Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Blaðsíða 11
|5of<i físbrnir?
Eftir Peter Michael.
Þýtt úr The Salmon & Trout Magazine.
SOFA fiskarnir? Þetta er spurning, sem
oft er lögð fyrir náttúrufræðinga, fisk-
búraeigendur og vafalaust veiðimenn
líka. Hingað til virðist enginn hafa get-
að svarað lienni á fullnægjandi hátt,
enda þótt segja megi, að fræðimenn séu
yfirleitt sammála um að sumar fiskteg-
undir, a. m. k., sofi. Óhætt mun vera
að fullyrða, að fiskar sofi ekki allir á
sama tíma nætur, því lifandi sönnun þess
liggur stundum spriklandi á bakkanum
við fætur þeirra, sem hafa heppnina
með sér á næturveiðum. Hvernig getum
vér þá slegið því föstu, að sumir fiskar
sofi á einhverjum tíma sólarhringsins.?
Margir, sem eiga fiskbúr fullyrða að
fiskar sínir sofni aldrei — því þeir hafi
aldrei séð þá með lokuð augu. F.n þótt
við kölluðum nú til vitnis fólk, sem þyk-
ist geta ltlundað með annað augað opið
eða bæði hálfopin (ellegar hálflokuð, ef
þið kjósið lieldur að orða það þannig)
þá sannar það ekkert. Engin vissa er
fyrir því, að þessir fiskbúraeigendur, sem
halda því fram, að fiskarnir sofni aldrei,
hafi setið uppi alla nóttina, til þess að
ganga úr skugga um, hvort einhver gá-
laus gullfiskur fengi sér ekki hænublund;
enda mundi sú langa og leiða næturvaka
í þágu sannleikans alltaf verða unnin
fyrir gýg, af þeirri einföldu ástæðu, að
fiskar hafa engin augnalok og eru því
ævinlega með opin augu.
Vér menn getum ekki lokað eyrum
voruni með náttúrlegu móti, en samt
sem áður getum vér notið fullkominnar
kyrrðar og hvíldar. Hugleiðið þetta um
stund, og þér munuð komast að þeirri
niðurstöðu, að samlíkingin sé á rökum
reist og verði ekki hrakin. Einn af fræði-
mönnunum segir, þegar hann kafar
dýpst: „Svefn er ástand þar sem það
gerist m. a. að vitund vorri er kippt úr
sambandi við hinn ytri heim um stundar-
sakir. Fyrst vér getum sofið, þrátt fyrir
allar þær truflanir, sem berast urn eyru
vor inn í höfuðið — en þær eru hvorki
fáar né smáar í stórborgunum — hví
skyldu þá fiskar ekki geta sofið, þrátt
fyrir þau áhrif sem augu þeirra flytja?
Hér er aðeins vaninn að verki. Ergo:
fiskar sofa. . . . “
Sem svar við þessu munu aðrir strax
benda á, að enda þótt fiskar hafi ekki
venjuleg augnalok, þá geti þeir þó hrós-
að sér af sjóntækjum, sem sérstaklega
séu gerð með hliðsjón af hátturn þeirra,
umhverfi o. s. frv. T. d. hið svonefnda
VrmntAÐURiNN
9