Fréttablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 6
2
börn undir
10 ára
1
unglingur
2
30-45 ára
1
eldri
borgari
Drukknanir í sundlaugum
frá 2001 til 2021
lovisa@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Klukkan 20 annað kvöld
verður bænastund með tónlist í
Landakotskirkju.
„Nú þegar ár er að verða liðið
sjáum við að stríðið er ekki búið
heldur er það orðið dýpra og sárara
fyrir alla,“ segir Kristófer Gajowski,
skipulagsstjóri fyrir Support for
Ukrain Iceland, og að það eigi ekki
bara við um Úkraínumenn, heldur
líka alla sem horfa upp á þetta.
Hann segir að Rússar hóti nú meira
ofbeldi og fleiri árásum og að margir
óttist hvað gerist á föstudag en þá er
ár liðið frá því að innrás Rússa hófst
í Úkraínu. Frá því að innrásin hófst
hafa hundruð þúsunda Úkraínu-
manna lagt á flótta. Hingað til lands
komu hátt í þrjú þúsund manns. Í
tilefni af þessum tímamótum verður
bænastund með tónlist í Landakots-
kirkju. Viðburðurinn er skipulagður
af hópnum Support for Ukrain Icel-
and sem hefur frá innrás skipulagt
ýmsa viðburði á Íslandi fyrir bæði
Úkraínumenn og Íslendinga.
„Við viljum að það komi fram að
Úkraínumenn elska friðinn og við
viljum líka þakka fyrir það hvernig
Íslendingar hafa staðið með okkur,“
segir Kristófer en bænastundin er
öllum opin og hvetur hann sérstak-
lega barnafjölskyldur til að koma.
Eftir viðburðinn í kirkjunni verður
boðið upp á kaffi og te í salnum við
kirkjuna.
Kór Landakots og organisti, Mar-
ton Wirth, koma fram á bænastund-
inni auk Ástu Sigríðar Árnadóttur
sópran og Guðnýju Einarsdóttur org-
anista. Natalia og Yaroslava syngja
úkraínskan sálm og Jakob Rolland
prestur leiðir bænir og predikun á
íslensku með þýðingu á úkraínsku. n
Tónlist og bæn í Landakotskirkju
Kristófer stýrir Support for Ukrain
Iceland. Fréttablaðið/anton brink
Eigum nokkra nýlega fjórhjóladrifna Hyundai
notaða á Krókhálsi 7, Reykjavík sem eru enn
í ábyrgð. Komdu og gerðu frábær kaup!
4x4 MEÐ ALLT
AÐ 7 ÁRA
ÁBYRGÐ!
*
OPNUNARTÍMI:
Mánud. 10-18,
þriðjud.–fimmtud. 9-18,
föstud. 9-17, laugard. 12-16
Hyundai notaðir
K7 – Krókhálsi 7, 110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
*Hyundai býður eina víðtækustu ábyrgð sem til er. Ábyrgð á öllum nýjum Hyundai bílum
er sjö ár/150.000 km akstur, hvort sem kemur á undan. Átta ár/160.000 km ábyrgð er á
rafhlöðum. Staðbundnir skilmálar gilda. Kynntu þér allt um ábyrgðina á hyundai.is
Rnr. 370347
Rnr. 380579
Rnr. 140105
Rnr. 432927
Rnr. 370414
Rnr. 140145
Rnr. 149580
Rnr. 140080
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
5
0
6
6
B
íl
a
la
n
d
H
y
u
n
d
a
i
4
x
4
n
o
t
a
ð
ir
2
x
3
8
2
3
fe
b
HYUNDAI Santa Fe IV Style
Nýskr. 04/20, ekinn 52 þ.km,
dísil, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Premium
Nýskr. 07/19, ekinn 52 þ.km,
dísil, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Comfort PHEV
Nýskr. 10/21, ekinn 10 þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Style PHEV
Nýskr. 10/22, ekinn 3 þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Classic MHEV
Nýskr. 06/21, ekinn 51 þ.km,
dísil/rafmagn
HYUNDAI Tucson Style PHEV
Nýskr. 04/22, ekinn 20 þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Style MHEV
Nýskr. 02/20, ekinn 40 þ.km,
dísil/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Santa Fe IV Style
Nýskr. 07/21, ekinn 50 þ.km,
dísil, sjálfskiptur
VERÐ:
7.890.000 kr.
VERÐ:
5.590.000 kr.
VERÐ:
6.590.000 kr.
VERÐ:
7.990.000 kr.
VERÐ:
5.390.000 kr.
VERÐ:
7.790.000 kr.
VERÐ:
5.990.000 kr.
VERÐ:
8.490.000 kr.
Aðeins ein drukknun varð í
sundlaugum í Reykjavík á tutt-
ugu ára tímabili, 2001-2021.
Nú hafa þrjú andlát orðið á
þremur mánuðum í sundlaug-
um á höfuðborgarsvæðinu.
bth@frettabladid.is
slys „Þetta eru hræðilegar fréttir,
við erum harmi slegin, það tekur
mjög á alla sundlaugarstarfsmenn
að heyra af þessum andlátum,“
segir Anna Kristín Sigurðardóttir,
forstöðumaður Vesturbæjarlaugar.
Þrjú dauðsföll hafa orðið í sund-
laugum á höfuðborgarsvæðinu á
þremur mánuðum. Í Lágafellslaug
í Mosfellsbæ lést kona á fimm-
tugsaldri í vikunni. Á föstudag
lést önnur kona í Kópavogslaug. Í
desember síðastliðnum lést karl á
áttræðisaldri í Breiðholtslaug. Dán-
arorsök er til rannsóknar og óljóst
hvort aðrir þættir en drukknun séu
fyrir hendi.
Haf þór B. Guðmundsson, fyrr-
verandi lektor í íþróttafræði við
Háskóla Íslands og sérfræðingur í
sundöryggismálum, hefur gagnrýnt
öryggismál sundlauga hér á landi
og sagði í viðtali við RÚV að atvik
af þessu tagi eigi ekki að geta gerst.
Hann kallar eftir úrbótum og segir
dæmi um að mál hreinlega hverfi.
Starfsfólk sundstaða sem Frétta-
blaðið hefur rætt við víða um land,
segir að öryggiskröfur séu í sífelldri
þróun. Eitt dæmi að sögn Sól-
veigar Valgeirsdóttur, öryggisstjóra
menningar- og íþróttasviðs Reykja-
víkurborgar, er að myndavélar verða
bráðlega settar upp í alla varðturna
í sundlaugum í borginni. Þá hafa
símar verið bannaðir í vaktturnum
til að auka líkur á fullri einbeitingu
starfsfólks.
Anna Kristín hefur blásið lífi í
sundlaugargest eftir hjartaáfall.
Hann lifði og segir Anna að það
komi sjaldnast fram þegar starfs-
menn sundlauga bjarga mannslífum
með góðri vöktun og skyndihjálp.
Hún gagnrýnir málflutning Hafþórs
og sakar hann um staðlausa stafi.
Nokkrir forstöðumenn sundlauga
og starfsmenn hafa í tímans rás
fengið stöðu sakbornings á meðan
unnið er að rannsókn á banaslysum.
Sólveig segir að starfsmaður á sund-
stað hafi aldrei verið ákærður fyrir
brot um vanrækslu í starfi.
„Dauðsföll geta alls staðar orðið,
við vitum í þessum nýlegu málum
ekkert hvort um drukknun var að
ræða eða aðrar orsakir andláts,“
segir Sólveig.
Starfsfólk sundstaða tekur þátt
í þjálfun umfram reglugerðir að
hennar sögn. Álag í vinnu sé oft
mikið, myndavélar hafi reynst góð
viðbót en aldrei sé hægt að fylgjast
með öllum. Minnir Sólveig á að börn
eru á ábyrgð foreldra í sundi, ekki
starfsfólks.
„Nei, það er ekki orðið hættulegt
að fara í sund, en það getur verið
hættulegt að vera of lengi í heitu
vatni ef fólk er með hjarta og æða-
sjúkdóma og svo þarf að huga að
vatnsdrykkju og reyna ekki um of á
sig,“ segir Sólveig.
Frá 2001-2021 voru alls sex
drukknanir í sundlaugum skráðar,
fjórar í sundlaugum á landsbyggð-
inni og tvær á höfuðborgarsvæð-
inu, þar af önnur í Reykjavík. Þetta
kemur fram í skýrslu innri endur-
skoðunar um öryggi sundstaða
Reykjavíkurborgar. Í mörgum til-
fellum urðu sundlaugargestir fyrst
varir við slysið og aðstoðuðu við
björgun upp á bakka.
Um 2,3 milljónir gesta heimsækja
sundlaugarnar í Reykjavík árlega. n
Starfsfólk sundlauganna
harmi slegið vegna slysa
Sund er mikil heilsubót en slysahrina undanfarið hefur vakið óhug. Myndin er tekin af Kópavogslaug. Fréttablaðið/Ernir
Sólveig Val-
geirsdóttir,
öryggisstjóri
menningar- og
íþróttasviðs
Reykjavíkur-
borgar
6 fréTTir FRÉTTABLAÐIÐ 23. FeBRúAR 2023
fiMMTUDAGUr