Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Síða 24

Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Síða 24
á bakkanum, kvarnirnar fyrir neðan foss- inn og brúna á milli þeirra, þar sem einhver stendur, sem veifar hvítum vasa- klút og kallar okkur til kvöldverðar. Skipstjórinn svarar frá bryggjunni og kallar til okkar — og þá verðum við að halda af stað. . .. Þýtt úr „Smá fisk og store fisk“. Línur og girni úr gerfiefnum. SKOÐANIR veiðimanna um línur og girni úr gerfiefnum eru skiptar, eins og um flest annað. Sumir hæla þeirn á hvert reipi, aðrir finna þeim flest til foráttu, og nokkrir reyna að meta með sanngirni kosti þeirra og galla. Dr. Axel F. Mathiesen, sem oft ritaði í norsk veiðirit um ýmiskonar efni, er snerta veiðiskapinn, segir sitt álit í stuttri grein í Fiskesport s.l. ár. Farast honum orð á þessa leið: „Nokkurt gagn gæti af því leitt, að menn skiptust á skoðunum hér í ritinu um hin nýju gerfigirni og línur. I.átum menn lýsa reynslu sinni og segja álit sitt á næloni og livað þau nú heita öll. Mörg skoðanaafbrigði eru til milli þeirrar hástemmdu hrifningar, sem þeim var tekið með í fyrstu og efasemdanna um ágæti þeirra í dag. Ég held að flestir veiðimenn noti þau með nokkurri gætni nú orðið. Þau hafa eflaust ýmsa mikla kosti. í fyrsta lagi eru þau ódýr. Línurnar fúna ekki á hjól- unum, og þegar menn hafa lært hnútana eru þeir sterkir og traustir. Þetta á hæði við flugugirnin og lín urnar, sem notaðar eru á kaststengur og við dorgveiðar. Samkvæmt minni reynslu hafa gerfi- línurnar einn aðalgalla — þær eru alltof teygjanlegar. Það er ógerningur að hregða eins fast við fiski á þær og silki- línurnar. Þetta verður þeim mun verra senr línan er grennri. í löngum köstum með léttri spinningsstöng, þegar notuð er lína af sverleikanum 15—20—25, eftir atvikum, kemur þráfaldlega fyrir, að öng- ullinn festist ekki og fiskurinn fær tíma til að spýta agninu út úr sér aftur. Á dorgi í sjó eftir urriða eða laxi nota menn oftast sverari línu, 35—50, en þar kernur líka livað eftir annað fyr- ir, að ekki er hægt að bregða nógu fljótt eða fast við. Þá er einnig oftast notuð lengri lína, 50—75 metrar, en við það aukast vitanlega áhrif teygjunnar. Ég hef reynt að bæta úr þessu með því að hafa önglana alltaf hárhvassa (ég geng ævinlega með litla þjöl í vasanum), Þetta hefur reynzt nokkur hót, en ég missi samt alltaf við og við fiska bæði um leið og ég hregð \ið þeim og eftir að ég er farinn að þreyta þá. \7ið skulum vona að framleiðendurnir finni bráðlega upp aðferð til þess að gera teygjulausar og dálítið stífari línur úr þessum gerfiefnum. Það hlýtur að vera hægt.“ ★ Hver er reynsla íslenzkra veiðimanna af þessum tækjum? Veiðimaðurinn birtir fúslega pistla um svona efni, ef menn senda þá. Einhver hlýtur að hafa eitt- hvað að segja. Ritstj. 22 Veiðimaðurin.n

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.