Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Page 41

Veiðimaðurinn - 01.09.1963, Page 41
sýndist ekki stríður frá bakkanum þar sem ég stóð þurrum fótum, en það reyndist herfileg missýning. Vatnið þrýsti sér illgirnislega að fótleggjum mínum, með þeirn ásetningi að kippa þeim undan mér, og sú tilraun heppn- aðist alltof vel. Allt í einu var vatn alls staðar — ó- grynni af vatni — það fyllti augu mín, nef, eyru og háls. Eg hafði farið niður að á til þess að veiða fisk, en nú var ég allt í einu kominn til bústaða þeirra og gat vænst þess á hverri stundu að vera dreg- inn upp að bakkanum, þar sem ég sæi framan i ráðvillt smetti á risavöxnum silungi, sem hefði stungið stönginni minni undir eyruggann og væri að um- segja, hvort liann ætti að fleygja mér út í aftur eða leggja mig sér til munns. En svo hvarf þessi sýn, ég rak haus- inn upp úr ánni og blés frá mér svo rnikl- um vatnsstrók, að hvalur liefði varla gert betur. Eg leit eftir hattinum mín- um, en jafnvel hann hafði yfirgefið mig og var nú vafalaust um jxið bil að sigla fram af fossbrún um 50 meírum neðar. Ég brölti til sama lands, krafsaði í bakkann og skreiddist upp á þurrt með það eitt í huga, að halda beinustu leið burt frá þessum stað. Það var rislág mannskepna, sem hinn snyrtilegi lögreglumaður þorpsins ávarp- aði, þegar ég var að laumast heim að gistihúsinu: „Góðan daginn, herra rninn. Má ég sjá leyfið yðar?“ Ég hafði verið með það í vasanum, þegar ég fór niður að ánni, en ég bjóst ekki við að hann mundi trúa mér og vildi því heldur greiða það aftur en lítil- lækka mig með því að skýra honum frá öllum óförum mínum. Fengi silungurinn mikli, sem ég sá í sýn minni, annað tækifæri til að veiða mig — sem þó ekki verður — myndi hann eflaust geta sýnt leyfið sitt, en honum væri guðvelkomið að eiga hitt líka, því að ég hef ekki hugsað mér að snerta veiðistöng framar, jafnvel þótt það „sport“ sé ekkert „deyfðardútl!“ Spói flytur búferlum. I síðasta blaði var svolítil grein um spóann. Hann er nú farinn til heitari landa og við heyrum ekki vell lians aftur fyrr en næsta vor. Af einum Jieirra, sem dvöldu á Seltjarnarnesinu í sumar, segir ritstjóri Dýraverndarans, Guðmundur G. Hagalín, þessa sögu, í júlí-hefti blaðsins: „Eg rís venjulega mjög snemma úr rekkju, og fer ég þá gjarnan út o.g virði fyrir mér loft og lög og fuglalífið á sjó og landi. Einn rnorgun sá ég sjón, sem ég hef aldrei séð áður. Spói kom fljúgandi mjög lágt innan af nesi og hafði eitthvað í nefinu. Hann lækkaði flugið, þegar hann nálgaðist Bygggarð, og ég, sem stóð óséður við húshornið, sá greinilega, að það var egg, sem hann hafði í nefinu. Var hann að flytja sig sakir þeirra fram- kvæmda, sem hafnar eru skammt frá Bygggarði — eða hafði Iiann misst egg sín og nú hnupplað einu úr hreiðri einhvers annars spóa?“ Veidimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.