Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Qupperneq 17

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Qupperneq 17
neðan við hylinn, sem stórlaxinn er að finna,“ rnuldra ég í barminn meðan ég er að beita og búa mig undir næsta kast. Kannski liggur liann þar, hlið við hlið, fiskur við fisk, á svona mittisdjúpu vatni, tifandi uggum og sporði, með slétta hall- fleytta klöppina við kviðinn og þennan þunga jafna straum sveljandi um sig og gegnum tálknin. Klukkan er að verða sex. Það syrtir í álinn smátt og smátt, þar sem boðarnir rísa og vindurinn grefur djúpar skálar og hleður veltandi skárum og ýtist á við vatnsflauminn, ó, þessi löðrandi sunnan- átt, það er einhver dramatísk gnægð í framferði hennar, og faðmandi mýkt, og óhófsleg fylling. Enn einu sinni kasta ég línunni út í þungstreymið, ekki langt, kanski fimmtán, tuttugu metra. Um leið og öngullinn snertir vatn, skellur lásinn á hjólinu, Oig ég gríp vinstri hendi í lín- una og dreg af henni slakann. að öngull- inn festist ekki í botni. Þetta gengur, nú svifar línan mjúklega niður og í átt til iands. En ekki lengi, þarna stanzar hún allt í einu, eitthvað kemur við agnið, ég greini kippóttan titring, og þarna er það kyrrt, svona tólf metra úti, æ, líklega er það fast í botni. Eg lyfti stönginni, strengi línuna, fastar — fastar, þangað til bjúglína stangarinnar myndar einn fjórða úr hring. Þá finn ég enn þennan ókennilega létta kippótta titring, sem ég kannast ekki alminlega við, hvorki frá botnfestum né fiski, og ég þyngi átakið að mun. Eg stari á stangaroddinn, sem nú horfir í vatnið, og þetta verður undar- legra og undarlegra, stangaroddurinn hreyfist hóglega upp og niður — upp og niður, það er eins og öngullinn sitji fast- ur í stóru ósýnilegu brjósti, sem andi djúpt og reglulega þarna undir straum- breiðunni. Dularfullt! Það er ekki laust við að beygur hríslist um hold mitt og blóð, því að þetta er ekki dauður ár- botninn, þetta er lifandi brjóst niðri í vatninu, og það andar þungt og mótt eins og ég og titrar svolítið. Nei, bíðum við, nú breytist þetta allt: þetta er fiskur — þetta er fiskur, hann tekur heiftarlegan hliðarkipp núna, rýk- ur af stað upp í strauminn, dregur á eftir sér ólgandi röst, þarna fer hann — og stekkur upp allt í einu, hreinsar sig. „Fiskurinn mikli, loksins!" kalla ég og kanna í skyndi hvort stillingin á hjólinu sé mátuleg, hún er það: Stíf, en ekki föst. Þetta verða átök, ég hef aldrei séð jafn- stóran fisk — aldrei. Hann hefur stanzað fáein andartök á mótum lygnu og straums, ég geri ekki annað en bíða átekta, tvíhendi stöngina reista í sveig, þetta er gott verkfæri, stöngin mín, og ég þekki hana vel, taugakerfi mitt og hún hafa mörgum sinnurn runnið saman í eitt. Þetta var hlé, en það er á enda núna, og það varð ekkert hlé meir upp frá því: í lotunni sem á eftir fór, endalaust langri og örstuttri í senn, var þessi leikur út- ALLT FYRIR VEIÐIMENNI VIÐ dyrnar á sportvörubúð einni hafði, eigand- inn fest upp skilti, sem á stóð: Allt fyrir veiðimenn! Viðskiptavinur kom inn í búðina og spurði: „Get ég fengið eitt eintak af Biblíunni?" Afgreiðslumaðurinn glápti á hann undrandi og svaraði: „Þetta er verzlun með alit fyrir veiðimenn, eins og þér sjáið á skiltinu". „Veit ég það," svaraði viðskiptavinurinn. „En mega þeir alls ekki lesa Biblíuna?" Veiðimaðurinn 7

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.