Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
Neysla á kannabis er lögleg í
19 ríkjum Bandaríkja Norður-
Ameríku og sé hún samkvæmt
læknisráði í 37 ríkjum.
Í mörgum ríkja BNA þar sem
kannabis er enn þá ólöglegt hefur
neysla þess verið afglæpavædd.
Neysla kannabis er lögleg í
Kanada. Stjórnvöld í Þýskalandi
hafa tilkynnt að lögleiða eigi
kannabis í landinu og löngu orðið
tímabært að endurskoða lög um
það hér á landi.
Flestir sem láta sig slíkt varða
telja löngu tímabært að gefa neyslu
á kannabis frjálsa og reynslan þar
sem slíkt hefur verið gert yfirleitt
góð. Síðasta stóra skrefið í þessu
máli er að Joe Biden, forseti
Bandaríkjanna, hefur lýst yfir
vilja sínum til að lögleiða notkun
kannabis í öllum ríkjum Norður-
Ameríku.
Þýsk stjórnvöld tilkynntu fyrir
stuttu að áætlun lægi fyrir um
lögleiðingu kannabis í landinu.
Heilbrigðisráðherra Þýskalands
hefur afhenti ríkisstjórn landsins
minnisblað sem byggt er á
kosningaloforði ríkisstjórnar
jafnaðarmanna, græningja og
frjálslyndra demókrata sem myndi
leyfa fullorðnum einstaklingum
að eiga í fórum sínum 20 til 30
grömm til einkaneyslu.
Neysla á kannabis
Samkvæmt flokkun grasafræðinnar
er Cannabis sativa ein tegund sem
skiptist í tvær undirtegundir, C.
sativa og C. indica, eftir að plantan
þróaðist við ræktun í mismunandi
áttir frá upprunalegum heim-
kynnum sínum í Mið-Asíu og
við Himalajafjöll. Undirtegundin
C. sativa þróaðist í norður frá
fjöllunum til textílgerðar en C.
indica í suður sem vímugjafi.
Talið er að hermenn Napóleons
hafi flutt þann sið, að reykja
plöntuna, með sér til Evrópu eftir
stríð þeirra í Egyptalandi þar sem
slíkar reykingar voru vel þekktar.
Vinsældir laufsins jukust og
neysla á því breiddist út eins og
eldur í sinu.
Í Bandaríkjunum varð kannabis
snemma vinsælt meðal svartra
tónlistarmanna en litið hornauga
af hvítum valdamönnum sem
kölluðu það meðal annars ill-
gresi andskotans. Kannabis var
bannað þar árið 1937. Viðhorf til
kannabis í Bandaríkjunum hafa
breyst mikið undanfarin ár og í
dag er neysla þess leyfð eða litið
fram hjá hanni í flestum ríkjum.
Árið1974 var á Alþingi ákveðið að
flokka kannabisefni sem ávana- og
fíkniefni og varð kannabis-plantan
þar með ólögleg hér á landi.
Iðnaðarhampur leyfður
Árið 2020 veitti þáverandi
heilbrigðisráðherra undanþágu til
að hægt væri að rækta iðnaðarhamp
hér á landi. Heimildin er háð
skilyrðum og takmörkunum svo
tryggt sé að ekki verði fluttar
inn eða ræktaðar plöntur sem
innihalda THC í nýtanlegu
magni, eða að hámarki 0,2%,
sem er í samræmi við reglur ESB.
Ræktun iðnaðarhamps hefur gengið
ágætlega hér á landi síðan þá og í
dag eru á boðstólum ýmsar afurðir
sem unnar eru úr honum.
Ræktun lyfjahamps
Ásmundur Friðriksson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, lagði fram á
síðasta ári þingsályktunartillögu
um að Alþingi álykti að fela
heilbrigðisráðherra í samráði við
ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunar ráðherra að setja á fót
starfshóp sem hefur það hlutverk
að útbúa frumvarp sem heimilar
garðyrkjufyrirtækjum að sækja um
leyfi fyrir ræktun lyfjahamps til
kannabisræktunar og til framleiðslu
og dreifingu á kannabislyfjum í
lækningaskyni.
Ásmundur sagði í samtali við
blaðamann Bændablaðsins fyrir
skömmu að hann mundi leggja
tillöguna fram aftur fljótlega ásamt
nýjum upplýsingum sem tengdust
henni.
