Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
kornræktar, byggð á hugsjón og
ástríðu einstaklings. „Jónatan
Hermannsson tók kynbætur á
byggi föstum tökum og gerði það á
kvöldin og um helgar, með smávegis
rannsóknarfé sem oft dugði eingöngu
til að setja olíu á þreskivél og flytja
þær. Hann náði ótrúlegum árangri,
við eigum honum mikið að þakka.“
Kornrækt og kynbætur var stórt
hugsjónamál Þorsteins Tómassonar,
fyrrum forstjóra RALA. Hann hóf
samstarf við kollega á Norðurlöndum
sem hefur síðan verið viðhaldið. Eitt
þeirra rótgrónu tenginga er aldeilis
að bera ávöxt í dag.
Samstarf LbhÍ við sænska
landbúnaðarsamvinnufélagið
Lantmännen byggði á samvinnu
Jónatans og Lars Gradin
byggkynbótafræðings fyrir Norður-
Svíþjóð en úr hans smiðju hafa
komið mörg yrki sem íslenskir
kornræktendur kannast við, eins og
Judit. Lantmännen, sem er alfarið
í eigu bænda, er nú að koma á fót
byltingarkenndri hátæknistöð,
sem mun geta kynbætt plöntur á
háhraða en þeir voru einna fyrstir
til að innleiða erfðamengjaúrval í
starfsemi sína.
Helgi segir sænska ríkið hafa
stigið þar mikilvægt skref í framþróun
plöntukynbóta, sem nauðsynlegt er að
stíga í ljósi loftslagsbreytinga. Aðlaga
þarf plöntur að breyttum aðstæðum
og það hratt. Alls var fjárfest fyrir
meira en milljarð króna til að byggja
þessa hátæknihvelfingu. Helgi segist
binda vonir við að fjármagn fáist hér
á landi til að taka þátt í samstarfi og
nýta aðstöðuna.
Hér er tilraun til að útskýra
vinnsluferli hinnar nýju hátækni-
stöðvar á einfaldan hátt:
Foreldralínum er víxlað saman
margfalt og DNA sýni eru fengin
úr afkvæmum og í þeim greindir
vísar sem stýra eftirsóknarverðum
eiginleikum, s.s. sjúkdómaþoli.
Afkvæmi paranna fara svo í háhraða
ræktun í hvelfingunni, þar sem þeim
er búin hámarksaðstæður til að ná
þroska á stuttum tíma. Afköstin eru
gríðarleg. Talið er að hægt sé að
ná sex uppskerum yfir einn vetur í
hvelfingunni, sem þýðir að við hverja
uppskeru er náð fram enn æskilegri
einstaklingum til ræktunar. Í hverri
kynslóð eru plönturnar erfðagreindar
og spáð fyrir um frammistöðu þúsunda
jafnvel tugþúsunda einstaklinga
með líkani erfðamengjaúrvals.
Frammistöðuþættirnir eru eiginleikar
sem eru stýrðir af þúsundum gena
eins og til dæmis uppskerumagn
og gæði. Að því loknu er er úrvalið
sent til Nýja-Sjálands til fjölgunar
og þaðan til Íslands, þar sem þær
verða reyndar í jarðræktartilraunum
víða um land. Tölulegar niðurstöður
mælinga og uppskeru á Íslandi munu
svo nýtast til að bæta enn frekar
erfðamengismódelið í Svíþjóð þar
sem ferillinn endurtekur sig svo.
En hvað þýðir þetta?
Á innan við áratug gætum við
fengið hingað til lands kynbætt yrki
fyrir séríslenskar aðstæður, sem
bændur gætu nýtt til að framleiða
hér innlent hveiti.
Það sætir reyndar furðu að
Ísland skuli geta tekið þátt í svo
byltingarkenndu og framsæknu
verkefni, enda dýrt í framkvæmd. Í
ljósi velvildar í samstarfi Lantmännen
og LbhÍ, undanfarin ár og áratugi,
hafa þeir boðið Íslandi að vera með.
Engum öðrum hefur verið boðið að
með í verkefninu að sögn Hrannars.
Rannsóknir í Gunnarsholti
Í sumar hefur LbhÍ verið með fjölda
rannsókna á korni í Gunnarsholti
á Rangárvöllum. Þar mátti sjá
yfir 1.000 tilraunareiti sem höfðu
fjölbreyttan tilgang.
Til að mynda mátti þar líta
tilraunaefnivið frá Lantmännen af 100
kynbótalínum sem voru prófaðar á
sama tíma hér, í Noregi, Finnlandi
og Svíþjóð. Þá héldu starfsmenn
Jarðræktarmiðstöðvarinnar úti
byggyrkjatilraunum á yrkjum sem
þegar eru á markaði hér á landi ásamt
íslenskum línum til samanburðar.
Einnig var þar úðunartilraun með
sveppa og illgresiseyði, til að kanna
áhrif varnarefna á kornið. Þá var áhrif
fljótandi áburðar frá sprotafyrirtækinu
Atmonia borin saman við hefðbundinn
áburð. Önnur tilraun snýst um
ræktun á nöktu byggi sem aðlagað
er íslenskum aðstæðum ásamt stóru
safni fjölbreytts byggstofns sem var
settur saman í samnorrænu verkefni
styrktu af Norrænu ráðherranefndinni
til þess að rannsaka flýti í byggi og
allir þeir einstaklingar hafa þegar
verið erfðagreindir með öflugri
örflögu. Niðurstöðurnar leggja
grunn að erfðamengjaúrvali fyrir
byggkynbætur á Íslandi.
Vonast eftir sérstökum
rammasamningi
Þverpólitísk samstaða virðist vera
um að efla kornrækt á Íslandi. Ef rétt
er haldið á spöðunum, fjármagn til
framkvæmda og framþróunar fæst
segja þeir Helgi og Hrannar að ný
sviðsmynd geti blasið við þjóðinni
innan áratugar.
Land sem hefur ekki þótt
hagkvæmt til grasræktar gæti nýst
vel til kornræktar. Við gætum orðið
sjálfbær í byggi og ræktað verulegan
hluta af öllum höfrum og við ættum
að leggja mikla áherslu á hveiti
líka. Ný gróskumikil atvinnugrein
gæti blómstrað, sem búgrein bænda
og nokkurra stórræktenda. Allt
bendir til þess að til lengri tíma
geta þær framfarir, sem verða af
uppbyggingu innviða í kornrækt,
orðið þjóðhagslega hagkvæmar. Þá
eru óræddar afleiður eins og jákvæð
umhverfisáhrif og atvinnuuppbygging
á landsbyggðinni.
Ákvörðunin og fjármögnunin
liggur hjá ríkinu. „Menn mega ekki
fara að bera fyrir sig einhverjum
pólitískum ómöguleika. Kornræktin
verður að fá sjálfstætt fé, sérstaklega
í byrjun, ef meiningin er að gera
alvöru úr þessu. Það sýnir saga
annarra þjóða. Það má ekki gerast
að búgreinar fari að bítast um
fjármagn þegar búvörusamningar
verða teknir upp. Ég óttast að ef
það yrði gæti ekkert orðið úr þessu.
Það er sjálfsagt að endurskoða kerfi
hverrar greinar, gera þau skilvirkari
og hagkvæmari, en nauðsynlegt
er að tryggja starfsskilyrði hverrar
greinar fyrir sig, þá einkum afkomu
bænda – sem er eitt af aðalatriðum
í fæðuöryggisskýrslunni. Því vona
ég að sérstakur rammasamningur
verði gerður fyrir kornræktina ef
raunverulegur pólitískur vilji er
fyrir því að greininni vaxi fiskur um
hrygg,“ segir Helgi.
Saga kornræktar í Noregi er
áhugaverð í samhengi umfjöllunar
um gríðarlega möguleika Íslands til
uppbyggingar á búgreininni.
Í byrjun síðustu aldar var kornrækt
í Noregi brot af heildarnotkun. Það
breyttist þegar leið á öldina. Árið
1930 ákvað norska ríkið að taka yfir
allan innflutning og kaup á korni og
selja það svo áfram til framleiðenda.
Á sjötta áratugnum var tekin sú
ákvörðun að efla kornrækt í landinu.
Þrátt fyrir að aðeins 2,7% af landsvæði
Noregs sé tækt til jarðræktar var
besta ræktunarsvæðið, undirlendi í
Suður-Noregi, tekið undir kornrækt.
Veittir voru styrkir til að færa túnrækt
þaðan og tók þá mjólkurframleiðsla
og kvikfjárrækt á land þar sem
grasrækt er hagkvæm en síður
akuryrkja. Kornræktin byggðist
upp með aðstoð jarðræktarstyrkja
og fór að dafna sunnan til í landinu.
Ríkið rak kornsamlög sem keypti
allt korn af bændum. Samhliða var
farið að vinna að plöntukynbótum og
ríkið rekur plöntukynbótamiðstöðina
Graminor, sem enn þann dag í dag
heldur úti öllum helstu kynbótalínum
fyrir yrki í jarðrækt og garðyrkju;
korn, kartöflur, jarðarber, epli og fleira
. Árið 1992 var gerður samningur við
fyrirtækið Felleskjøpet um að sjá um
kornsamlögin, sem rekin eru víða
um land.
Í dag eru Norðmenn rúmlega sjálfum
sér nógir um bygg, þeir rækta um
30-70% af öllu sínu hveiti og hlutfall
hafra á markaði er yfir 90% innlend
framleiðsla.
Norska landbúnaðarstefnan miðar
að því að halda uppi framleiðslu um
allt land og nýta hvert svæði út frá
þeirra náttúrulegu eiginleikum. Eins
og áður sagði er aðeins tæplega 3%
af landsvæði Noregs tækt til hvers
lags jarðræktar, eða sem nemur
9.860 ferkílómetrum.
Eingöngu þriðjungur þess svæðis
er hentugur í kornrækt. Samkvæmt
tölum hins opinbera var 68% af
landbúnaðarsvæði Noregs notað
fyrir fóðurræktun (þ.á m. túnrækt),
30% í kornrækt, kartöflur þöktu 1,2%
af svæðinu og grænmeti, ávextir og
ber minna.
Til samanburðar er 18,6% af
landsvæði Íslands flokkað sem
landbúnaðarland, eða 18.720 fer-
kílómetrar samkvæmt tölum
The World bank og í skýrslunni
Fæðuöryggi á Íslandi kemur fram
að allt að 600.000 hektara hafi verið
áætlað sem gott ræktunarland hér
á landi.
Uppgangur kornræktar í Noregi
forsenda kornræktar