Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Síða 14

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Síða 14
Um veföina í sumar. SAMKVÆMT upplýsingum frá Veiði- málastofnuninni var laxveiðin samanlagt meiri í sumar en í fyrra. Laxfjöldi á stöng var svipaður og tvö undanfarin ár, en netaveiði á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár og í Þjórsá var meiri en áður þess vegna verður veiðin samanlögð meiri en í fyrra. Silungsveiðin var hins vegar neðan við meðallag. Sjóbirtingsveiði á Suðurlandi var með minna móti. í Mývatni var sil- ungsveiðin nálægt meðallagi en lakari í Þingvallavatni. Fáar tölur liggja fyrir ennþá um veiði í einstökum ám, en þó er vitað að veiðin í Norðuráá í Borgarfirði var talsvert meiri en í fyrra og einnig í Elliðaánum. í Laxá í Kjós mun hún hafa verið svipuð, en hins vegar brást Bugða að þessu sinni. Þar veiddist ekki nema um helmingur, miðað við ársveiði undanfarinna ára. Fregnir frá ánum í Húnavatnssýslum benda til að veiði hafi þar yfirleitt verið góð, nema ef til vill í Hrútafjarðará, og nokkru minna veiddist nú í Miðfjarðará en undanfarið. Þó var þar ágæt veiði. í Laxá í Suður-Þingeyjarsýslu veiddist með bezta móti, a. m. k. á veiðisvæðum Lax- árfélagsins, og verður því að telja líklegt að svo hafi einnig verið á hinum. Það verður ekki sagt að veðurfar hafi verið hagstætt fyrir laxagöngur þetta sumar. Það var lengst af kalt og úrkoma lítil víðast hvar, en eigi að síður gekk mjög mikið af laxi í sumar árnar, t. d. Norðurá í Borgarfirði, Elliðaárnar og Laxá í Kjós, svo nokkrar séu nefndar. Og þótt veiðin í Norðurá væri góð, eins og áður var sagt, hefði liún getað orðið meiri, ef laxinn hefði gengið fyrr upp fyrir Glanna en hann gerði. Það er óvenjulegt að öll áin þar fyrir ofan sé laxlaus að kalla, þegar komin eru mán- aðamót júlí og ágúst, en þannig var þetta í sumar, þangað til a. m. k. vika var lið- in af ágúst. Virðist full ástæða til að rannsaka gaumgæfilega, hvort einliverja breytingu þurfi að gera á fossinum, til þess að auðvelda fiskinum uppgöngu. Ekki mun stangveiðin hafa verið mikil á vatnasvæði Ölfusár og Hvítár, frekar en fyrri daginn. Er leitt til þess að vita, að hinar fallegu bergvatnsár á því svæði skuli vera eins fisklitlar og þær eru. Það þyrfti að verða eitt af næstu framtíðar verkefnunum á sviði ræktunarmálanna, að finna leiðir til þess að kippa því í lag. V. M. Eg bið bara um nart! 4 Veidimaðukinn

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.