Bændablaðið - 03.11.2022, Page 32

Bændablaðið - 03.11.2022, Page 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 Neysla á kannabis er lögleg í 19 ríkjum Bandaríkja Norður- Ameríku og sé hún samkvæmt læknisráði í 37 ríkjum. Í mörgum ríkja BNA þar sem kannabis er enn þá ólöglegt hefur neysla þess verið afglæpavædd. Neysla kannabis er lögleg í Kanada. Stjórnvöld í Þýskalandi hafa tilkynnt að lögleiða eigi kannabis í landinu og löngu orðið tímabært að endurskoða lög um það hér á landi. Flestir sem láta sig slíkt varða telja löngu tímabært að gefa neyslu á kannabis frjálsa og reynslan þar sem slíkt hefur verið gert yfirleitt góð. Síðasta stóra skrefið í þessu máli er að Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur lýst yfir vilja sínum til að lögleiða notkun kannabis í öllum ríkjum Norður- Ameríku. Þýsk stjórnvöld tilkynntu fyrir stuttu að áætlun lægi fyrir um lögleiðingu kannabis í landinu. Heilbrigðisráðherra Þýskalands hefur afhenti ríkisstjórn landsins minnisblað sem byggt er á kosningaloforði ríkisstjórnar jafnaðarmanna, græningja og frjálslyndra demókrata sem myndi leyfa fullorðnum einstaklingum að eiga í fórum sínum 20 til 30 grömm til einkaneyslu. Neysla á kannabis Samkvæmt flokkun grasafræðinnar er Cannabis sativa ein tegund sem skiptist í tvær undirtegundir, C. sativa og C. indica, eftir að plantan þróaðist við ræktun í mismunandi áttir frá upprunalegum heim- kynnum sínum í Mið-Asíu og við Himalajafjöll. Undirtegundin C. sativa þróaðist í norður frá fjöllunum til textílgerðar en C. indica í suður sem vímugjafi. Talið er að hermenn Napóleons hafi flutt þann sið, að reykja plöntuna, með sér til Evrópu eftir stríð þeirra í Egyptalandi þar sem slíkar reykingar voru vel þekktar. Vinsældir laufsins jukust og neysla á því breiddist út eins og eldur í sinu. Í Bandaríkjunum varð kannabis snemma vinsælt meðal svartra tónlistarmanna en litið hornauga af hvítum valdamönnum sem kölluðu það meðal annars ill- gresi andskotans. Kannabis var bannað þar árið 1937. Viðhorf til kannabis í Bandaríkjunum hafa breyst mikið undanfarin ár og í dag er neysla þess leyfð eða litið fram hjá hanni í flestum ríkjum. Árið1974 var á Alþingi ákveðið að flokka kannabisefni sem ávana- og fíkniefni og varð kannabis-plantan þar með ólögleg hér á landi. Iðnaðarhampur leyfður Árið 2020 veitti þáverandi heilbrigðisráðherra undanþágu til að hægt væri að rækta iðnaðarhamp hér á landi. Heimildin er háð skilyrðum og takmörkunum svo tryggt sé að ekki verði fluttar inn eða ræktaðar plöntur sem innihalda THC í nýtanlegu magni, eða að hámarki 0,2%, sem er í samræmi við reglur ESB. Ræktun iðnaðarhamps hefur gengið ágætlega hér á landi síðan þá og í dag eru á boðstólum ýmsar afurðir sem unnar eru úr honum. Ræktun lyfjahamps Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram á síðasta ári þingsályktunartillögu um að Alþingi álykti að fela heilbrigðisráðherra í samráði við ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar ráðherra að setja á fót starfshóp sem hefur það hlutverk að útbúa frumvarp sem heimilar garðyrkjufyrirtækjum að sækja um leyfi fyrir ræktun lyfjahamps til kannabisræktunar og til framleiðslu og dreifingu á kannabislyfjum í lækningaskyni. Ásmundur sagði í samtali við blaðamann Bændablaðsins fyrir skömmu að hann mundi