Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Page 40
þurft að vanda mig mikið til þess að
hann lægi í veiðipokanum mínum inn-
an lítillar stundar.
Stöngin sveiflaðist aftur á bak og á-
fram; ég lengdi meira og meira í lín-
unni — hjartað í mér sló hraðar og hrað-
ar — Nú hlaut eitthvað að ske.
Skyndilegur sársauki í vinstra eyr-
anu færði mér heim sannin um það, að
flugan hefði ekki hafnað þar, sem henni
var ætlað! Að minnsta kosti sáust þess
engin merki á vatnsfletinum, að hún
hefði snert liann, og óhljóðið sem ég rak
upp, skar úr um, að það var ekki frá
heimi fiskanna komið!
Fullkomið kast!
Og enn tók stöngin að sveiflast með
ofsa hraða gegnum loftið, ég lengdi
kastið meira og meira, og hjartsláttur-
inn örvaðist að sarna skapi. F.n í þetta
sinn heppnaðist kastið! Enginn buslu-
gangur! Ég starði á vatnsflötinn, til þess
að reyna að sjá Iivar flugan kæmi nið-
ur, og átti þess von á hverju andartaki
að sjá silfurglampann af fiskinum um
leið og hann fengi sér ,,morgunverð-
inn“!
En því miður — það gerðist ekkert.
Ég sá hvorki ti! fisks né flugu! Fiskurinn
var nógu skynsamur til þess, að láta
girnisspottann ekki blekkja sig, en flug-
an virtist af einhverjum ástæðum halda
að hún væri eftirsóknarvert eyrnadjásn.
— Það var þá ekki sviti, sem rann niður
hálsinn á mér áðan!
Enn reyndi ég fjölda hnúta, þegar ég
hafði framkvæmt frámunalega klaufa-
lega og sóðalega skurðaðgerð, með til-
heyrandi bölvi og ragni, sem jafnvel golf-
feikari hefði mátt öfunda mig af. Og
einhvern veginn tókst mér að hnýta
fluguna tryggilega á aftur.
Aldrei í sögu stangveiðinnar hefur
nokkur fluga þráast eins við að fara í
vatn! í þetta sinn kom hún sér fyrir í
trjágrein hinum megin við ána, oghvern-
ig sem ég togaði í, var engin leið að losa
hana.
Hvað á veiðimaður að gera þegar
svona kemur fyrir? Um það atriði og
önnur svipuð þegja allar kennslubækur
rækilega. Á hann að gera það sem hon-
um er næst skapi, þ.e. að slíta girni og
línu og jafnvel mölva stöngina — eða
á hann að látast vera salla rólegur,
vaða gætilega yfir ána, losa öngulinn
og halda svo áfram að kasta, eins og
ekkert liafi komið fyrir?
Það var vafalaust veiðimannslegra að
velja síðari kostinn, og svo langaði mig
til að ganga úr skugga um hvort veiði-
stígvélin mín væru eins vatnsheld og þau
voru óþægileg.
Eg stingst á hausinn.
Ég skildi stöngina eftir á bakkanum
og óð gætilega út í miðjan straum. Hann
30
Veiðimaðurinn