Gaddavírinn er dýr
Tillaga Ásmundar er löngu tímabær
enda fullkomlega óeðlilegt að
kannabis með THC innihaldi
sem getur linað sársauka og nýst
í hjúkrunarskyni verði leyfilegt hér.
Það sem helst skyggir á tillöguna
er að einstaklingum sem það kjósa
verði ekki gefið frjálst að rækta
plöntuna og nýta afurðir hennar
að vild.
Reynslan í Danmörku, þar sem
neysla á lyfjahampi er leyfileg
samkvæmt læknisráði, hefur sýnt
að lyfjahampur sem ræktaður er bak
við gaddavír er of dýr fyrir marga
sjúklinga. Margir þeirra hafa því
snúið sér aftur að götudílerunum
sem selja á betra verði, eða jafnvel
farið að pukrast með að rækta
plöntuna sjálfir í felum og því
glæpamenn. /VH
Skorri ehf • Bíldshöfði 12 • 110 Rvk • 577-1515 • Nýtt! vefverslun: www.skorri.is
UTAN ÚR HEIMI
Frá og með 7. nóvember næst-
komandi er öllum alifugla búum
á Englandi skylt að hafa alla
fugla innan dyra þar til annað
verður tilkynnt. Ástæða þess er að
útbreiðsla fuglaflensu hefur aldrei
verið meiri á Bretlandseyjum.
Í nýliðnum október greindust
yfir 200 tilfelli af fuglaflensu, á
alifuglabúum og í villtum fuglum,
á Bretlandseyjum, sem er mestur
fjöldi tilfella sem greinst hefur í
einum mánuði til þessa. Vegna
hraðrar útbreiðslu flensunnar hafa
yfirvöld ákveðið að fyrirskipa öllum
fuglahöldurum, bæði alifugla og
fugla sem gæludýr, að halda þeim
innandyra.
Tryggja þarf velferð dýranna
innandyra
Yfirdýralæknir á Bretlandseyjum
hvetur forstöðumenn alifuglabúa
til að gera ráðstafanir til að tryggja
velferð dýranna innandyra og að hafa
samband við dýralækna komi upp
einhver vandamál í tengslum við
nýju reglurnar.
Þrátt fyrir að fuglaflensa sé mjög
smitandi meðal fugla hafa yfirvöld
gefið út að hún sé ekki hættuleg
mönnum. Starfsmaður kjúklingabús
á Spáni greindist með fuglaflensu í
lok september. Þar með hefur hún
tvisvar greinst í mönnum í Evrópu,
en fyrra skiptið var á Bretlandi
í desember 2021. Auk þess sem
flensan hefur greinst í starfsmönnum
fuglabúa í Asíu. Í öllum tilfellum
hafa hinir smituðu fengið veiruna
við meðhöndlun á sýktum fuglum.
Í yfirlýsingu yfirdýralæknis á
Bretlandseyjum segir að útbreiðsla
flensunnar í landinu hafi aldrei verið
meiri en núna og að vænlegasta leiðin
til að ráða niðurlögum hennar sé með
því að aðgreina alifugla sem mest frá
villtum fuglum og að halda alifugla
í sem mest aðgreindum hópum til
að koma í veg fyrir smit breiðst út
komi það upp.
Líklegt að verð á alifuglakjöti
hækki
Talsmenn alifuglaframleiðenda á
Bretlandseyjum hafa í kjölfar nýju
reglnanna varað við að þær geti leitt
til skorts á kalkúnakjöti og hækki
verð um næstu jól enda hefur nú
þegar þurft að farga yfir þremur
milljónum kalkúna vegna flensunnar
undanfarnar vikur. /VH
Löngu er orðið tímabært að endurskoða lög um ræktun lyfjahamps hér á landi. Mynd / thenevadaindependent.com
Ræktun og neysla lyfjahamps:
Löglegt í 19 ríkjum
BNA og í Kanada
Fuglaflensa:
Skylda að hafa alifugla
innandyra
Talsmenn alifuglaframleiðenda á Bretlandseyjum hafa varað við að skortur
gæti orðið á kalkúnakjöti og að verð á því hækki fyrir næstu jól.
Mynd / chroniclelive.co.uk/
... Vinsældir
laufsins jukust
og neysla á því
breiddist út eins og
eldur í sinu ...“