leggja tillöguna fram aftur fljótlega ásamt nýjum upplýsingum sem tengdust henni. Gaddavírinn er dýr Tillaga Ásmundar er löngu tímabær enda fullkomlega óeðlilegt að kannabis með THC innihaldi sem getur linað sársauka og nýst í hjúkrunarskyni verði leyfilegt hér. Það sem helst skyggir á tillöguna er að einstaklingum sem það kjósa verði ekki gefið frjálst að rækta plöntuna og nýta afurðir hennar að vild. Reynslan í Danmörku, þar sem neysla á lyfjahampi er leyfileg samkvæmt læknisráði, hefur sýnt að lyfjahampur sem ræktaður er bak við gaddavír er of dýr fyrir marga sjúklinga. Margir þeirra hafa því snúið sér aftur að götudílerunum sem selja á betra verði, eða jafnvel farið að pukrast með að rækta plöntuna sjálfir í felum og því glæpamenn. /VH Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • Nýtt! vefverslun: www.skorri.is UTAN ÚR HEIMI Frá og með 7. nóvember næst- komandi er öllum alifugla búum á Englandi skylt að hafa alla fugla innan dyra þar til annað verður tilkynnt. Ástæða þess er að útbreiðsla fuglaflensu hefur aldrei verið meiri á Bretlandseyjum. Í nýliðnum október greindust yfir 200 tilfelli af fuglaflensu, á alifuglabúum og í villtum fuglum, á Bretlandseyjum, sem er mestur fjöldi tilfella sem greinst hefur í einum mánuði til þessa. Vegna hraðrar útbreiðslu flensunnar hafa yfirvöld ákveðið að fyrirskipa öllum fuglahöldurum, bæði alifugla og fugla sem gæludýr, að halda þeim innandyra. Tryggja þarf velferð dýranna innandyra Yfirdýralæknir á Bretlandseyjum hvetur forstöðumenn alifuglabúa til að gera ráðstafanir til að tryggja velferð dýranna innandyra og að hafa samband við dýralækna komi upp einhver vandamál í tengslum við nýju reglurnar. Þrátt fyrir að fuglaflensa sé mjög smitandi meðal fugla hafa yfirvöld gefið út að hún sé ekki hættuleg mönnum. Starfsmaður kjúklingabús á Spáni greindist með fuglaflensu í lok september. Þar með hefur hún tvisvar greinst í mönnum í Evrópu, en fyrra skiptið var á Bretlandi í desember 2021. Auk þess sem flensan hefur greinst í starfsmönnum fuglabúa í Asíu. Í öllum tilfellum hafa hinir smituðu fengið veiruna við meðhöndlun á sýktum fuglum. Í yfirlýsingu yfirdýralæknis á Bretlandseyjum segir að útbreiðsla flensunnar í landinu hafi aldrei verið meiri en núna og að vænlegasta leiðin til að ráða niðurlögum hennar sé með því að aðgreina alifugla sem mest frá villtum fuglum og að halda alifugla í sem mest aðgreindum hópum til að koma í veg fyrir smit breiðst út komi það upp. Líklegt að verð á alifuglakjöti hækki Talsmenn alifuglaframleiðenda á Bretlandseyjum hafa í kjölfar nýju reglnanna varað við að þær geti leitt til skorts á kalkúnakjöti og hækki verð um næstu jól enda hefur nú þegar þurft að farga yfir þremur milljónum kalkúna vegna flensunnar undanfarnar vikur. /VH Löngu er orðið tímabært að endurskoða lög um ræktun lyfjahamps hér á landi. Mynd / thenevadaindependent.com Ræktun og neysla lyfjahamps: Löglegt í 19 ríkjum BNA og í Kanada Fuglaflensa: Skylda að hafa alifugla innandyra Talsmenn alifuglaframleiðenda á Bretlandseyjum hafa varað við að skortur gæti orðið á kalkúnakjöti og að verð á því hækki fyrir næstu jól. Mynd / chroniclelive.co.uk/ ... Vinsældir laufsins jukust og neysla á því breiddist út eins og eldur í sinu ...“

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.