Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 27

Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 Nútíma landbúnaður krefst mikils vélakosts. Gæðasmurefni skipta öllu máli fyrir virkni og endingu véla. Olís veitir ráðgjöf um olíu- og smurefnanotkun fyrir allar landbúnaðarvélar. Ráðgjafar Olís veita allar nánari upplýsingar í síma 515 1100 eða pontun@olis.is. Svo allt gangi smurt í vetur KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is LOFTPRESSUR Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika. Við bjóðum upp á allar stærðir og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum. Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi. Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu. Helluhraun 4, Hafnarfirði sími 565 2727 & 892 7502 www.rag.is SERES 3 kemur vel útbúinn. Verð kr. 5.350.000 VIÐ AUGLÝSUM ALDREI „VERÐ FRÁ“ Óumflýjanleg þróun í landbúnaði Í styrkumsókninni til matvæla- ráðuneytisins er lýsing á markmiðum verkefnisins. Þar kemur fram að ætlunin sé að þróa og byggja upp aðstöðu til moltugerðar úr lífrænum úrgangi og miðla hagnýtri þekkingu um slíka moltugerð. Markmiðið er einnig að hanna og útbúa aðstöðu til moltugerðar þar sem notaður verður lífrænn úrgangur eða áburðarefni sem ónýtt eru í nærsamfélaginu og eru jafnframt samþykkt sem áburðarefni í lífrænni ræktun. Væntingar umsækjenda séu að verkefnið stuðli ekki aðeins að vistvænni búrekstri og vistvænni nýtingu lífræns úrgangs, heldur muni einnig sýna fram á hagkvæmni þess að nýta þann lífræna úrgang sem aðgengilegur er á hverjum stað sem áburðarefni í garðyrkju. Fyrirhugað er að nota verkefnið til fræðslu og kynningar um nýtingu lífræns hráefnis. Ætlunin sé að byggja upp aðstöðu til moltugerðar sem annar að minnsta kosti 70 tonnum af tilbúinni moltu. Notast verður við þá aðferð að blanda fiskúrgangi við hrossatað og hálm. Gera þurfi tilraunir með hlutfall þessara efna til þess að fá rétta blöndu milli kolefnis og köfnunarefnis. Í umsókninni kemur fram að fiskislóg innihaldi mikið af köfnunarefni á meðan hálmurinn leggi til kolefnið. Til þess að halda hitamynduninni hæfilegri þurfi að bylta haugnum og vökva hann. Með aðferðinni, sem sé smækkuð útgáfa af moltugerð hjá Moltu ehf. og Terra, verði hægt að umbreyta fiskislóg á þremur til fjórum vikum í næringarríkan og örveruríkan jarðveg, sem verður notaður sem áburðarefni í garðyrkju. Þar kemur enn fremur fram að þegar farið var af stað með grænmetisræktun á Syðra-Holti var gert ráð fyrir að nota moltu frá Moltu ehf. á Akureyri. Í ljós kom að moltan var ekki samþykkt af vottunarstofunni TÚN til lífrænnar ræktunar þar sem í henni reyndist vera of hátt gildi af kopar og zinki auk þess sem mikið var af plastögnum í moltunni. Mikið hafi verið rannsakað og ritað um nýtingu lífrænna áburðarefna sem falla til og eru lítt eða ekki nýtt. Til mikils sé að vinna að koma sem mestu af lífrænum úrgangi aftur inn í hringrásina og sjá umsækjendur tækifæri til að sýna í verki óumflýjanlega þróun í landbúnaði framtíðarinnar, bæði garðyrkju og akuryrkju. Þá er þess getið að umsækjendur vilji freista þess að sýna fram á hagkvæmni þess að nýta ýmis lífræn áburðarefni í garðyrkju þar sem ávinningurinn er vistvænni landbúnaður og vistvænni nýting úrgangshráefna. Umsækjendur vilji þannig hvetja garðyrkjubændur, sem og aðra bændur, til þess að líta til þeirra áburðarefna sem falla til í nærumhverfinu og nýta þau til þess að byggja upp frjósaman og örveruríkan jarðveg. Nýlagður haugur sem inniheldur hálm, hrossatað, gamalt hey og fiskislóg. Eiríkur segir að af þessu sé engin ólykt, þetta ilmi bara vel. Verið að bylta safnhaugnum sem gert er á fjögurra daga fresti í 4-5 skipti. Markmiðið er að halda 50-60 gráðu hita í haugnum í a.m.k. tvær vikur. Þá er efnið orðið vel niðurbrotið, illgresisfræ dautt og fjölbreytt örverulíf til staðar.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.