Fréttablaðið - 23.02.2023, Qupperneq 16
Bjarni Gabríel Bjarnason
er aðeins 15 ára gamall
og hefur nú þegar hannað
eigin fatalínu og lógó. Hann
brennur fyrir því að elta
drauma sína og einsetur sér
að ná markmiðum sínum.
Þegar kemur að því að velja
sér föt hefur Bjarni Gabríel
ávallt haft sterkar skoðanir á
því hvernig fötum hann vill
klæðast.
sjofn@frettabladid.is
Bjarni Gabríel er fjölhæfur og
sterkur persónuleiki. Hann
stundar nám í 9. bekk í Árbæjar-
skóla. Áhugamálin eru fyrst og
fremst fótbolti, box, leiklist og að
semja sína eigin tónlist. „Síðast-
liðin fimm ár hef ég unnið mikið
fyrir leikhús og sjónvarp samhliða
skólanum. Ég brenn fyrir því að
fólk fái tækifæri og hvatningu til
að elta drauma sína og ná mark-
miðum, að láta ekki aðra stoppa
sig í því. Það þurfa ekki allir að
vera eins,“ segir hann.
Spurður segir Bjarni að fata-
línan hafi orðið að raunveruleika
á meðan Covid-bylgjan stóð hæst.
„Í Covid var ég mikið heima og fór
að skoða hvar ég gæti látið gera
fyrir mig föt sem mig langaði í en
fann ekki í verslunum. Ég fann
alls konar framleiðendur og svo
byrjaði ég að búa til lógó og hanna
útlit sem mér fannst flott með
forriti sem ég fann á netinu. Ég
var lengi að hugsa þetta og breytti
nokkrum sinnum um nafn á fata-
línunni minni en svo ákvað ég að
það væri kominn tími til að hefja
sölu á fatalínunni eftir tveggja ára
ígrundun, nafnið var komið og ég
kominn með fyrstu sendinguna,
svo mun eitthvað nýtt bætast við á
næstu vikum.“
Gabríel táknrænt nafn
Bjarni Gabríel segist hafa fengið
innblástur úr fjölmiðlum og á
netinu . „Ég var búinn að hugsa
þetta lengi og fara nokkra hringi
með en ég hef alltaf trúað því að
maður eigi að setja markið hátt og
helst að stjörnunum, þess vegna
eru stjörnur á bakinu til að minna
fólk á að gefast aldrei upp. Það er
allt hægt með rétta hugarfarinu og
viljann að vopni.“
Fatalínan heitir einfaldlega
Gabríel og hefur flotta skírskotun.
„Gabríel er táknrænt, tengist oft
trú en þýðing þess er sterk og
gefandi manneskja. Ég trúi því að
allir hafi þannig manneskju
inni í sér, maður þarf bara
að finna hana og hjálpa
henni að skína. Ég
nota grískt G í línunni
sem táknar sterka
manneskju. Þetta er
götutískulína sem allir
geta verið í bæði í skól-
anum og í frítíma.“
Bjarni hefur sterka
skoðun á því hverju hann
vilji klæðast. „Ég byrjaði
mjög ungur að velja föt sem ég
fór í hvern dag. Ég meira að segja
valdi nærbolina mína sjálfur.
Ég kaupi mér mikið af fötum
sjálfur en ég hef verið duglegur
að vinna síðastliðin ár. Ég sel
síðan oft fötin mín í gegnum
Facebook og kaupi notuð föt á
móti. Þannig er maður að endur-
vinna og allir græða.“
Aron Can fyrirmynd
Bjarni Gabríel á sér fyrirmyndir,
bæði á Íslandi og erlendis. „Sem
dæmi þá er Aron Can tónlistar-
maður ein af mínum fyrirmynd-
um, sömuleiðis tónlistarmaðurinn
Central C og körfuboltamaðurinn
Shai Alexander auk Pharell
Williams sem er nýr listrænn
stjórnandi hjá Louis Vuitton en ég
Fimmtán ára og hannaði eigin fatalínu í Covid
Bjarni Gabríel Bjarnason lét drauminn rætast og hannaði sína eigin fatalínu. Fatalínan ber heitið Gabríel og er það táknrænt í heiminum og táknar oftast trú,
þýðing þess er sterk og gefandi manneskja, sem lýsir Bjarna vel. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Peysurnar eru
þægilegar og
töff og eiga vel
við bæði í skóla
og frítíma. Lit-
irnir tímalausir
og lógóið töff
og undirstrikar
persónuna bak
við línuna.
Rauði liturinn
er einn uppá-
haldslitur
Bjarna og hér
skartar hann
svartri hettu-
peysu með
rauðu lógói.
get talið upp marga fleiri.
Ég á mörg uppáhaldsmerki
þegar kemur að fatnaði. Ég
er hrifinn af öllum þessum
nýju merkjum sem þora að
gera öðruvísi hluti eins og til
dæmis Billioner Boys Club,
Corteiz og svo finnst mér Reykja-
vík Roses vera að gera mjög flotta
hluti.“
Ómissandi að eiga
Salomon gönguskó
Bjarni Gabríel á líka
uppáhaldsliti. „Ég myndi
segja að rauður væri minn
uppáhalds en ég á auð-
vitað mikið í svörtu líka
eins og margir á Íslandi.“
Þegar Bjarni Gabríel er
spurður út í skótískuna og
fylgihluti og hvort það sé
eitthvað sem honum finnist
ómissandi að eiga stendur
ekki á svörum. „Í dag
finnst mér alveg ómiss-
andi að eiga Salomon
gönguskó, eitt par af
Birkenstock og mikið
af strigaskóm til
skiptanna. Ég nota
fylgihluti eins og
armbönd, hálsmen,
eyrnalokka og hringi
en ég er einmitt að undirbúa
spennandi verkefni tengt fylgi-
hlutum,“ segir hann kíminn.
En hvernig ætli Bjarni
Gabríel sjái framtíðina fyrir
sér? Langar þig að vera
hönnuður og byggja upp
stórt tískuhús í fram-
tíðinni?
„Já, mig langar að
halda mig við fötin
og stækka merkið
mitt enda er tíska
áhugamál mitt en ég er
auðvitað líka í fótbolta
sem ég elska og svo er
ég alltaf að búa til tónlist.
Vonandi get ég bara unnið
við þetta allt saman í framtíðinni,
það er draumurinn. Til að ná mark-
miðum verður maður að vera mjög
skipulagður og agaður og til að
gera hlutina vel þarf að setja allan
tímann í það,“ segir Bjarni Gabríel
að lokum. n
Hægt er að fylgjast með því
sem Bjarni Gabríel er að
gera á Instagram-síð-
unni hans @gabrielclot-
hin og vefsíðan hans
er: www.gabrielclotin.
myshopify.com
Ég hef alltaf trúað
því að maður eigi
að setja markið hátt og
helst að stjörnunum og
þess vegna eru stjörnur á
bakinu til að minna þig á
að gefast aldrei upp.
Línan hans Bjarna Gabríels hefur
sterka skírskotun í hans eigin fatastíl
og er bæði töffaralega og þægileg.
Litirnir eru hans uppáhalds eins og
svartur með hvítu lógói. Stjörnurnar
á bakinu eru líka táknrænar.
4 kynningarblað A L LT 23. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR