Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 48
424 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Sjúkrahúsið á Akranesi er deildarskipt með handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild og
lyflækningadeild. Þá er á Akranesi fjölbreytt verkefni, margvíslegar stoðdeildir og færi á þverfaglegri
teymisvinnu er mikil. Fjölbreytt og öflug starfsemi er á skurðstofum með vaktþjónustu allan
sólarhringinn. Þar eru framkvæmdar rúmlega 800 kvensjúkdómaaðgerðir á ári. Á dagdeild skurðdeildar
eru einnig framkvæmdar aðgerðir sem ekki þarfnast innlagnar. Fæðingadeildin á HVE Akranesi er þriðja
stærsta fæðingadeild landsins þar er veitt sérhæfð þjónusta fæðinga- og kvensjúkdómalækna.
Áhugasamir eru velkomnir í heimsókn til að kynna sér aðstæður
Sótt er um: www.hve.is eða www.starfatorg.is.
Laun skv. Læknafélagi Íslands
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar
upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt staðfestu afriti af
opinberu starfsleyfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin.
Nánari upplýsingar veitir: Hrund Þórhallsdóttir, yfirlæknir. hrund.thorhallsdottir@hve.is eða í síma:
432-1000
Kvensjúkdóma- og fæðingalæknir HVE
Laus er til umsóknar staða sérfræðings kvensjúkdóma- og
fæðingalæknis við Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akranesi.
Umsóknarfrestur til og með 12. september 2022
Hæfnikröfur
➢ Sérfræðiviðurkenning sem kvensjúkdóma- og
fæðingalæknir
➢ Starfsleyfi Embætti landlæknis
➢ Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum
➢ Faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
➢ Íslenskukunnátta nauðsynleg
Helstu verkefni og ábyrgð
➢ Móttaka sjúklinga á göngudeild, skurðaðgerðir á
sviði kvensjúkdóma og fæðingahjálpar.
➢ Bakvaktir á fæðinga- og kvensjúkdómadeild
➢ Þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta
➢ Þátttaka í gæðastarfi.
LÆKNAFÉLAG ÍSLANDS - MAIN LOGO + 100 YEARS ANNIVERSARY LOGO
Læknadagar
16.- 20. janúar 2023
Takið dagana frá
Fræðslustofnun Læknafélags Íslands