Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 39

Bændablaðið - 03.11.2022, Qupperneq 39
39Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 SNJÓKEÐJUR Hafðu samband, kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna isfell.is • sími 520 0500 ÞEKKING • ÞJÓNUSTA • GÆÐI Úrval af þægilegum og endingagóðum sokkum. 40 sölustaðir, hafðu samband til að fá upplýsingar um sölustað í nágrenni við þig. Sokka Kompaníið ehf. 230 Reykjanesbær - info@socks2go.eu - gsm: 831 8400 - www.socks2go.is KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10 104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is ALLAR STÆRÐIR AF AJ RAFSTÖÐVUM Stöðvar í gám Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika. Þetta tímabil hjá kvígum er ekki síður mikilvægt en alltof algengt er að kvígur búi við mun slakari aðbúnað og fóðrun en kýr í sömu stöðu. Kvígurnar eru enn að vaxa og vegna stærðar fóstursins þá geta þær oft ekki náð að éta eins vel og eldri og fullvaxta kýr. Plássið er einfaldlega ekki til staðar vegna stærðar kálfsins. Auk þess getur það haft áhrif á átið að kvígurnar skipta um fyrstu tennur þegar þær eru eins og hálfs árs til tveggja ára og næstu tennur þegar þær eru u.þ.b. tveggja og hálfs árs. Þetta hefur áhrif á át þeirra, bæði þegar þær eru komnar undir það að bera og þegar þær eru á fyrsta mjaltaskeiði. Vegna þessa þarf að veita þeim enn betri aðbúnað og athygli, svo þær haldi áfram að vaxa og dafna og verði þar með góðar kýr. Í Danmörku er talið að hlutfall dauðfæddra kálfa sé nátengt geldstöðunni og aðbúnaðinum á geldstöðunni. Þar þykir hafa verið sýnt fram á að ef kýr lendir í álagi á geldstöðunni þá aukist magn streituvaka í blóði þeirra sem hefur áhrif á kálfinn í móðurkviði. Þetta getur jafnvel leitt til ótímabærs burðar og jafnvel haft áhrif á lífsþrótt kálfsins. Vegna þessa er lögð mikil áhersla á góðan aðbúnað á þessu tímabili og sérstaklega hjá kvígum. Þá er aldrei ráðlagt að vera með kvígur og eldri kýr saman í geldstíu, vegna hættu á því að það valdi óþarfa streitu, sérstaklega hjá kvígunum. Ungviðið Auk þess sem kýrin sjálf þarf að jafna sig er geldstaðan sjálf afar mikilvæg fyrir kálfinn og framtíðarhorfur hans. Það er á þessu tímabili sem mótefnin myndast í broddmjólkinni og er magn mótefna, og þar með gæði broddsins, háð samsetningu fóðursins sem kýrin étur á geldstöðunni. Það er því mikilvægt að gefa kúnum gott fóður og góða próteingjafa ásamt réttri steinefnablöndu fyrir kýr í geldstöðu. Þannig er dönskum kúabændum ráðlagt að horfa sérstaklega til steinefnablöndunnar sem er gefin síðustu vikurnar fyrir burðinn, en sýnt hefur verið fram á að það hefur ekki einungis góð áhrif á lága tíðni bæði dulins og sýnilegs doða en einnig á lífskraft kálfsins við fæðingu. Þá tryggir rétt jafnvægi á próteinum og orku í fóðrinu að broddurinn verður af réttum gæðum við fyrstu mjaltir. Mjaltirnar Í burðaraðstöðunni ætti að vera hægt að mjólka kúna eins fljótt og auðið er eftir burðinn. Það eru tvær megin ástæður fyrir þessu: Sú fyrri er að því fyrr sem kýrin er mjólkuð, þeim mun betri verða gæði broddsins þar sem broddurinn þynnist út þegar kýrin byrjar að framleiða mjólkina. Hin ástæðan fyrir því er sú að þarmar kálfsins geta tekið upp mikið magn mótefna fyrstu tímana eftir fæðingu en svo hægist hratt á þessari virkni þarmanna. Því fyrr sem kálfurinn fær broddinn, því betra verður það fyrir líf og heilsu hans. Þýtt og endursagt upp úr Goldkoens ABC eftir Lars Kousgaard, Magasin Kvæg, júní 2016. Áður en kýrin er gelt upp er mikilvægt að taka spenasýni til þess að geta metið hvort meðhöndla eigi með geldstöðulyfjum eða ekki.“

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.