Læknablaðið - 01.09.2022, Blaðsíða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 379
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
30 færri komu hvern dag í júní og júlí á bráðamóttöku Landspítala.
Spítalinn ætlar að takmarka fjölda þeirra sem liggja á göngunum við 15.
Óvissa í kortunum í vetur
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Biðin lengdist þótt færri
kæmu á bráðamóttökuna
900 færri komu á bráðamóttöku Landspítala
bæði í júní og í júlí miðað við maí í ár og sum-
armánuðina í fyrra. Þetta segir Jón Magnús
Kristjánsson sem leiðir viðbragðsteymi bráða-
þjónustunnar sem heilbrigðisráðherra skipaði í
júní. Ekki sjáist merki þess að aðsókn hafi aukist
annars staðar í kerfinu á sama tíma. Eitt af úr-
ræðum sumarsins hafi verið að ráða 6 erlenda
lækna til starfa, tvo til lengri tíma.
„Þrátt fyrir minni aðsókn sjáum við að bið
eftir þjónustu lengist, fleiri liggja á göngunum
og bíða lengur eftir innlögn á aðrar deildir,“ seg-
ir hann. Biðin sé nú orðin sambærileg við það
sem var fyrir COVID. „Meðalbiðtími þeirra sem
lögðust inn á aðra deild var 23,5 klukkustundir
í júlí.“ Samkvæmt tölum spítalans var hún 21
klukkutími í júní, rétt eins og fyrir COVID.
Jón segir rót vandans á bráðamóttökunni
enn vera fráflæði sjúklinga á aðrar deildir.
Tvær meginleiðir séu til að bæta úr stöðunni:
Að fjölga fullnægjandi úrræðum fyrir einstak-
linga með færniskerðingu utan Landspítala. Að
ákvarða hámarkstíma sem einstaklingar megi
vera á bráðamóttökunni. Lausn sem leiði til auk-
ins álags á öðrum deildum.
„Reynt verður að fara báðar þessar leiðir,“
segir Jón, og að stefnt verði á að 100 með-
ferðarrými utan Landspítala verði opnuð á
haustmánuðum. Framkvæmdastjórn spítalans
hafi tekið þá ákvörðun að setja hámark á fjölda
þeirra sem liggi á bráðamóttökunni á hverjum
tíma. Már Kristjánsson, forstöðumaður lyflækn-
inga- og bráðaþjónustu Landspítala, segir að
miðað sé við að um 15 liggi inni hverju sinni. Sú
tala verði 10 þegar meðferðarrýmin opni.
Jón segir að minni ásókn hafi verið ákveðinn
sigur í þungri stöðu bráðamóttökunnar en
hlutverk viðbragðsteymisins var að tryggja
bráðaþjónustu spítalans í sumar. „Ég tel að fjöl-
miðlaumfjöllun um stöðuna hafi hjálpað þar til.“
Helsta áskorun bráðamóttökunnar nú er skortur
á hjúkrunarfræðingum. Uppsagnarfresti þeirra
sem sögðu upp í vor er að ljúka.
„Það verður mikil áskorun fyrir Landspít-
ala að reka deildina þegar vantar um það bil
þriðjung hjúkrunarfræðinganna sem ættu að
vinna þar,“ segir hann. En þó sé jákvætt að 23
hjúkrunarfræðinemar hafi ráðið sig á deildina í
sumar.
Már segir að búast megi við fimmtu COVID-
bylgjunni og erfiðri inflúensu miðað við
reynsluna á suðurhveli jarðar. Þá séu miklar
breytingar í innra skipulagi og mönnunin
óvissuþáttur. „Ef við vegum þetta saman má
segja að horfurnar einkennist af óvissu.“
Jón Magnús Kristjánsson leiðir
viðbragðsteymi um bráðaþjónustu.
Mynd/gag
Móta hlutverk bráðadeilda
Ein megináhersla viðbragðsteymis um
bráðaþjónustu er að búa til stefnu og staðla
fyrir bráðamóttökurnar í Reykjavík, Keflavík,
á Akureyri og Selfossi.
„Núna þegar kreppir að heilbrigðiskerfinu
með vaxandi skorti á starfsfólki er afar mik-
ilvægt að hafa heildaryfirsýn svo nýta megið
takmarkað féð sem best,“ segir Jón Magnús
Kristjánsson forsvarsmaður teymisins. Hann
var yfirlæknir bráðamóttökunnar og sat í
átakshópi heilbrigðisráðherra um vanda henn-
ar 2020.
„Ég upplifi að nú séu úrræði sett í fram-
kvæmd,“ segir hann. „Hér er fullur vilji til að
gera allt sem hægt er til að leysa vandann.“