Bændablaðið - 03.11.2022, Síða 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 3. nóvember 2022
Fallegir jólalegir sokkar prjónaðir
úr Drops Nord
DROPS Design: Mynstur no-051
Stærðir: 35/37 (38/40) 41/43
- Lengd fótar: 22 (24) 27 cm
- Hæð á sokk niður að hæl: Ca 17 (18) 19 cm
Garn: DROPS NORD (fæst hjá Handverkskúnst)
- Skógargrænn nr 19: 100 (100) 100 g
- Perlugrár nr 03: 50 g í allar stærðir
Prjónar: Sokkaprjónar nr 2,5 eða sú stærð
sem þarf til að fá 26 lykkjur x 34 umferðir
= 10x10 cm
LEIÐBEININGAR-1 (á við um marglitt mynstur):
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar
mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á
þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari
prjóna þegar mynstrið er prjónað.
LEIÐBEININGAR-2 (á við um hæl): Til að styrkja
hælinn er hægt að prjóna allan hælinn og hælúrtökuna
með 2 þráðum þannig: Notið þráð bæði innan úr og
utan með dokkunni og prjónið 1 lykkju til skiptis með
sitt hvorum þræðinum. Með þessu þá færðu aðeins
þykkari hæl án þess að prjóna með tvöföldum þræði.
ÚRTAKA-1 (á við um mitt aftan á sokk): Fækkið um
1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið
þar til 4 lykkjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2
lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki
situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni
eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið
lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= fækkað
um 2 lykkjur).
ÚRTAKA-2 (á við um tá): Fækkið um 1 lykkju hvoru
megin við hvort prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru að prjónamerki, prjónið 2
lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykjur slétt (prjónamerki
situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju eins og prjóna
eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni
yfir lykkjuna sem var prjónuð (= fækkað um 2 lykkjur).
HÆLÚRTAKA:
Umferð 1 (rétta): Prjónið slétt þar til 7 (8) 8 lykkjur
eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt,
prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.
Umferð 2 (rangan): Prjónið brugðið þar til 7 (8) 8
lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi
hana brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu
lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.
Umferð 3 (rétta): Prjónið slétt þar til 6 (7) 7 lykkjur
eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt,
prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.
Umferð 4 (ranga): Prjónið brugðið þar til 6 (7) 7
lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna
eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu
lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið við.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að prjóna
þar til eftir er 1 lykkju færri áður en 1 lykkju er lyft
af prjóni, þar til 14 (14) 16 lykkjur eru eftir á prjóni.
SOKKUR:
Fitjið upp 72 (80) 80 lykkjur á sokkaprjóna nr
2,5 með perlugrárum í DROPS Nord.
Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff
hringinn (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) allt 3 cm.
Prjónið 3 umferðir sléttprjón og fækkið jafnframt um
8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 64 (72) 72 lykkjur.
Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að
aftan). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu –
prjónamerkið er notað síðar þegar fækka á lykkjum
mitt aftan á sokknum.
Sjá LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (=
8 (9) 9 mynstureiningar á breidd með 8 lykkjum).
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á
hæðina, prjónið sléttprjón með litnum skógargrænn.
JAFNFRAMT í 2. umferð er fækkað um 0 (4) 0 lykkjur
jafnt yfir = 64 (68) 72 lykkjur. Þegar stykkið mælist 7
cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki
– sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2 (2½)
2½ cm millibili alls 5 sinnum = 54 (58) 62 lykkjur.
Prjónið þar til stykkið mælist 17 (18) 19 cm frá
uppfitjunarkanti (eða að óskaðri lengd á legg).
Prjónið hæl: Haldið eftir fyrstu 13 (14) 15 lykkjum á
prjóni fyrir hæl, setjið næstu 28 (30) 32 lykkjur á þráð
án þess að prjóna lykkjurnar (= mitt ofan á fæti) og
haldið eftir síðustu 13 (14) 15 lykkjum á prjóni fyrir
hæl = 26 (28) 30 lykkjur fyrir hæl. Klippið þráðinn.
Sjá LEIÐBEININGAR-2 og prjónið sléttprjón fram
og til baka yfir hællykkjur með litnum skógargrænn
í 5 (5½) 6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í síðustu
umferð – prjónamerkin eru notuð síðar til að mæla
lengd á fæti frá. Prjónið HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu
að ofan. Eftir hælúrtöku er næsta umferð prjónuð
þannig: Prjónið sléttprjón yfir 14 (14) 16 hællykkjur,
prjónið upp 13 (14) 16 lykkjur meðfram hlið á hæl
innan við 1 kantlykkju, prjónið sléttprjón yfir 28 (30)
32 lykkjur af þræði ofan á fæti og prjónið upp 13
(14) 16 lykkjur meðfram annarri hlið á hæl innan
við 1 kantlykkju = 68 (72) 80 lykkjur. Prjónið að
miðju undir hæl, umferðin byrjar núna hér. Setjið
1 prjónamerki hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur
mitt ofan á fæti.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT er lykkjum
fækkað hvoru megin við 28 (30) 32 lykkjur á fæti
þannig: Prjónið 2 síðustu lykkjur á UNDAN 28 (30) 32
lykkjum á fæti slétt saman og prjónið 2 fyrstu lykkjur á
EFTIR 28 (30) 32 lykkjum á fæti snúnar slétt saman (=
fækkað um 2 lykkjur). Fækkið lykkjum svona í annarri
hverri umferð alls 8 (8) 10 sinnum = 52 (56) 60 lykkjur.
Prjónið áfram þar til stykkið mælist 14½ (15½) 17½
cm frá prjónamerki fyrir hæl – mælt undir fæti. Nú
eru eftir ca 7½ (8½) 9½ cm til loka máls. Mátið e.t.v.
sokkinn og prjónið að óskaðri lengd. Prjónið 1umferð
sléttprjón þar sem aukið er út um 4 (0) 4 lykkjur jafnt
yfir = 56 (56) 64 lykkjur. Prjónið nú A.2 hringinn (= 7
(7) 8 mynstureiningar á breidd með 8 lykkjum). Þegar
mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina,
mælist stykkið ca 18 (19) 21 cm frá prjónamerki á hæl
– mælt undir fæti (nú eru eftir ca 4 (5) 6 cm til loka
máls – prjónið e.t.v. sléttprjón með litnum perlugrár
að óskuðu máli fyrir tá). Takið frá eldri prjónamerki
og setjið 1 nýtt prjónamerki í hvora hlið á sokknum
þannig að það verða 28 (28) 32 lykkjur bæði ofan á
og undir fæti. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum
perlugrár og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við
bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-2 (= fækkað um 4
lykkjur). Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð
alls 5 (8) 10 sinnum og síðan í hverri umferð alls 5 (2)
1 sinnum = 16 (16) 20 lykkjur eftir. Í næstu umferð
eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8 (8)
10 lykkjur eftir. Klippið þráðinn, þræði í gegnum þær
lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel.
Prjónið hinn sokkinn alveg eins.
HANNYRÐAHORNIÐ
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Leyniofurhetja!
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Nafn: Íris Katla Ásgeirsdóttir.
Aldur: 6 ára
Stjörnumerki: Tvíburi
Búseta: Seltjarnarnes
Skóli: Mýrarhúsaskóli
Skemmtilegast í skólanum:
Að fara í Sprota
Uppáhaldsdýr: kisa
Uppáhaldsmatur: KFC
Uppáhaldslag: Shut down með
Blackpink
Uppáhaldsbíómynd: Minions
Fyrsta minning: Þegar ég var 2 ára og það var lúlla með pabba og ég vildi
ekki fara að sofa. Ég vildi ekki lúlla með pabba heldur með mömmu.
Hvað finnst þér skemmtilegast: Að fara í afmæli.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Ég veit það ekki, en ég er
sko í alvöru leyniofurhetja.
Hvað er það mest spennandi sem þú hefur gert: Að fara í óvissuferð og
mamma og pabbi plötuðu okkur að við ætluðum á fuglasafn en við fórum
svo í Bláa lónið.
Næsti viðmælandi okkar er: Gunnhildur Jara Tryggvadóttir. Við minnum á að þeir
sem hafa áhuga á að vera með, mega hafa samband við sigrunpeturs@bondi.is.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Skógarfjör