Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 4
380 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
387
Heiðrún Ósk Reynisdóttir, Margrét Kristín Kristjánsdóttir, Brynjólfur Árni Mogensen, Karl Konráð
Andersen, Tómas Guðbjartsson, Martin Ingi Sigurðsson, Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Meðferð höfuðstofnsþrenginga á Íslandi:
Víkkun, hjáveituaðgerð eða lyfjameðferð?
Þættir sem tengjast meðferðarvali sjúklinga með höfuðstofnsþrengingu eru aldur, út-
breiðsla kransæðasjúkdóms og hversu brátt ástand sjúklings er. Veruleg aukning hefur
orðið á höfuðstofnsvíkkunum og ekki er marktækur munur á lifun þeirra sem fóru í
hjáveituaðgerð eða kransæðavíkkun, en sjúklingahóparnir eru ólíkir.
395
Rakel Hekla Sigurðardóttir, Helgi Birgisson, Jón Gunnlaugur Jónasson, Kristín Huld Haraldsdóttir
Lifrarskurðaðgerðir á Íslandi 2013-2017. Samanburður við Svíþjóð með
tilliti til gæðaskráningar
Skurðmeðferð krabbameina í lifur er algengasta meðferðin sem gefur möguleika á
lækningu. Talsverð þróun hefur orðið í meðferð æxla í lifur á síðustu áratugum en lifrar-
skurðaðgerðir á Íslandi eru framkvæmdar á Landspítala. Aðgerðirnar felast aðallega í
hlutabrottnámi á lifur en í vissum tilvikum eru gerðar lifrarígræðslur sem framkvæmdar
eru í Svíþjóð.
403
Árný Jóhannesdóttir, Engilbert Sigurðsson
Notkun psilocybins við
meðferðarþráu þunglyndi
Niðurstöður úr rannsóknum benda til þess
að psilocybin dragi marktækt úr
þunglyndiseinkennum og þolist almennt
vel. Frekari rannsóknir munu leiða í ljós hvort lyfið hljóti markaðsleyfi á næstu árum.
Brýn þörf er á nýjum meðferðarúrræðum fyrir þá sem svara ekki hefðbundinni
þunglyndismeðferð.
F R Æ Ð I G R E I N A R
9. tölublað · 108. árgangur · 2022
383
Páll Matthíasson
Þunglyndi - algengt
og alvarlegt böl - þörf
fyrir nýjar lausnir!
Sníða þarf meðferð að
þörfum hvers og eins.
Gjarnan eru samlegðar-
áhrif af mismunandi leið-
um, enda oft engin ein leið
sem leysir málin til fulls.
Mikilvægt er að láta ekki
fordóma trufla val á þeirri
meðferð sem hentar best.
L E I Ð A R A R
385
Eiríkur Jónsson
Sókn og vörn
Það þarf að viðhalda
þjálfun og starfsánægju
skurðlækna og sam-
starfsfólks sem ótækt er
að nýti ekki kunnáttu
sína og getu til fulls. Í
skurðlækningum verður
að spila bæði sókn og
vörn.