikarnir í Iðnó í kvöld hefjast
klukkan 19 og standa til 23 en húsið
er opnað klukkan 18.
Hann segir að fólk geti komið og
verið allan tímann eða litið við og
hlustað á ákveðinn tónlistarmann.
Hægt er að tryggja sér miða með
því að kaupa hann á tix.is eða við
innganginn. „Síðustu miðarnir
verða seldir við hurð,“ segir Stefán
en miðinn kostar 3.500 krónur og
rennur ágóði styrktartónleikanna
til Krafts og starfsemi félagsins í
þágu ungs fólks sem greinst hefur
með krabbamein og aðstandenda. n
Lokahnykkur ferðalagsins í Iðnó í kvöld
Stefán Jakobs-
sson söngvari
Dimmu til
vinstri og Stefán
Magnússon
framkvæmda-
stjóri Krafts
hafa í vikunni
ferðast saman
um landið.
MYND/AÐSEND
30 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR