Fréttablaðið - 23.02.2023, Blaðsíða 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FIMMTUDAGUR 23. febrúar 2023
Hafnarborg býður upp á listasmiðjur
fyrir börnin í vetrarfríinu.
jme@frettabladid.is
Hafnarborg býður grunnskóla-
börnum í Hafnarfirði að taka þátt
í skemmtilegum og skapandi lista-
smiðjum á vegum safnsins í vetrar-
fríi skólanna, í dag og á morgun.
Smiðjurnar verða hvor með sínu
sniðinu og gestum er velkomið að
taka þátt annan eða báða dagana.
Skúlptúrar og plánetur
Fimmtudaginn 23. febrúar frá
kl. 13-15 verður skúlptúrsmiðja.
Þátttakendur vinna með gips
og búa til skúlptúra í anda lista-
konunnar Sóleyjar Eiríksdóttur
en um þessar mundir stendur yfir
sýning á verkum hennar í safninu.
Sóley vann sjálf stærri skúlptúra
sína með því að klæða burðargrind
með steinsteypu . Leiðbeinandi er
Unnur Mjöll S. Leifsdóttir, mynd-
listarmaður og sérfræðingur á skrif-
stofu Hafnarborgar.
Föstudaginn 24. febrúar kl. 13-15
verður plánetusmiðja þar sem
þátttakendur vinna með ýmis litrík
efni til þess að búa til sínar eigin
plánetur sem breytast í snúningi
og ljósi. Saman munu pláneturnar
svo mynda sólkerfi sem lýsir upp
„himinhvolfið“. Leiðbeinandi er
Þórdís Erla Zoëga myndlistar-
maður.
Smiðjurnar fara fram í Apótekinu
á fyrstu hæð safnsins en mælst er
til að börn mæti í fylgd fullorðinna.
Þátttaka í listasmiðjum er gestum
að kostnaðarlausu, líkt og aðgangur
að sýningum safnsins. n
Listasmiðjur
í Hafnarborg
Viktor er nýútskrifaður hjúkrunarfræðingur og vinnur í fullu starfi á Landspítalanum þar sem hann segist alltaf fá góð viðbrögð við útliti sínu. Hann segist
margbrotinn persónuleiki en skilningsrík manneskja og í hjúkrun upplifi hann tilfinninguna að líf hans hafi tilgang og að hann skipti máli. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Vill ekki vera náttúrulegur í útliti
Viktor Andersen setti sér ungur markmið um að láta lýtalækna breyta andliti sínu og vek-
ur athygli hvar sem hann fer. Hann er sáttur við spegilmyndina og segist hvergi hættur. 2
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is