Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Page 36
f
Látnir
félagar
Gunnar E. Benediktsson.
A n drés Svein björnsson.
Á þessu ári hafa látizt tveir félags-
menn í S.V.F.R., þeir Gunnar E. Bene-
diktsson, hæstaréttarlögmaður og Andrés
Sveinbjörnsson, hafnsögumaður.
Gunnar E. Benediktsson átti ásamt
Friðriki Þorsteinss., húsgagnasm.meist-
ara, frumkvæði að stofnun Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur og vann rnjög mikið
að undirbúningi félagsstofnunarinnar.
Hann var kjörinn fyrsti formaður félags-
ins, á stofnfundinum þ. 17. maí 1939,
og gegndi því starfi til aðalfundar árið
1942. Hann var alla tíð mjög áhugasam-
ur um mál félagsins og jafnan boðinn
og búinn til þess að leggja því lið, ef
til lians var leitað um ráð eða einhverja
aðra aðstoð. Hann var maður gætinn og
tillögugóður, flutti mál sitt með hóg-
værð og prúðmennsku og rasaði aldrei
um ráð fram. Hann hafði mikið yndi
af stangaveiði og skilning á gildi henn-
ar sem hollrar og þroskandi íþróttar.
Vinir og samstarfsmenn Gunnars
munu jafnan minnast hans sem góðs fé-
laga, og í sögu Stangaveiðifélags Reykja-
víkur verður nafn hans alltaf meðal
þeirra, sem rnikið er að þakka.
★
Andrés Sveinbjörnsson hafði einnig
lengi verið félagi í S.V.F.R. Hann var
búinn öllum þeim kostum, sem góðan
veiðimann prýða — traustur og vinfast-
ur, hlýr í viðmóti og gamansamur í hópi
kunningja og vina. Andrés var ókvæntur
og alla tíð til heimilis með móður sinni.
Komu mannkostir hans ekki hvað
sízt frarn í þeirri umhyggju, sem liann
sýndi henni. Varði hann mestu af tóm-
stundum sínurn heima hjá henni, einkan-
lega síðari árin, eftir að hún var orðin
ljlind, til þess að lesa fyrir liana og stytta
henni erfiða og dimma daga með öðr-
um hætti.
Veiðiferðirnar voru því hið eina, sem
34
Veiðimaðurinn