Bændablaðið - 03.11.2022, Side 1

Bændablaðið - 03.11.2022, Side 1
Verð á matvælum hækkaði um 1,6% milli mánaða og eru áhrif á vísitöluna 0,22%, en þar munar mestu um lambakjöt sem hækkaði um 16,2%. Nú í haust hækkaði afurðaverð til bænda um 35,5% sem skýrir að hluta til þá hækkun sem fram kemur á lambakjöti í vísitölumælingunni. Hluti hækkunarinnar skýrist síðan einkum af hækkun á kostnaði við slátrun og vinnslu. Verð á öðrum matvörun, eins og nauta-, svína- og fuglakjöti, hefur annaðhvort lækkað eða staðið í stað milli mánaða miðað við aðra matvöru. Sé horft til tólf mánaða tímabils hefur lambakjöt, nýtt og frosið, hækkað um 19,5% og kjötvörur að meðaltali um 17,7%. Hækkun smásöluverðs lambakjöts Unnsteinn Snorri Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Bænda- samtaka Íslands, segir að sú hækkun sem nú kemur fram á lambakjöti sé fyrst og fremst komin fram vegna hækkunar á afurðaverði til bænda. „Afurðaverð til bænda hækkaði um 35,5% í haust og segja má að þar með hafi bændur loksins fengið leiðréttingu á afurðaverði frá því að afurðaverð hrundi haustið 2016 og 2017. Frá því í janúar 2015 hefur vísitala neysluverðs hækkað um 33%. Með þeirri hækkun sem varð á lambakjöti nú í október hefur lambakjöt hækkað til jafns við vísitöluna. Hins vegar hefur afurðaverð til bænda ekki að fullu haldið í við þessa þróun. Það er kærkominn áfangi fyrir sauðfjárbændur að fá leiðréttingu á því verðhruni sem varð árin 2016 og 2017, en að sama skapi má segja að ekki hafi að fullu verið tekið tillit til þeirra miklu hækkana sem verið hafa á framleiðslukostnaði síðustu mánuði.“ Á hverju ári gefa Bændasamtök Íslands út reiknað afurðaverð fyrir lambakjöt sem byggja á gildandi verðskrá afurðastöðva hverju sinni. „Haustið 2022 var reiknað afurðaverð 748 krónur fyrir kílóið og hækkaði milli ára um 196 krónur eða 35,5% milli ára. Áætlað meðalverð á heilum lambsskrokk í smásölu í október árið 2021 var um 1.450 krónur á kílóið. Vísitala lambakjöts í smásölu hækkar um 24,4% yfir þetta sama tímabil þannig að meðalverð er því nú um 1.804 krónur á kílóið. Lambakjöt í smásölu hækkar því um 353 krónur fyrir kílóið milli ára. Hækkun til bænda er því 196 krónur á kílóið. Þannig að 55% af hækkun smásöluverðsins rennur til bænda en afgangurinn til sláturleyfishafa, kjötvinnslu, smásölu eða stjórnvalda í formi virðisaukaskatts.“ Annar kostnaður Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, reiknuð húsaleiga, hækkaði um 0,8%. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,4% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,2%. Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í október 2022, sem er 559,3 stig, gildir til verðtryggingar í desember 2022. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 11.043 stig fyrir desember 2022. Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2022, er 559,3 stig, miðað við að hún var 100 stig í maí 1988, og hækkar um 0,67% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 463,0 stig og hækkar um 0,65% frá september 2022. /VH 8 20. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 3. nóvember ▯ Blað nr. 621 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 33.000 ▯ Vefur: bbl.is Vísitala neysluverðs: Hækkun á lambakjöti í takt við afurðaverð Gjörbylting kynbótakerfisins 14 Útirækta lífrænt grænmeti og undirbúa sauðamjólkurframleiðslu 26 Ekki marktækur munur á tegundafjölbreytni Tómt mál er um að tala að efla kornrækt hér á landi ef engar plöntukynbætur eiga sér stað, segir Helgi Eyleifur Þorvaldsson. Fyrsta skrefið verður því að vera að hefja markvissar kynbætur á því korni sem við hyggjumst rækta. Helgi fer fyrir vinnuhópi sem teikna á upp stefnu og aðgerðir svo kornrækt geti fest hér rætur og orðið, til lengri tíma, að undirstöðuframleiðslugrein. Plöntukynbætur eru þjóðþrifamál, að sögn Hrannars Smára Hilmars- sonar, tilraunastjóra í jarðrækt hjá LbhÍ, sem einnig situr í hópnum. Allar siðaðar þjóðir stundi þær og kollegar þeirra á Norðurlöndum gapi yfir þeirri staðreynd að þær séu ekki til staðar hér á landi. „Plöntukynbætur eru munaðarlausar með öllu. Bændur líta til Landbúnaðarháskólans í þessum málum og ætlast réttilega til að þær séu stundaðar í einhverjum mæli. Verkefninu, plöntukynbótum, hefur ekki verið útdeilt. Það er engin stofnun eða fyrirtæki sem hefur þetta lögboðna hlutverk, það er ekki á föstum fjárlögum en eftirspurnin og krafan er til staðar.“ Sænska ríkið hefur stigið mikilvægt skref í framþróun plöntukynbóta með því að fjárfesta fyrir meira en milljarð króna til að koma á fót byltingarkenndri hátæknistöð sem mun geta kynbætt plöntur á háhraða með notkun erfðamengjaúrvals. Íslandi stendur til boða að taka þátt í verkefninu og bindur Helgi vonir við að fjármagn fáist hér á landi til að taka þátt í samstarfi og nýta aðstöðuna. Sjá nánar á bls. 20–21. Í Hænuvík í Patreksfirði reistu Guðjón Bjarnason og Óskar Jónasson steinbrú yfir ána sem rennur í gegnum dalinn. Þarna var gömul timburbrú sem var að hruni komin og sitja brúarendarnir á undirstöðum hennar. Í boganum er einungis grjót – ekkert sement eða járnabinding. Meðan á hleðslunni stóð komu þeir fyrir stoðum sem voru fjarlægðar að byggingu lokinni. Mynd / Ástvaldur Lárusson Sjá nánar á bls. 28–29. 50 60 70 80 90 100 110 120 130 140 150 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 11 1 3 5 7 9 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Vísital Matur Lamb Afurðaverð Vísitala neysluverðs (blá lína) frá janúar 2015 til október 2022. Auk þess sýnir hún þróun á undirvísitölunni 011 Matur (rauð lína) og 01124 Lambakjöt (grá lína). Einnig sýnir myndin þróun á reiknuðu afurðaverði dilkakjöts til bænda yfir sama tímabil (gul lína). Mikilvægi plöntukynbóta

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.