Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Síða 27

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Síða 27
frá því að taka, ef honum væri boðið eitthvað, sem honum litist á. Eg fór að kasta, vandaði mig eins og ég gat og gætti þess, að láta fluguna renna hæfilega langt fyrir ofan staðinn þar sem ég hafði séð laxinn. Um leið og hún barst yfir blettinn, þar sem líklegast var að hann tæki hana, komu örlitlir gárar á vatnið, eins og fiskur hefði lyft sér, en svo bar hana upp að landinu án þess að meira gerðist. }á, auðvitað er hún of stór! Eg á að skipta niður í nr. 6, hugsaði ég. En það fór eins og áður, hin röddin í hugskoti mínu varð yfirsterkari. Eg varð að hlýða henni. Eg kastaði aftur og um leið og flugan rann yfir rétta staðinn var hún þrifin sterklega og laxinn tók beint strik upp ána og stanzaði ekki fyrr en efst í hyln- um. Þar er talsverður straumur, jafnvel í litlu vatni, en liinum megin við hyl- djúp lygna nokkuð stór um sig. Þar lagð- ist laxinn, og þótt ég tæki á honum eins og ég þorði, fékk ég honum ekki bifað góða stund. Eg fór að halda að hann væri mjög stór eða hann hefði fest sig. En brátt fann ég þó að allt var með felldu, og nú lagði hann aftur af stað niður eftir hylnum og fór sér ekki óðs- lega. Þegar hann var kominn niður und- ir staðinn þar sem hann tók, lagðist hann aftur og þumbaðist svolítið. Ekki vildi hann lofa mér að sjá sig. Það gerði raun- ar ekkert til, því að á rneðan gat ég gert hann eins stóran og ég vildi! En nú gerist skyndilega nokkuð óvænt. Laxinn tekur nokkrar kolldýfur á sama blettinum, syndir svo uppeftir, á móts við þar sem ég stóð, snarbeygir í áttina til mín — þó ekki hraðara en svo, að ég hafði vel við að vinda inn — og heldur áfram unz hann leggzt á hliðina við fæt- ur mér. Þetta var 13 punda hængur, mjög lítið leginn. Hér var ekki um það að ræða, að ég renndi honum á land“, eins og kallað er. Hann kom sjálfur. Eg vatt að vísu inn línuna, en átakið var ekkert, fyrr en ég lyfti hausnum á hon- um upp úr vatninu og tók lítið eitt í svo að tálknin lentu á þurru þegar hann lagðist á hliðina. Svona skyndilega upp- gjöf hef ég aldrei vitað fyrr né síðar, hjá þetta vænum flugulaxi. Flugan var vel föst framan til i munnvikinu. Veiðin var lítil þennan dag; þó fengu sumir eitthvað; en öllum kom þeim saman um það, að laxinn hefði ekki litið við stærri flugum en nr. 6 og 7. Hvort minn hefði eins tekið þá stærð er spurn- ing, sem aldrei fæst svarað. V. M. Veibimaðurinn 17

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.