Bændablaðið - 03.11.2022, Page 42

Bændablaðið - 03.11.2022, Page 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022 Orðin sjálfbær og sjálfbærni hafa verið áberandi í umræðunni á síðustu árum. Þessi hugtök eru gjarnan sett í samhengi við nýtingu náttúruauðlinda eða umhverfismál, en hafa jafnframt gildi í félagslegu og hagrænu samhengi. Sjálfbærni má skilgreina sem lokað kerfi þar sem verið er að mæta þörfum samtímans með breytingum og/ eða vexti í umhverfi, efna- hagslífi og/eða samfélagi án þess að fara út fyrir endurnýjanleg takmörk á nýtingu auðlinda og án þess að draga úr möguleikum komandi kynslóða. Landbúnaður er ekki undanskilinn því að tengjast hugtökum um sjálfbærni. Algengt er að sjá orðin sjálfbær landbúnaður eða sjálfbærni í landbúnaði á prenti og í orði t.d. í skýrslum, blaðagreinum og viðtölum ýmiss konar, en einnig má þau finna í lögum og reglugerðum og pólitískum stefnumótunum. Það kemur m.a. skýrt fram í landbúnaðarstefnunni „Ræktum Ísland“, þar sem strax á fyrstu síðum er talað um „framtíð og sjálfbærni íslensks landbúnaðar“, og í landbúnaðarkafla stefnuskrár núverandi ríkisstjórnar segir að við endurskoðun búvörusamninga verði lögð áhersla á að tryggja fæðuöryggi með því að styrkja og fjölga stoðum landbúnaðar á grunni sjálfbærrar nýtingar í þágu loftslagsmála, umhverfis- og náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun. Þá segir í skýrslum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) að sjálfbær landbúnaður sé eitt af lykilaðgerðum til að tryggja fæðuöryggi í heiminum. Jafnframt hefur almennt verið viðurkennt af helstu stofnunum heims að sjálfbær landbúnaður sé ein af lykillausnum í loftslagsmálum. Af ofangreindu má sjá og draga þá ályktun að öll skynsemi liggur í að stunda sjálfbæran landbúnað, sérstaklega á tímum eins og í dag þegar hækkanir á aðkeyptum aðföngum, t.d. áburði og olíu, hafa verið gríðarlega miklar undanfarna mánuði. Einnig er á sama tíma verið að senda skilaboð til bænda þar sem þeir eru hvattir til að framleiða matvæli til að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar. Þá hefur líka verið lögð mikil áhersla á þátttöku bænda í aðgerðum í loftslagsmálum, en þátttakendur í verkefninu Loftslagsvænum landbúnaði eru hvattir til að auka sjálfbærni í búrekstri sínum. Þrjár stoðir sjálfbærs landbúnaðar Sjálfbær landbúnaður byggir á heildstæðri nálgun þar sem horft er til þriggja meginstoða hvað varðar markmið og áherslur. Þessar þrjár stoðir fléttast hver um aðra og tengjast innbyrðis þannig að þegar hriktir í einni stoð verða hinar samhliða veikari. Þessar stoðir eru: • Umhverfi • Samfélag • Búrekstur Jafnvægi milli þessara stoða ýtir undir seiglu í náttúru, samfélagi og rekstrarumhverfi bænda. Umhverfisstoðin: Þessi stoð er sennilega hvað best kynnt bæði á prenti og í orði og oft það eina sem menn tengja við í umræðunni um sjálfbæran landbúnað. Með sjálfbærum landbúnaði er lögð áhersla á að nýting náttúrulegra auðlinda sé í jafnvægi, vistkerfi beri ekki skaða af nýtingunni og náttúrulegir ferlar viðhaldi eðlilegri hringrás og endurnýjun. Notkun stuðli að því að líffræðilegur fjölbreytileiki í umhverfinu viðhaldist og auðlindir verði ekki ofnýttar, t.d. með ofbeit búfjár eða þaulrækt. Jafnframt er lögð áhersla á virkt hringrásarhagkerfi þar sem lífræn efni eru nýtt innan hringrásar og að spornað sé við sóun með því að flokka, endurnýta og endurvinna þann úrgang sem til fellur á búi og heimili. Samfélagsstoðin: Í sjálfbærum samfélögum er rík áhersla lögð á mannleg og félagsleg gildi sem skapa lífshamingju og möguleika til náms og starfa án aðgreiningar af nokkru tagi. Samfélagsleg verðmæti byggja fyrst og fremst á þeim mannauði sem þar er til staðar og viðheldur grunnstoðum samfélagsins gangandi og samstöðu meðal íbúa. Einn af lykilþáttum í sjálfbærum landbúnaði er að samvinna sé á milli bænda og að þeir deili skoðunum sínum og þekkingu sín á milli. Æskilegt er að landbúnaður sem er stundaður falli vel inn í samfélagið og hvert bú styðji við annað og aðra atvinnustarfsemi samfélagsins. Stækkun búa og einhæfni í landbúnaði dregur úr mannþörfum og hætta er á samdrætti í samfélögum og ósjálfbærri þróun nema annað komi í staðinn. Tækifæri þurfa að vera fyrir ungt fólk og að kynslóðaskipti séu möguleg á bújörðum. Einnig að það hafi tækifæri til náms og geti fundið sér vinnu við hæfi. Búrekstrarstoðin: Sjálfbær landbúnaður byggir á stöðugum efnahag og jákvæðum hagrænum ábata af búrekstri. Náttúran er viðskiptafélagi bóndans og markmiðið í búrekstri ætti að vera að hámarka framleiðslu miðað við sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda og sjálfbærni í rekstri. Afkoman byggir þ.a.l. á gæðum náttúruauðlinda á bújörðum og því búfé sem þar er ræktað, auk þekkingar og hæfni bóndans. Rekstrarreikningar búa geta verið mælikvarðar á sjálfbærni í landbúnaði, en breytilegur kostnaður eykst eftir því sem sjálfbærni minnkar. Framlegð getur því gefið vísbendingu um hversu sjálfbær reksturinn er ef til eru gögn til viðmiðunar á meðalgildum og breytileika. Hækkun á helstu aðföngum t.d. áburði, olíu, plasti o.fl., sem reiknast allt sem breytilegur kostnaður á rekstrarreikningi og hefur áhrif á framlegð búsins og minnkar bæði heildarafkomu og sjálfbærni. Dæmi um sjálfbærni í landbúnaði sem tekur bæði á búrekstrarstoðinni og umhverfisstoðinni er góð nýting búfjáráburðar og annarra lífrænna áburðarefna sem til falla á búinu til að takmarka aðkeypt áburðarefni til að fullnægja þörfum búsins við öflun fóðurs. Minna oft meira Rannsóknir hafa sýnt fram á að stór bú eru oft ekki sjálfbær. Þau geta haft neikvæð áhrif á náttúruleg vistkerfi, búsvæði, heilbrigði jarðvegs, vatn o.fl., auk þess sem kostnaður við aukaframleiðslu umfram sjálfbæra getu þeirra getur haft þau áhrif að auka þurfi aðkeypt aðföng á hverja einingu til að viðhalda eða auka framleiðslumagn. Þetta orsakast af því að breytilegur kostnaður í landbúnaði er ekki alltaf í línulegu falli af framleiðslu, þröskuldur getur verið þegar framleiðslumagn hefur náð hámarki með sjálfbærri nýtingu náttúrauðlinda og lágmarks aðkeyptum aðföngum sem þýðir að til að auka framleiðslu þarf að auka útgjöld t.d. vegna aukinna fóðurþarfa, áburðar eða leigu á túnum svo eitthvað sé nefnt. Þessa stærð á framleiðslumagni má kalla „hámarksmagn í sjálfbærni“ og ætti það að vera markmið hvers bónda að stilla stærð búsins sem næst þessum punkti. Í rekstrargreiningarverkefnum RML hefur komið fram að mikill breytileiki er á framlegðarstigi á milli búa. Hluti hefur verið útskýrður með mismun í bústjórn og aðstöðu, en hluti er óútskýrður og má e.t.v. heimfæra að einhverju leyti á mismun í sjálfbærni búrekstrar. Þarna eru e.t.v. tækifæri fyrir bændur og full ástæða til að hvetja þá til að rýna í kostnaðarreikninga til að finna „hámarksmagn í sjálfbærni“ fyrir sitt bú. Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur á rekstrar- og umhverfissviði hjá RML. Þegar haustið fer að minna hressilega á sig með lægðagangi, kulda og rigningum er tilvalið að nýta góðviðrisdagana inn á milli til þess að undirbúa garðinn fyrir veturinn. Eitt það sem þarf að útbúa tímanlega fyrir fyrsta skammt af snjó er að skýla viðkvæmari tegundum og plöntum sem hafa kalið óþarflega mikið síðustu vetur. Algengast er að sígrænum gróðri sé skýlt og þá helst þeim tegundum sem eru tæplega nógu harðgerðar fyrir íslenskt veðurfar. Það vill enginn sjá sígrænu plönturnar sínar rauðar á lit að vori. Vetrarskýling trjáa og runna En hvernig berum við okkur að við að skýla plöntum fyrir veturinn? Til verksins þurfum við 3-4 timbur- eða járnstaura fyrir hverja plöntu, striga og að lokum bensli (strappa) eða heftibyssu. Ef við tökum sem dæmi 1,30 m háan garðaýr (Taxus x media) sem þarf að skýla þá er byrjað á að reka niður staura umhverfis plöntuna. Þeir geta verið þrír eða fjórir eftir lögun og stærð plöntunnar en mikilvægt er að huga að því að þegar strigi er stekktur utan á staurana að þeir haldi létt við greinar plöntunnar án þess að þrengja um of að henni. Garðaýr er jafnan aðeins mjórri ofan til en að neðan og þá er gott að láta staurana halla aðeins inn í átt að toppnum án þess þó að þeir snertist efst. Því næst vefjum við striganum utan um staurana og plöntuna þannig að hann liggi vel niðri við jörð og greinar garðaýrsins sveigist upp með striganum. Ef við notum timburstaura er hægt að hefta strigann fastan við staurana með heftibyssu en ef við notum járn- eða málmstaura þarf að nota ýmist bensli eða vír. Eins og fyrr segir þarf striginn að ná vel niður á jörðu svo ekki blási auðveldlega undir hann en ekki er ráðlegt að loka með striga yfir toppinn á plöntunni. Þar er gott að lofti aðeins um og með því að hafa opið í toppinn minnkum við líkurnar á því að kuldi liggi að plöntunni fram eftir vori þegar hlýna tekur í veðri. Tilgangur þess að skýla plöntum yfir veturinn er að minnka álag frá skafrenningi og köldum vindum. Því náum við fram með því að hafa striga umhverfis plöntuna á hliðunum. Mjög lágvaxnar og jarðlægar tegundir eru auðveldari verkefni í vetrarskýlingu. Að hausti er gott að leggja yfir þær trjágreinar sem munu sjá um að brjóta aðeins vindinn og auka líkur á að snjór festist yfir plöntunum. Bestu greinarnar í þetta eru af sígrænum plöntum s.s. furu eða greni þar sem þær mynda þétta hulu. Gott er að skorða greinarnar vel af þannig að tryggt sé að þær fjúki ekki í burtu þegar vindurinn blæs. Það er hægt að gera með því að grafa enda þeirra aðeins niður í jarðveginn og jafnvel leggja 2-3 greinar yfir á móti hver annarri og flækja þeim saman. Fjölærar plöntur Yfirleitt er ekki eins mikilvægt að skýla fjölæringum. Ágætt ráð er að skilja visin lauf og stöngla eftir á plöntunum og fjalægja þau ekki fyrr en vorar á ný. Þá fá plönturnar náttúrulegt skjól sem nægir til að hlífa þeim fyrir næðingum og fyrstu frostum. Lauf af grasflötinni mætti raka inn undir trjá- og runnabeð til skýlingar. Talsvert af smádýrum dvelur í þessum laufmassa og nýtur skjólsins, og þegar vorar fara ánamaðkar og fleiri tegundir að brjóta efnið niður og smærri örverur hefja niðurbrot þess, sem að sínu leyti gerir jarðveginn næringarmeiri og betri. Safnhaugurinn Varla er hægt að búast við að virkni safnhaugsins haldist að ráði yfir hörðustu vetrarmánuðina. Samt er rétt að setja allt úrgangslauf sem til fellur í safnhauginn að hausti. Það nýtist þegar hlýnar og gefur ágætan næringarauka í beðin. Það er sem sé óþarfi að fjarlægja lífrænt efni úr garðinum, allt kemur að notum. Ágústa Erlingsdóttir, brautarstjóri skrúðgarðyrkju á Reykjum. GARÐYRKJAN Undirbúum garðinn fyrir veturinn Algengast er að sígrænum gróðri sé skýlt og þá helst þeim tegundum sem eru tæplega nógu harðgerðar fyrir íslenskt veðurfar. Mynd / Guðríður Helgadóttir Sigurður Torfi Sigurðsson. Sjálfbærni í landbúnaði: Náttúra, samfélag og hagrænn ávinningur Búrekstur Umhverfi Samfélag Sjálfbær landbúnaður

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.