Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 22
398 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
inu, á 61 einstaklingi. Fimm sjúklingar, með meinvörp í lifur, fóru
tvisvar sinnum í aðgerð á tímabilinu og einn þrisvar sinnum.
Það gerir um 14 aðgerðir á ári. Af hlutabrottnámsaðgerðunum
reyndust 54 (79,4%) róttækar (R0) í meinafræðisvari. Meirihluti
sjúklinga, eða 41 (60%), var í ASA-flokki tvö en næstflestir, eða 22
(32%), í ASA-flokki þrjú.
Í heild fengu 29 sjúklingar (42,6%) fylgikvilla innan 30 daga frá
aðgerð. Fylgikvillarnir voru flokkaðir samkvæmt Clavien-Dindo-
flokkun. Hæsta hlutfall sjúklinga, eða 14 af 29 (48%), reyndist með
fylgikvilla í flokki 2, en ítarlegri skiptingu má sjá í töflu II. Enginn
lést innan 30 daga né 90 daga eftir aðgerð.
Miðgildi legudaga á spítala eftir aðgerð voru 7 dagar, 20%
hundraðsmörkin voru við 6 daga en 80% við 13 daga. Stysta inn-
lögnin var þrír dagar en sú lengsta 106 dagar. Allir nema þrír út-
skrifuðust heim innan 30 daga, en tveir af þessum þremur voru
útskrifaðir á aðrar sjúkrastofnanir á landsbyggðinni og því er ekki
vitað hvort þeir voru útskrifaðir heim innan 30 daga.
Samanburður við Svíþjóð
Hlutabrottnámsaðgerðir á lifur vegna frumæxla í lifur eða gall-
vegakerfi á hverja 100.000 íbúa sem framkvæmdar voru á Íslandi
voru færri en í Svíþjóð. Á Íslandi voru framkvæmdar árlega tvær
til 8 aðgerðir á hverja 100.000 íbúa, með að meðaltali fjórar aðgerð-
ir árlega, en í Svíþjóð voru árlega framkvæmdar frá fjórum upp
í 13 aðgerðir á hverja 100.000 íbúa. Fjöldi aðgerða virðist þó vera
að aukast á Íslandi, en það sama á við um Svíþjóð (mynd 3). Ef
aðgerðir á meinvörpum í lifur eru skoðaðar sérstaklega má sjá að
Mynd 3. Fjöldi hlutabrottnámsaðgerða á lifur á hverja 100.000 íbúa á ári vegna frumæxla í lifur eða gallvegakerfi, fram-
kvæmdra í ýmsum hérðuðum í Svíþjóð annars vegar og á Íslandi hins vegar. (SWE: Svíþjóð)
Tafla II. Tegundir fylgikvilla eftir lifrarskurðaðgerðir á Íslandi borið saman
við Svíþjóð. Ef sjúklingur fékk fleiri en einn fylgikvilla, kemur hann fyrir
oftar en einu sinni í töflunni. Ekki var um tölfræðilega marktækan mun að
ræða. Fjöldi (%).
Ísland
n=68
Svíþjóð
n=6505
Tegund fylgikvilla (% af heildarfjölda aðgerða)
Gallgangaþrengsli 0 (0) 30 (0,5)
Gallleki 5 (7,5) 465 (7,1)
Lifrarbilun 4 (6) 166 (2,6)
Blæðing 2 (3) 196 (3)
Rof eða leki á þörmum 0 (0) 57 (0,9)
Annar fylgikvilli frá þörmum 1 (1,5) 111 (1,7)
Fylgikvilli frá kviðvegg, til
dæmis sárrof
1 (1,5) 93 (1,4)
Nýrnaskaði/bilun 2 (3) 160 (2,5)
Fleiðruvökvi 5 (7,5) 338 (5,2)
Annar fylgikvilli frá lungum 2 (3) 192 (3,0)
Blóðsegi 0 (0) 138 (2,1)
Annar fylgikvilli frá hjarta eða
æðakerfi
3 (4,4) 205 (3,2)
Sýking 14 (21) 884 (13,6)
Kviðarholsvökvi (ascites) 4 (6) 170 (2,6)
Annað 4 (6) 448 (6,9)