Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Qupperneq 31
DANSKUR METLAX.
HINN 1”). apríl 1951 veiddi D. C. Dinesen
frá Kanpmannahöfn 53 punda lax í Skjern Aa
á Jótlandi. Þetta var liængur, 136 cm. langur og
70 cm. að ummáli. Veiðimaðttrinn var tæpan hálf-
tíma að þreyta fiskinn og ná honum á land. Hann
stökk tvisvar og þegar hann kom niður voru
boðaföllin eins og kýr liefði steypst í vatnið. Það
\ar kalt í veðri þennan dag, loft skýjað og tals-
\erð gola. Maður einn, sem var viðstaddur þegar
fiskinum var landað, trúði ekki sínurn eigin aug-
utn og hrópaði: ,,Þetta er lygil“
Veiðita’kin voru: Farlow Uarrat stöng, 8,2 fct,
Damyl-lína 0,40 og gervisíli 30 gr. á þyngd.
Hreistrið sýndi að laxinn hafði verið 2 ár í
ánni og síðan 4 ár í sjó. Hann hefur því Jryngst
um 13 pund á ári til jafnaðar.
Stærsti lax, sem veiðst hafði áður í Danmörku,
var 48 pund, veiddur í sönm á.
Veiðivargar.
ÁRIÐ 1954 birtist í norska veiðirit-
inu Fiskesport smágrein eftir Trygge
Lökensgaard, veiðimálaráðunaut, í til-
eini af uppástungu, sem komið hafði
fram, um algera friðun fugla og dýra
á vissum svæðum í Noregi.
Honum lízt illa á hugmyndina og telur
að fiskistofninn í ám og vötnum gjaldi
þegar svo mikið afhroð af völdum ým-
issa vágesta, að ekki sé á það bætandi.
Hann tekur senr dæmi á eina, sem heitir
Vorma (Varmá). Hana leggur sjaldan
alveg, og þess vegna eru þar tilvalin
heimkynni fyrir otur, mink og fiskiönd
að vetrinum. En af þessu þrennu, segir
hann, að fiskiöndin sé lang stórvirkust.
Sama reynsla sé einnig í Kanada og
Bandaríkjununr. Ein önd getur grandað
ólrúlegum fjölda seiða á ári. Senr dæm'
nefnir hann, að í nraga eins fugls lrafi
fundist 6 laxaseiði og 2 smáurriðar.
Þeim senr kunnugir eru við veiðiár
hér á Islandi, ber sanran unr að fiskiönd-
in gratrdi ótrúlegum fjölda af seiðum.
Hún er áreiðanlesra stórtækari en mink-
o
urinn, þótt okkur sé verr við liann.
JÓLAKORTIN.
S.V.F.R. hefur nú á boðstólum fyrir
félagsmenn sína og aðra, senr þess kynnu
að óska, sex tegundir af jólakortum. Öll-
um veiðimönnum þykir gaman að fá jóla-
kveðju á korti, sem minnir þá á stund-
irnar \ ið árnar. Verum allir samtaka unr
að styðja okkar eigið félag, unr leið og
við sendunr svolítinn sólargeisla gegnum
skammdegismyrkrið til kunningja okkar
og vina, sem veiðiskap unna.
Veiðimaðurinn
29