Fréttablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 9
Ef færri ferðamenn
koma til landsins þá
dregur eðlilega úr því
fjármagni sem flæðir
inn í landið og krónan
veikist.
Már Wolfgang Mixa
Veitingastaðurinn
Brewdog Shanghai var
opnaður árið 2020 en
fyrirtækið selur vörur
sínar á 110 mismun-
andi börum í Kína.
AÐALFUNDUR
ICELAND SEAFOOD INTERNATIONAL HF.
Verður haldinn þann 16. mars 2023 kl. 16.00 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut
2, 108 Reykjavik. Upplýsingar tengdar fundinum eru aðgengilegar á heimasíðu félagsins
www.icelandseafood.com/investors.
DAGSKRÁ FUNDARINS:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina á liðnu starfsári
3. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar
4. Ákvörðun um ráðstöfun taps félagsins á árinu 2022
5. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og nefndarmanna í undirnefndum stjórnar
7. Kosning stjórnar félagsins
8. Kosning endurskoðanda félagsins
9. Tillaga stórnar um breytingar á samþykktum:
a. Endurnýjun á heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum ásamt viðeigandi breytingu á
viðauka við samþykktir
b. Heimild til stjórnar til hækkunar á hlutafé félagsins um allt að 150.000.000 nýja hluti
ásamt viðeigandi breytingu á 4. gr. samþykkta
c. Aðrar minniháttar breytingar á 11. og 12. gr. samþykkta félagsins
10. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin.
Hluthafar hafa heimild til að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á fundinum og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur
eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins skriflega eða með tölvupósti á netfangið agm@icelandseafood.
com í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 hinn 6. mars nk. Á aðalfundinum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Hluthafar
þurfa að vera skráðir í hlutaskrá félagsins til að eiga þess kost að greiða atkvæði á fundinum (hlutir á safnreikningum
hafa ekki atkvæðisrétt). Mæting hluthafa sem sækja fundinn verður skráð á við innganginn og hluthafar fá þar afhenta
atkvæðaseða og önnur fundargögn. Atkvæði verða einungis greidd skriflega á fundinum ef farið verður fram á slíkt.
Kjör stjórnar fer fram skriflega svo fremi sem framboð eru fleiri en stjórnarsæti. Hluthafar sem ekki mæta á fundinn
geta greitt atkvæði fyrir fundinn eða látið umboðsmann sækja fundinn fyrir sína hönd. Óski hluthafi eftir því að greiða
atkvæði skriflega fyrir fundinn skal hann gera kröfu um slíkt eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir fundinn. Hluthafar
geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda eða sótt atkvæðaseðil á vefsíðu félagsins og greitt atkvæði fyrir fund.
Undirritaðir, dagsettir og vottaðir atkvæðaseðlar skulu hafa borist félaginu á skrifstofu þess eða á netfangið agm@
icelandseafood.com að minnsta kosti þremur klukkustundum fyrir fundinn svo þeir teljist lögmætir. Hluthafar eiga rétt
á að mæta og taka til máls á aðalfundi. Jafnframt eiga hluthafar rétt á að koma á framfæri fyrirspurnum. Hluthafar
skulu senda fyrirspurnir sínar á netfangið agm@icelandseafood.com í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 hinn 11. mars 2023.
Hluthöfum er heimilt að sækja fund ásamt ráðgjafa. Þá er hluthöfum heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið á fundinum
fyrir sína hönd. Ráðgjafi hefur hins vegar hvorki tillögurétt né atkvæðisrétt á hluthafafundum. Ef hluthafi hyggst láta
umboðsmann mæta fyrir sína hönd skal umboðsmaður leggja fram skriflegt eða rafrænt umboð, undirritað, dagsett og
vottað. Rafræn umboð skulu send á netfangið agm@icelandseafood.com og skulu þau berast að minnsta kosti þremur
klukkustundum fyrir fundinn. Form að umboði má nálgast á heimasíðu félagsins. Þeir einstaklingar sem hyggjast
gefa kost á sér í stjórnarkjöri skulu með skriflegum hætti tilkynna félagsstjórn um framboð, ásamt nauðsynlegum
fylgigögnum, eigi síðar en fimm sólarhringum fyrir aðalfund, sbr. 63. gr. a laga nr. 2/1995 um hlutafélög og samþykktir
félagsins. Skulu tilkynningar berast á netfangið agm@icelandseafood.com. Eyðublöð má nálgast á heimasíðu félagsins,
einnig er hægt að óska eftir því að fá þau send með því að senda tölvupóst á netfangið agm@icelandseafood.com.
Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi seinna en tveimur dögum fyrir fund.
Ítarlegri upplýsingar um efni fundarins, þ.á m. skjöl sem lögð verða fyrir
hluthafafund og tillögur, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins;
http://www.icelandseafood.com/Investors
Dósent í hagfræði við
Háskóla Íslands segir viðbúið
að íslenska krónan veikist
enn frekar á næstunni vegna
samdráttar í ferðaþjónustu
og átaka á vinnumarkaði.
Áhrif bakslagsins geti hæg-
lega aukið á verðbólgu og
vegið upp á móti kólnandi
fasteignamarkaði.
ggunnars@frettabladid.is
Már Wolfgang Mixa, dósent í hag-
fræði við Háskóla Íslands, segir nær-
tækast að líkja blikum á lofti í efna-
hag landsins við slæma veðurspá og
yfirvofandi lægðagang.
„Við sjáum alls konar lægðir í
kortunum. Vandamálið um þessar
mundir er að nær ómögulegt er að
spá fyrir um hve djúpar þær verða
þegar þær skella á okkur,“ segir Már.
Hann segir líklegt að hatrömm
átök í kjaradeilu Eflingar og Sam-
taka atvinnulífsins séu þegar farin
að hafa áhrif á þróun vaxtastigs í
landinu.
„Við þurfum ekki að horfa lengra
en til ársins 2015 til að rifja upp
sambærileg dæmi. Þá hækkuðu
vextir á skuldabréfamarkaði langt
fram eftir ári í tengslum við kjara-
deilur.“
Már segir ávöxtunarkröfu skulda-
bréfa á undanförnum dögum ein-
mitt tilkomna vegna væntinga um
að yfirstandandi kjaradeila hafi
slæm áhrif til lengri tíma.
„Þannig að áhrif átaka á vinnu-
markaði á vexti eru sannarlega til
staðar. Spurningin er bara hversu
mikil þau áhrif verða,“ segir Már.
Staðan sé í raun afar snúin um
þessar mundir að hans mati og
engin teikn á lofti um að stýrivextir
lækki í bráð.
„Hvort það gerist síðar á þessu
ári veltur á nokkrum þáttum en
allt tengist þetta á endanum verð-
bólgunni. En eins og þróunin hefur
verið upp á síðkastið þá virðist verð-
bólgan hér ekki vera að ganga niður
að sama marki og hún hefur verið
að gera víða erlendis.“ Stýrivextir
Seðlabankans séu vissulega farnir
að bíta á fasteignamarkaði en þá
megi ekki gleyma því, segir Már, að
hátt núverandi vaxtastig komi beint
í kjölfarið á ástandi þar sem vextir
fóru niður í nánast ekki neitt.
„Við erum að koma út úr svo
miklu þensluástandi,“ segir Már.
Það sem geri stöðuna svo enn
snúnari um þessar mundir og
lægðaganginn illvígari sé þessi
harka sem hlaupin sé í kjaradeilu
Eflingar og Samtaka atvinnulífsins.
„Þessi hnútur á vinnumarkaði
virðist ætla að hafa mjög mikil áhrif.
Einkum og sér í lagi á ferðaþjónust-
una. Ef færri ferðamenn koma til
landsins þá dregur eðlilega úr því
fjármagni sem flæðir inn í landið
og íslenska krónan veikist enn
frekar en hún hefur verið að gera að
undanförnu.“
Sá skellur sem við sjáum fram á í
atvinnugrein eins og ferðaþjónustu
hafi svo bein verðbólguhvetjandi
áhrif að mati Más.
„Vegna þess hve háð við erum stöð-
ugu innflæði fjármagns erlendis frá,“
segir Már
Á heildina litið megi þó draga
saman horfurnar í efnahagslífinu
þannig, að mati Más, að til lengri
tíma gefi þær ástæðu til bjartsýni.
Full ástæða sé hins vegar til að
hafa áhyggjur af skammtímahorf-
unum og þeim af leiðingum sem
langvarandi vinnudeila geti haft á
heilar atvinnugreinar. n
Viðbúið að krónan haldi áfram að veikjast
Már Wolfgang Mixa, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir áhrifa þegar farið að gæta af vinnumarkaðsdeilum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fréttablaðið markaðurinn 923. Febrúar 2023
FimmTuDaGur
Fyrsti Brewdog á Íslandi opnaði á horni Frakkastígs og Hverfisgötu árið 2018.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
helgisteinar@frettabladid.is
Skoski bjórframleiðandinn Brew-
dog mun bráðum hefja bjórfram-
leiðslu í Kína. Fyrirtækið gerir þetta
í samstarfi við bjórrisann Budwei-
ser og verða bjórarnir þeirra brugg-
aðir í bruggverksmiðju Budweiser
í Fujian-héraði í suðurhluta Kína.
Brewdog segist einnig ætla að opna
fleiri bari í landinu.
Ákvörðunin kemur samhliða
tilkynningu um að fyrirtækið sé
að skoða skráningu á hlutabréfa-
markað. Kína er einnig stærsti
bjórmarkaður í heimi en stendur
ekki undir nema einu prósenti af
heildarsölu fyrirtækisins.
Veitingastaður inn Brewdog
Shanghai opnaði árið 2020 en fyrir-
tækið selur vörur sínar á 110 mis-
munandi börum í Kína.
Brewdog hefur staðið frammi
fyrir miklum erfiðleikum undan-
farin ár en uppgjör fyrirtækisins
árið 2021 sýndi fram á tæplega 960
milljón króna rekstrartap. Fyrir-
tækið þurfti einnig að greiða 87
milljónir króna til sigurvegara í leik
sem auglýsti „gulldósir“ með vill-
andi hætti. Fyrrum starfsmenn hafa
þar að auki kvartað undan eitraðri
vinnustaðamenningu og segjast
þjást af andlegum veikindum eftir
að hafa unnið fyrir Brewdog.
Rúmlega 2.300 manns starfa
hjá Brewdog og er fyrirtækið með
bruggaðstöðu í Ohio-fylki í Banda-
ríkjunum, Berlín og Brisbane í Ástr-
alíu. n
Brewdog í útrás til kína