Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Blaðsíða 30

Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Blaðsíða 30
fékkst við á ævinni, og það var þá held- ur enginn goggur. Ef til vill hefur það bjargað öllu, að fiskurinn valdi þann kostinn, að hafa hægt um sig þangað til ég kæmi, því ofurstinn var svo tauga- æstur, að hann kom ekki upp nokkru orði. Nú var kominn tími til að binda endi á þennan leik. Ég sagði honum að taka fastar á fiskinum, en beið sjálfur tilbúinn með ífæruna og raunar einnig albúinn þess, að greiða banahöggið þegar færið gæfist. Hálfur annar klukkutími var nú liðinn síðan ég festi í ferlíkinu. En ofurst- inn var með lítið kasthjól og átti þ við sömu erfiðleika að etja og ég sjálfur mánudaginn á undan. Ég lagði nú hönd á verkið, í bókstaflegum skilningi. Ég tók um línuna og dró laxinn að landi, en ofurstinn vatt inn á hjólið jafnóðum. Ef laxinn skyldi vilja strika tit aftur, var ekkert annað að gera en sleppa, láta liann dansa og byrja svo að draga inn á nýjan leik. Þannig þreyttum við hann. Tvisvar kom hann upp að bakkanum, en svo djúpt að ég sá hann ekki, en þegar hann kom í þriðja sinn, tók ég þétt í og dró hann svo nærri, að ég náði til hans með ífærunni. Hún geigaði ekki, og eftir örfáar sekúndur lá ferlíkið gap ancli upp á bakkanum. Þvílík sjón, sem blasti þarna við aug- um tveggja taugaæstra manna! Þetta var sannkallað stórhveli. Ég greiddi honum rothöggið í skyndi og þar með var bar- áttunni lokið. Ég leit á úrið mitt og sá að viðureignin hafði staðið yfir í f y4 klst. Vogin mín tók ekki nema 30 pund, og hann var meira en það. Ég vigtaði hann heima hjá árverðinum, og reyndist hann 32i/% pund og 42 þuml. á lengd. Stærsti fiskurinn á vertíðinni til þessa. Jæja, þetta er sagan um þessa tvo 30 pundara. Annar slapp, hinn náðist, en báðir veittu okkur mikla skemmtun. Heppni er snar þáttur í laxveiði. Um það er ég orðinn sannfærður nú. Hefði ég ekki verið svo óheppinn að krók- arnir slitnuðu af í hinum, hefði ég feng- ið tvo af þeirri stærð, sem alla veiði- menn dreymir um að fá einhvern tíma. Fjöldi þaulreyndra veiðimanna hefur ekki enn lifað þann dag, að fá 30 punda fisk. Árvörðurinn sagði okkur að hann hefði veitt 1400 laxa alls, en engan svona stóran; og eigandi veiðisvæðisins átti líka eftir að lifa þá stund. Ég held að við báðir, ofurstinn og ég, eiofum hér eftir heimtingu á að kallast laxveiðimenn. Hafi samstarf nokkru sinni átt sér stað milli veiðimanna, þá var það milli okkar þennan seinni veiðidag. Þið megið trúa því, að við vorum í sól- skinsskapi á heimleiðinni. Þýtt úr The Fishing Gnzette. PÓSTKRÖFUR um áskriftargjald Veiðimannsins fvrir árið 1955 voru sendar til kaupenda í byrjun nóvember. Ýmsir hafa ekki gert skil ennþá. Það eru vinsamleg tilmæli vor, að menn láti ekki dragast að leysa inn kröfurnar. Þessar 40 krónur er lítið fé, nú á tímum, og stafar drátturinn því vafalaust af gleymsku hjá flestum. Þess vegna er þeim fáu, sem ekki leystu inn kröfurnar í fyrra, send krafa fyrir áskriftargjaldi beggja áranna nú. Ricstj. 28 Veiðimaðurin.n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.