Læknablaðið - 01.12.2022, Side 15
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 543
R A N N S Ó K N
lenda í flugeldaslysum og þessi rannsókn var þar engin undan
tekning.1012
Sláandi var hversu mörg börn slösuðust við flugeldanotkun hér
á landi. Tæpur helmingur (46%) þeirra sem leituðu á bráðamót
töku vegna flugeldaáverka reyndust vera börn. Þetta var hærra en
í erlendum rannsóknum þar sem hlutfallið var almennt á bilinu
1542%.1012,17,18 Á tímabilinu slösuðust 12 börn á leikskólaaldri, eða
að meðaltali eitt á hverju ári. Sjö þeirra slösuðu sig á stjörnuljós
um, ýmist sjálf við notkun þeirra eða þau komust í snertingu við
notuð stjörnuljós. Einungis ung börn slösuðust vegna stjörnuljósa,
börn á aldrinum 13 mánaða til 9 ára. Skyldueftirliti með börnum
var ábótavant en einungis 37% slasaðra barna voru undir eftirliti.
Stjörnuljós líta út fyrir að vera saklaus ljósadýrð en þau brenna
skært og ná yfir 1000°C hita.19 Mestur skaði hlýst þó þegar kviknar
í klæðum fólks og geta stjörnuljós þá valdið alvarlegum áverk
um.20 Ekki fundust slík tilvik í þessari rannsókn en fræða þarf
foreldra betur um hættuna sem stafar af stjörnuljósum og banna
leikskólabörnum að nota þau.
Vert er að skoða ölvun slasaðra. Skráning ölvunar var ekki
nægilega góð til að geta sagt til um nákvæmar tölur í flugelda
slysum en breytan var einungis skráð hjá 11 einstaklingum og
voru 10 þeirra undir áhrifum. Þekkt er að áfengisneysla er algeng
á gamlárskvöld og að slík neysla lengir viðbragðstíma og minnkar
dómgreind. Það tvennt eru óumdeildir áhættuþættir fyrir alvar
legar útkomur þegar verið er að handleika sprengiefni. Ljóst er
að bæta þyrfti skráningu til muna til að geta dregið ályktanir um
raunverulegt samband ölvunar, áfengis og annarra vímugjafa, og
slysatíðni sökum flugelda.
Notuð eru ýmis kóðunarkerfi í heilbrigðisvísindum, þar á
meðal Alþjóðleg tölfræðiflokkun sjúkdóma og heilbrigðisvanda
mála ICD10. Áverkagreiningarkóði W39 stendur fyrir flugelda
slys. Ekki hefur verið hefð fyrir notkun hans hérlendis en hann
var einungis skráður í 12 af 248 slysum. Því er ljóst að rannsókn
sem þessi getur ekki farið fram á grundvelli leitar eftir þeim kóða.
Unnið er að því að endurskoða skráningarkerfi fyrir orsakir áverka.
Brýnt er að hraða þeirri vinnu þannig að með rauntímaskráningu sé
betur hægt að fylgjast með umfangi og alvarleika flugeldaslysa.
Sem fyrr segir fundust 54 hliðarslys vegna flugelda í rannsókn
inni. Einstaklingarnir höfðu til dæmis verið skaðaðir af fældum
dýrum, leitað lækninga sökum loftmengunar, hrasað við að forð
ast flugelda eða hrasað um flugeldaleifar, svo fátt eitt sé nefnt. Þess
ber að geta að skráning þessara slysa náði ekki nauðsynlega utan
um allar flugeldatengdar komur, svo sem vegna mengunar, þar
sem ekki var sóst eftir þeim. Í reynd eru vísbendingar um að þær
komur séu talsvert fleiri.21 Lítið sem ekkert virðist hafa verið fjall
að um þessa áverka í erlendum rannsóknum og kom umfang þeirra
nokkuð á óvart við yfirferð á gagnagrunninum. Þó nokkuð var
um að flugeldar fældu gæludýr og eru sumir dýraeigendur orðnir
langþreyttir á flugeldum.22 Hávaði og ljósblossar gera dýrin hrædd
og skelkuð, til að mynda fældust hestar á Menningarnótt árið 2006
og hlupu fyrir bílaumferð á Vesturlandsvegi við Köldukvísl með
þeim afleiðingum að tveir einstaklingar létust.23, 24 Þá var áhuga
vert að þrjú tilvik fundust þar sem flugeldar höfðu verið notaðir við
líkamsárásir. Þó ekki hafi verið áverkar sökum flugeldanna í þeim
tilvikum, eru tilfellin áminning um að flugeldar eru, í eðli sínu,
hættulegir og hægt er að nota þá sem vopn.
Algengast var að slasa sig á rakettum, næst skottertum og þá
var þriðja algengasta orsökin handblys. Erlendis er algengt að fólk
slasi sig á tívolíbombum.1013 Enginn slasaðist við notkun þeirra á
rannsóknartímabilinu, því virðist banninu við notkun þeirra og
innflutningi hafa verið framfylgt og það borið árangur.
Þó nokkuð af gölluðum flugeldum ollu slysum á tímabilinu,
en alls voru 96 (39%) flugeldanna, sem ollu slysum, taldir gallað
ir. Flutt eru til landsins um 550 tonn af flugeldum árlega og er
því aðeins um brot af því að ræða.25 Mikið forvarnarstarf hefur
átt sér stað á liðnum árum á vegum Slysavarnafélagsins Lands
bjargar, á borð við auglýsingaherferðir og kennslu í skólum ásamt
vitundarvakningu um gleraugnanotkun.26 Þrátt fyrir það er röng
meðhöndlun fólks á flugeldum tengd við 33% slysanna og því má
áætla að auka mætti fræðslu um notkun flugelda meðal almenn
ings í landinu enn frekar.
Lítið var um heimagerða flugelda í þessari rannsókn samanbor
ið við erlendar samantektir og fyrri skrif hér á landi en einungis
5,6% slysanna urðu af völdum breyttra flugelda.11,1618 Höfund
ar gefa tvær mögulegar ástæður fyrir þessu. Annars vegar er
möguleiki á því að öflugt forvarnarstarf fyrri ára sé að skila ár
angri og minna sé um breytta flugelda. Hins vegar gæti verið að
skráning á þessu atriði sé ófullkomin í sjúkraskrám.
Sé tekinn saman fjöldi áverka á hverjum einstaklingi eft
ir tegund flugelds, kemur í ljós að þeir sem slasast af völdum
Tafla III. Áhrif flugelds á hvaða áverka einstaklingur hlýtur. Fjöldi (%).
Flugeldategund Bruni Sár Mar Brot
Rakettur (N=56) 33 (59) 26 (46) 7 (13) 3 (5)
Tertur (N=43) 25 (58) 23 (53) 6 (14) 3 (7)
Blys (N=34) 27 (79) 9 (26) 0 (0) 2 (6)
Flugeldur smádót (N=19) 16 (84) 3 (16) 0 (0) 0 (0)
Flugeldaryk (N=15) 1 (7) 7 (47) 0 (0) 0 (0)
Stjörnuljós (N=8) 8 (100) 1 (13) 0 (0) 0 (0)
Flugeldaprik (N=6) 0 (0) 6 (100) 0 (0) 0 (0)
Sprengja (N=5) 3 (60) 4 (80) 0 (0) 1 (20)
Ótilgreindur (N=62) 44 (71) 18 (29) 3 (5) 1 (2)
ALLS (N=248) 157 (63) 97 (39) 16 (6) 10 (4)