Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 37
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 413
F R É T T I R
„Sjúkdómum sem sérstaklega hrjá konur
hefur ekki verið gefinn nægilega mikill
gaumur innan heilbrigðiskerfisins,“ segir
Erla Gerður, yfirlæknir kvenheilsuteymis
innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Bragarbót verði nú gerð á því. „Við konur
erum með stórt flókið kerfi sem hefur
áhrif á alla heilsu okkar. Því þarf að sinna
betur.“ Hún nefnir breytingaskeiðið. Þær
konur sem fái nú þegar hjálp fái góða
þjónustu en því miður fái allt of margar
þeirra enga hjálp.
„Dæmi eru einnig um að konur séu í
þunglyndismeðferð sem þyrfti ekki væri
hormónaflæðið lagað,“ segir Erla Gerður.
Draga megi úr líkum á sjúkdómum, svo
sem hjartasjúkdómum, fái konur viðeig-
andi meðhöndlun. Nýtt kvenheilsuteymi
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
opnar nú þjónustu sína á haustdögum í
Þönglabakka.
Ákvörðun um móttökuna var tekin í
ráðherratíð Svandísar Svavarsdóttur og
vann Erla Gerður að lokaundirbúningi
húsnæðisins þegar Læknablaðið ræddi við
hana. Fimm stofur verða nýttar í þjón-
„Vísbendingar eru um að kulnunareinkenni sem koma fram á breytingaskeiði
kvenna geti að stórum hluta tengst hormónabreytingum,“ segir Erla Gerður
Sveinsdóttir, heimilislæknir og lýðheilsufræðingur
Opna nýja þjónustu fyrir
konur í heilsugæslunni
sem veita ráðgjöf um getnaðarvarnir og
setja upp lykkjur og stafi.“
Þriðji áherslupunkturinn snúi að
sérstökum sjúkdómum kvenna. „Það er
breiður flokkur. Við byrjum því á konum
með fjölblöðrueggjastokkaheilkenni,“ seg-
ir hún. Heilkennið hafi áhrif á svo marga
þætti heilsunnar og séu hormónatengd.
„Eins sjúkdóminn fitubjúg (lipoedema), sem
truflar heilsu og lífsgæði fjölda kvenna en
hefur verið gríðarlega lítið sinnt.“
Fjórði flokkurinn sé hópfræðsla og
ráðgjöf vegna afleiðinga áfalla og ofbeldis.
„Við viljum með því bæta lífsgæði þeirra
og varpa ljósi á tengsl áfalla og heilsu-
vanda sem getur komið fram löngu eftir
áföllin,“ segir hún. „Það er nýlunda að
veita einstaklingum með langvinna sjúk-
dóma 2. stigs þjónustu innan heilsugæsl-
unnar.“ Geðheilsuteymi hafi verið ein á
því stigi fram til þessa.
Þrjár konur hafa staðið að undir-
búningi móttökunnar, Sólrún Ólína
Sigurðardóttir, hjúkrunarfræðingur og
teymisstjóri, og Steinunn Zophoníasdóttir
ljósmóðir, auk Erlu sjálfrar. Hanna Lilja
Oddgeirsdóttir, sérnámslæknir í kven-
sjúkdómum, vann svo með hópnum á
fyrstu stigum. Allar í hlutastörfum. Fleiri
munu bætast í hópinn, þeirra á meðal Sig-
rún Hjartardóttir kvensjúkdómalæknir.
„Móttakan mun bæta þjónustuna við
konur,“ segir Erla Gerður að lokum.
Erla Gerður Sveinsdóttir, heimilislæknir og
lýðheilsufræðingur. Mynd/gag
„Lítil þekking er á sjúkdómnum fitubjúg.
Honum er oft ruglað saman við offitu,“
segir Erla Gerður Sveinsdóttir heimil-
islæknir sem hefur lagt áherslu á offitu
í störfum sínum. Hún segir fitubjúg
algengan en misalvarlegan. „Þetta er
sjúkdómur sem herjar eingöngu á konur
og er hormónatengdur.“
Erla Gerður segir að fitubjúg bundinn
í erfðir. Verði breytingar á hormónabú-
skap, eins og við kynþroska, meðgöngu,
breytingaskeið, sem og við inngrip með
hormónum eins og pillunni, safni líkam-
inn upp fituvef á ójafnan máta.
„Þessi sjúkdómur veldur oft mikilli
sálarangist og getur orðið undirrót
erfiðs sambands við mat,“ segir hún.
„Sjúkdómnum er oft ruglað saman við
vefjagigt enda eru útbreiddir og illa
útskýranlegir verkir oft hluti af sjúk-
dómnum.“
Erla Gerður segir ekki auðvelt að
meðhöndla sjúkdóminn en ýmislegt
megi gera til að minnka bjúgsöfnun og
bólgumyndun. „En þegar sjúkdómurinn
er kominn á alvarlegt stig getur verið
nauðsynlegt að fara í aðgerð.“
Hjálpa konum með fitubjúg
ustuna. Hún segir að nýtt þjónustumódel
hafi verið tekið upp til að nýta megi sem
allra best 45 milljón króna árlegt fjár-
framlag ríkisins til miðstöðvarinnar.
„Við munum veita 2. stigs heilbrigðis-
þjónustu, sem þýðir að konum verður
vísað til okkar úr heilsugæslunni. Fyrsta
skrefið er að koma til okkar í hópfræðslu,
allt að 15 í einu, áður en einstaklingsvið-
töl fara fram. Konur
eru þannig betur upp-
lýstar um hvaða með-
ferðarkostir eru í boði
og einstaklingsviðtölin
nýtast þeim þá betur,“
segir hún.
Erla Gerður segir að
með hópfræðslu tak-
ist að þjónusta fjölda
kvenna. Áherslan verði
á fjóra málaflokka. Auk
breytingaskeiðsins eigi
að bæta þjónustu um
getnaðarvarnir. „Hér
verða ljósmæður og
hjúkrunarfræðingar