Fréttablaðið - 04.02.2023, Side 58
Í körfunni er fatnaður
fyrir barnið: heilgalli,
húfa, sokkar og smekk-
ur með áletruninni
Halló Hafnarfjörður.
toti@frettabladid.is
„Þar sem ég er horfin inn í Eurovisi-
on-búbbluna fannst mér í fyrstu að
frétt vikunnar hlyti að vera sú stað-
reynd að Íslendingar kepptust um
að ná miðum á úrslit Söngvakeppn-
innar,“ segir Ragnhildur Steinunn,
dagskrárgerðarkona hjá RÚV og
einn kynna Söngvakeppninnar.
„En það er kannski engin frétt
að þjóðina þyrsti í glimmer, gleði
og glæný Söngvakeppnislög. Eða
hvað?“ segir Ragnhildur.
Veltir hún fyrir sér hvort þjóðin
hafi ekki, upp til hópa, verið hel-
tekin af júrógleði frá því að söng-
flokkurinn Icy söng um Gleðibank-
ann 1986.
„Það er kannski viðeigandi að
vísa í texta þess lags þegar litið er
yfir liðna viku þar sem bankar, blús
og að hnýta allt í hnút kom vissu-
lega við sögu. Kvika bauð Íslands-
banka upp í dans, janúar-blúsinn
helltist yfir marga eins og úr ískaldri
regnfötu og kjaradeilan er einn stór
rembihnútur þar sem
allir stefna öllum.
Já, og svo gætu auð-
vitað allir gulu miðarnir
verið ágætis mynd-
líking fyrir gulu
viðvaranirnar sem
hafa dúkkað upp
nær daglega. Ég er
hugsi. Frétt vik-
unnar fyrir mér er hversu hratt
tíminn líður, hraðar sérhvern
dag og sérhvert kvöld en þá er
fullkomið að hlusta á kósí
lítið lag frá stúlknasveit-
inni Flott sem minnir
okkur á samstöðu.
Leysum hnútinn og
dönsum í takt, kæru
landsmenn.“ n
Glimmer, gleði, bankar og gulur blús
FRÉTT VIKUNNAR |
Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir
„Kraftur og fjölskyldan
mín hafa komið mér í
gegnum þetta“
Kolluna upp
fyrir mig,stelpukraft og
lifidernuna.is
fjölskylduna!
ÚTSÖLULOK
& GÖTUMARKAÐUR
& GÖTUMARKAÐUR
2. TIL 4. FEBRÚAR
Á GÖTUMARKAÐI FJARÐAR FARA
ÚTSÖLUVÖRUR Á ENN MEIRI
AFSLÁTT!
FYLGSTU MEÐ Á @FJORDUR
ÚTSÖLULOK
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
Gjafakörfur
sem þessar hafa
verið gefnar
í Finnlandi í
meira en öld.
Skotar hafa
einnig gefið
körfur.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Krúttgjöf Hafnarfjarðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Sunna Magnúsdóttir með litlu
Hafnarfjarðarkrúttstelpuna sína
sem verður skírð á sunnudaginn.
MYND/AÐSEND
Allir nýfæddir Hafnfirð-
ingar hafa á liðnu ári fengið
heimsendar hamingjuóskir
frá heimabæ sínum ásamt
táknrænni gjöf, Krúttkörfu
sem bíður þeirra á bókasafni
bæjarins.
toti@frettabladid.is
Nýbakaðir foreldrar í Hafnarfirði
hafa tekið hamingjuóskum og
táknrænni gjöf frá bænum fagnandi
enda þykir krúttkarfan svokallaða
sem bærinn fagnar nýinnfæddum
bæjarbúum með afskaplega vegleg.
„Ég var eiginlega hissa hvað þetta
var veglegur pakki. Ég var búin að
lesa um krúttkörfurnar en vissi
ekki að þetta væri svona flott,“ segir
Sunna Magnúsdóttir sem er nýbúin
að sækja körfu dóttur sinnar, sem
verður gefið nafn á sunnudaginn, á
bókasafnið.
Hún segir það óneitanlega gaman
að bæjarfélagið skuli á þennan hátt
taka virkan þátt í gleðinni sem fylgir
því að koma heim með nýtt barn.
„Algjörlega. Ég hef eignast tvö
börn áður og þetta var ekki þá og
það var skemmtilegt að sækja þetta
á bókasafnið.“
Öll ný krútt fá kort
Bærinn hefur frá og með 1. janúar
í fyrra sent hamingjuóskir og kort
heim til allra nýfæddra Hafnfirð-
inga með skilaboðum um að þeirra
bíði táknræn gjöf, svokölluð krútt-
karfa, á barnadeildinni á Bókasafni
Hafnarfjarðar.
Óhætt er að segja að vel hafi verið
tekið í framtakið þar sem stór hluti
foreldra hefur sótt gjöf til þeirra
347 barna sem hafa fengið kveðju
frá bænum.
„Gjöfin er liður í því að efla Hafn-
arfjörð enn frekar sem fjölskyldu-
vænt samfélag með fallegri gjöf og
upplýsingum um þá þjónustu sem
fjölskyldunni allri stendur til boða
innan bæjarmarkanna,“ segir Árdís
Ármannsdóttir upplýsingafulltrúi
Hafnarfjarðarbæjar.
Karfan þykir, eins og Sunna
bendir á, ákaflega vegleg en valið er
í hana með notagildi, kynhlutleysi
og umhverfissjónarmið í huga. Í
körfunni er fatnaður fyrir barnið:
heilgalli, húfa, sokkar og smekkur
með áletruninni Halló Hafnar-
fjörður.
Og það er ekki allt. Síður en svo
því í körfunni eru einnig krútt-
bangsi og tvær bækur, önnur hugs-
uð fyrir foreldrana en hin til lestrar
fyrir barnið.
Aukin atvinnutækifæri
Geitungarnir, nýsköpunar- og
starfsþjálfun fyrir fólk með fötlun,
spila stórt hlutverk í kringum krútt-
körfurnar. Geitungarnir taka á móti
innihaldi gjafar, sjá um pökkun í
gjafakassa og afhendingu á gjöfun-
um til bókasafnsins þar sem starfs-
fólk safnsins tekur við og annast
afhendinguna til foreldra. Mánaðar-
lega keyrir svo þjónustuver Hafnar-
fjarðarbæjar út lista með nýfæddum
Hafnfirðingum, póstleggur kort og
kemur að vinnslu kynningarefnis,
innkaupum og öðrum ákvörðunum
í samstarfi við fjölskyldu- og barna-
málasvið og þjónustu- og þróunar-
svið bæjarins.
Krúttkarfan kallar þannig á gott
flæði og samstarf á milli að minnsta
kosti fimm starfsstöðva innan bæj-
arins og hefur ekki bara glatt nýbak-
aða foreldra heldur einnig skapað
Geitungunum aukið tækifæri til
atvinnu og fjölbreyttra verkefna. n
Fagna nýjum krúttum með
rausnarlegum gjafakörfum
32 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR