Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 12

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Blaðsíða 12
október og slái þessum tveimur árs- tíðum þannig saman i eina, skiljum við nokkuð glöggt á milli þeirra og teljum að þá hefist haust, er litabreytingin i náttúrunni byrjar. Þeir sem eru svo heppnir, að geta ferðast um fögur héruð á þeim tíma, og fá gott veður, gleyma sjálfsagt fæstir því, sem þá ber fyrir augu. Sjálfum er mér m. a. ógleymanlegur einn dagur fyrir mörgum árum, þegar ég kom norðan yfir Holtavörðuheiði, úr rign- ingu og kalsaveðri norðanlands, og Borg- arfjörðurinn opnaðist mér í haustfegurð og hlývirðri. Eg hafði aldrei verið þar fyrr, á þessum árstirna, í jafnákjósan- legu veðri, og þótt mér þyki héraðið fallegt, eins og flestum eða öllum, i sum- arskrúði þess, fannst mér að nú gæti ég tekið undir með þeim, sem lofsyngja fegurð haustsins. Degi var svolitið tekið að halla, en loftið var svo tært og lita- skil öll svo skýr, að orð ná skammt til þess að lýsa fegurðinni og áhrifum henn- ar. Eg fór niður að Laxfossi og sat góða stund við gamla veiðimannahúsið. Það var þá mannlaust, enda veiðitimanum lokið. Eg horfði yfir þessar gamalkunnu slóðir, sem ég hafði heimsótt fyrr um sumarið, i öðrum erindum, og sá þœr nú i nýju „ljósi“ og undir öðrum hug- hrifum. Skógurinn, sem fyrr um sum- arið var iðja grænn, iðandi af lifi og þrunginn af ilmi og angan, var nú kom- inn i haustbúninginn og laufin að byrja að falla. Þrestirnir voru þagnaðir og kri- an horfin frá ánni. Allt var kyrrt og hljótt, raddir sumarsins heyrðust ekki lengur. Mér virtist hausthljómur i ár- niðnum. Frammi á Brotinu stökk lax; hann var lika i haustbúningi, eins og skógurinn og umhverfið allt. Þetta var stór lax, liklega 14—16 pund. Skyldi það vera sá sami, sem ég missti þarna i sum- ar? ILann var af þeirri stærð. Eg sá eftir honum þá, en nú hefði mig ekki langað til að veiða hann, þótt ég hefði mátt renna. Hann var kominn í „brúðkaups- búninginn‘ og yfir honum átti ekki leng- ur að vofa nein hœtta af mannavöldum. Eg óskaði honum til hamingju í hugan- um og rnargra íturvaxinna erfingja, sem gaman yrði að hitta þarna á brotinu eftir nokkur ár. Svo kvaddi ég ána, laxana og skóginn og fór upp í bílinn. Samferða- fólkið var farið á undan. Síðan þetta gerðist eru nú liðin 14 ár. A þeim tima hef ég all oft átt leið um Borgarfjörð að haustlagi, en ekki komið við hjá Laxfossi. Þessi síðdegisstund og áhrif hennar eru enn svo skýr i endur- minningunni, að ég vil ekki trufla mynd- ina með nýrri sýn yfir svæðið á þessum árstima, þvi að við sjáum sjaldan staði, með nákvæmlega sömu augum í tvö skipti, jafnvel þótt svo hittist á, að öll ytri skilyrði séu mjög lík. Meðan ég er að skrifa þetta er niðamyrkur úti og haustregnið dynur á glugganum min- um; en eigi að síður finnst mér ég geta séð umhverfið við Laxfoss þennan um- rædda dag og fundið áhrifin, sem ég varð fyrir á grasbakkanum við gamla veiðimannahúsið. Þessi minning hefur auðvitað sem slik ekkert gildi fyrir aðra en mig, en ég býst við að lesendur mínir eigi flestir i hugarinnum sínum hliðstæð- ar minningar, sem gœtu rifjast upp fyrir þeim við lesturinn. Og þegar ævihaustið fer að uáálgast, eða er komið, þegar „fölvi sezt á brá og silfrað hrim fellur á hárið“, 2 Veidimaðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.