Fréttablaðið - 23.02.2023, Page 17
MgB
ISGLÝSÍN
A
T
300 mg
5 mg
75 mg
100 mg
200 mcg
B6 vítamín
Schisandra
Burnirót
B9 vítamín (fólinsýra)
Magnesíum bisglýsínat
Léttari lund,
alla daga
MAG-YOUR-MIND®
vinnur gegn streitu og
skerpir hugsun
Nettó, Fjarðarkaup, Hagkaup, Krónunni,
Lyf og heilsu og á goodroutine.is
fæst í Apótekaranum, GOOD ROUTINE®
K
AV
IT
A
jme@frettabladid.is
Þegar stjörnurnar úti í
heimi klippa sig þá logar
allt í tískuheiminum, ekki
síst þegar stjörnur á borð
við Hailey Bieber splæsa
í nýtt hár á nýju ári og nú
síðast nýjan háralit.
Hailey Bieber er ein
þeirra sem virðist
alltaf vera á undan
tískubylgjunni eins
og tískutímaritið
Harper‘s Bazaar orðar
það, en ofurfyrir-
sætan hefur látið brúnu
lokkana fjúka fyrir
hunangslitaða, stutta
bob-klippingu.
Nýtt ár – nýtt hár
Brúna hárið síða sem
hún hefur skartað
í þó nokkurn tíma
hefur verið vinsæll
innblástur fyrir
tískumeðvitaða upp
á síðkastið. Sama
gildir um bob-klipp-
inguna sem hún lét
klippa á sig í janúar
síðastliðinn.
Síðustu helgi frum-
sýndi Bieber svo
nýjan háralit, eins konar
karamellutón sem hár-
stílistinn Matt Rez,
snillingurinn á bak við
nýja háralitinn, kallar
hunangsstrauma eða
„honey-vibes“. Liturinn
er nokkuð ljósari og
hlýrri tónn en
náttúrulegur
háralitur Bie-
ber og setur
punktinn yfir
i-ið á nýju hár-
lúkki fyrir-
sætunnar.
Búist er við
að klipp-
ingin og hára-
liturinn verði
vinsæll á næstu
mánuðum enda er
hlýr karamellu-
tónninn einstak-
lega klæðilegur. n
Hárfínir og smart
hunangsstraumar
Fyrirsætan Hailey
Bieber frumsýndi
þennan hunangsglóandi
háralit um helgina.
Fréttablaðið/Getty
Diane Keaton og vinkonur
hennar, Jane Fonda, Can-
dice Bergen og Mary Steen-
burgen hafa gert framhald af
kómísku bíómyndinni Book
Club. Myndin verður frum-
sýnd 12. maí, aðdáendum
þessara frábæru leikkvenna
til ánægju.
elin@frettabladid.is
Diane Keaton er 77 ára gömul
þótt ekki sjáist það á útlitinu. Jane
Fonda er 84 ára, Candice Bergen
er 76 og Mary Steenburgen varð
sjötug þann 8. febrúar. Þótt þær
teljist komnar af léttasta skeiðinu
eru þær allar sprellfjörugar og
skemmtilegar leikkonur.
Saman mynda þær góðan
vinkvennahóp í myndunum.
Book Club fjallar um þessar góðu
vinkonur sem eru saman í bóka-
klúbbi. Þær lesa 50 gráa skugga
og í framhaldinu ákveða þær
að krydda líf sitt með mörgum
kómískum uppákomum.
Myndin þótti vel heppnuð og
var vinsæl í kvikmyndahúsum
þegar hún var fyrst sýnd 2018.
Í nýju myndinni fer klúbburinn
í kvennaferð til Ítalíu þar sem þær
fara á kostum jafnt í Feneyjum
og Róm. Þegar hlutirnir fara úr
böndunum og leyndarmál koma í
ljós breytist afslappað frí í einstakt
ævintýri.
Þegar fyrri myndin var tekin
höfðu þær aldrei leikið saman
og segja að það hafi verið stór-
kostlega gaman að vinna að
þessum tveimur bíómyndum. „Það
gerðist eitthvað á milli okkar. Við
reyndumst eiga margt sameigin-
legt og svo margt að tala um,“ sagði
Mary Steenburger í viðtali í banda-
rískum útvarpsþætti. „Við erum
orðnar sannar vinkonur.“
Karlarnir líka frægir
Með önnur hlutverk í myndinni
fara Andy Garcia, Don Johnson og
Craig T. Nelson auk fleiri.
Diane Keaton hefur leikið í fjöl-
mörgum vinsælum kvikmyndum.
Hún hefur leikið allt frá árinu 1968
er hún lék í Hair á sviði í Broadway.
Hún hlaut Óskarsverðlaun fyrir
leik sinn í Annie Hill, kvikmynd
Woody Allen, en hlutverkið er
eitt það þekktasta sem hún hefur
leikið. Woody byggði myndina að
hluta til á þeirra eigin sambandi.
Þau léku saman í átta kvikmynd-
um og Keaton hefur sagt að Woody
sé einn af sínum nánustu vinum.
Ótal verðlaun
Diane hefur hlotið ótal
verðlaun í gegnum
tíðina, fékk til dæmis
Tony-verðlaunin
fyrir hlutverk sitt í
kvikmyndinni
Play It Again,
Sam. Þá var hún
óborganleg í kvik-
myndinni
Something‘s
Gotta Give
þar sem hún lék á móti Jack Nic-
holson og Keanu Reeves.
Diane hefur leikið fjölmörg
ástarævintýri á hvíta tjaldinu en
sjálf hefur hún verið einhleyp í
15 ár. Rómantísk hlutverk hennar
hafa stundum endað með sam-
bandi við meðleikara. Hún var um
tíma með leikaranum Al Pacino og
sömuleiðis Warren Beatty. Keaton
ættleiddi tvö börn en hún ákvað
að verða móðir þegar hún var um
fimmtugt.
Sannkölluð tískudama
Diane Keaton hefur gert margt
spennandi í gegnum árin, hún er
ekki einungis kvikmyndastjarna
heldur hefur hún skrifað nokkrar
bækur og verið fyrirmynd á tísku-
sviðinu. Hún hefur leikið í fjöl-
mörgum kvikmyndum og er enn
á fullu þótt hún nálgist áttrætt.
Ein sú nýjasta er gamanmyndin
Mack og Rita. Þar segir frá þrítugri
stelpu sem eyðir villtri helgi í Palm
Springs og vaknar upp orðin sjö-
tug. Diane Keaton hefur yfir tvær
milljónir fylgjenda á Instagram. n
Villtar og fjörugar á gamals aldri
Diane Keaton er glæsileg kona og eftirsótt leikkona en hún fagnaði 77 ára afmæli fyrir stuttu. Hér er hún í smóking
frá Ralph Lauren og með hatt í stíl. Diane gengur yfirleitt með hatta. Fréttablaðið/Getty
Sú elsta í hópnum (Jane Fonda) stefnir á trúlofun í myndinni og því fagna
vinkonurnar ógleymanlega.
Vinkonurnar í Book Club 2 lenda
í miklum ævintýrum í Feneyjum.
Þegar hlutirnir fara
úr böndunum og
leyndarmál koma í ljós
breytist afslappað frí í
einstakt ævintýri.
ALLT kynningarblað 5FIMMTUDAGUR 23. febrúar 2023