Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Side 35
ZYGMUNT LITYNSKI;
Steinbítsgöngur og
jarðskjálftar í Japan.
TORFUR risasteinbíts á sveimi! — Hin-
ar slæmu fréttir berast hægt frá Tokyo og
Yokohama, þar sem krökkt er af örlitlum,
hrófatildurslegum smáhúsum, sem í býr
óttaslegið fólk, út um allt Kwantohérað,
hjarta hættusvæðisins í Japan.
Fréttirnar eru vissulega slæmar, því
allir í Japan vita, að hafi æsing gripið
Namazu, hin risavaxna, goðsagna-
kennda steinbít, heldur hann áfram að
sprikla og stökkva í neðansjávarbústöð-
um sínum, þangað til hann færir hina
veiku undirstöðu eyjanna úr skorðum.
Og þá dynja ógnirnar yfir. Jörðin
skelfur, klettar molna, hús hrynja, heilar
borgir sópast í sjó út af risavöxnum flóð-
bylgjum, og fólk deyr þúsundum saman,
þegar einn hinna tíðu jarðskjálfta hrellir
Japanseyjar.
Hin uggvænlegu varnaðarorð alþýðu-
manna eru í þetta skipti studd af áliti
Hiromitsu Mukohira, hins „Mikla Vitra
Manns“, sem spáði fyrir hinum hrylli-
legu jarðskjálftum árið 1923 með margra
mánaða fyrirvara, en þá eyðilagðist öll
borgin Yokohama og einnig Tokyo að
mestu leyti, og á annað hundrað þúsund
manns lézt í hamförunum.
OG AKURHÆNSNI OG FROSKAR.
Hið skrýtna er, að japanskir dýrafræð-
ingar álíta ekki sögurnai um steinbítinn
vera byggðar á hjátrú einni saman. Þeir
álíta, að dýr kunni að liafa ofnæmi gagn-
vart einlrverjum fyrirbrigðum í jarð-
skorpunni, ef til vill aukningu jarðraf-
straums, sem er undanfari jarðskjálfta.
Samkvæmt áliti sumra japanskra dýra-
fræðinga hafa verið færðar sönnur á
ókyrrð japanska steinbítsins rétt á undan
jarðskjálftum. Aðrir halda því fram, að
slíkt megi greina í ríkari mæli í hegðun
annars dýrs. Það er japanska akurhænan,
sem þeir álíta, að finni fyrir hin-
um minnsta titringi á fyrstu stigum jarð-
skjálftahræringa og reki þá upp garg í
ótta sínum. í mótsetningu við akur-
hænsni eru froskar álitnir tilkynna, með
skyndilegri þögn sinni, að jarðskjálfti
sé í nánd.
Japönsk yfirvöld virðast taka þessum
aðvörunum af alvöru, hvað sem segja má
um hæfni hinna ýmsu dýra til þess að
spá fyrir um jarðskjálfta. Mikið átak er
nú gert til þess að endurbæta slökkviút-
búnað í borgunum, vegna þess að reynsl-
an sýnir, að eldsvoðarnir valda mestum
skemmdum og líftjóni, þegar litlu húsin
úr bambus og pappír byrja að fuðra upp
og hrynja.
Árið 1923 geisaði ægilegt stjórnlaust
eldhaf í þrjá sólarhringa í Tokyo, og nú
Veibimaðurinn
25