Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 23
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 399
R A N N S Ó K N
og í Svíþjóð hins vegar (mynd 5). Sjá má að í um 40-50% aðgerða
sem framkvæmdar voru í Svíþjóð var aðeins um eitt meinvarp að
ræða. Á Íslandi var þetta hlutfall lægra, eða um 20-25%. Flestar
aðgerðirnar á Íslandi voru á tveimur til þremur æxlum. Einnig má
sjá að engin aðgerð var framkvæmd á 6 eða fleiri æxlum á Íslandi
en hlutfallið í Svíþjóð er allt að 20% í þeim hópi. Miðað er við fjölda
æxla sem sást á myndgreiningu fyrir aðgerð en ekki fjölda æxla í
meinafræðisvari, vegna þess að oft eru þau ekki greinanleg eftir
lyfjameðferð.
Samráðsfundir
Á tímabilinu voru 63% af öllum tilfellum, með frumæxli í lifur,
gallgöngum eða gallblöðru og meinvörpum í lifur, sem fóru í að-
Mynd 4. Fjöldi hlutabrottnámsaðgerða á lifur á hverja
100.000 íbúa á ári vegna meinvarpa í lifur, fram-
kvæmdar í ýmsum héruðum í Svíþjóð annars vegar og
Íslandi hins vegar. (SWE: Svíþjóð)
Mynd 5. Hlutfall aðgerða miðað við fjölda meinvarpa í lifur hjá aðgerðarsjúklingum á Ísland og í Svíþjóð.14
á Íslandi eru framkvæmdar árlega 1 til 3 aðgerðir á hverja 100.000
íbúa en þær eru tvær til 7 í Svíþjóð (mynd 4). Í Svíþjóð var hlutfall
þeirra sem greindust með meinvarp í lifur og fóru í skurðaðgerð á
lifur hærra, eða 37% miðað við 15% á Íslandi (p<0,05).
Aðeins tvær hitameðferðir vegna æxlis í lifur voru fram-
kvæmdar á Íslandi á tímabilinu, eða 0,012 á hverja 100.000 íbúa, en
fjöldinn í Svíþjóð var um það bil 1-2 á hverja 100.000 íbúa.14
Ekki var tölfræðilega marktækur munur á fylgikvillum eft-
ir skurðaðgerðir á lifur milli Íslandi og Svíþjóðar (tafla II). Mið-
gildi legudaga á spítala eftir aðgerð var sambærilegt við Svíþjóð.
Enginn lést innan 30 daga eftir aðgerð á Íslandi en í Svíþjóð var
dánarhlutfallið 1% 30 dögum frá aðgerð.
Niðurstöður sýndu að munur var á hlutfalli fjölda meinvarpa
í lifur sem voru meðhöndluð með aðgerð á Íslandi annars vegar