Læknablaðið - 01.12.2022, Page 20
548 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
R A N N S Ó K N
gerðin við gláku síðustu áratugi þar sem búin er til hjáveita eða
fistill sem veitir vökva út úr auganu framhjá síuvef augans. Að
gerðin getur haft sjaldgæfa en alvarlega fylgikvilla í för með sér.6,8
Því hefur aðgerðinni oftast verið beitt í alvarlegri tilfellum þegar
sjúkdómurinn versnar þrátt fyrir meðferð eða þegar fylgikvillar
lyfjameðferðar koma fram.2,9
Á Íslandi hafa ekki verið gerðar rannsóknir á sjónsviðs
skerðingu þeirra sjúklinga sem undirgangast skurðaðgerðir vegna
gláku fyrr en með grein Elínar B. Tryggvadóttur og félaga sem
birtist í Læknablaðinu í apríl 2020. Þá var rannsökuð sjónsviðs
skerðing augna sem undirgengust fyrstu hjáveituaðgerð.6
Í þeirri rannsókn kom í ljós að tæplega 80% sjúklinganna voru
með alvarlega eða miðlungsalvarlega sjónsviðsskerðingu við til
vísun í aðgerð. Sjónsviðsskerðingin var heldur meiri en í erlendum
samanburðarrannsóknum.10,11
Af því má álykta að margir glákusjúklingar séu sendir seint í
skurðaðgerð til að hægja eða stöðva framgang sjúkdómsins.
Á síðastliðnum árum hafa orðið stórstígar framfarir í gláku
aðgerðum með tilkomu svokallaðra MIGSaðgerða (minimally in-
vasive glaucoma surgery). Þetta er flokkur mismunandi aðgerða sem
felur í sér minna inngrip samanborið við hefðbundna hjáveitu
aðgerð. Hún er yfirleitt gerð innan frá í auganu, tekur styttri
tíma og sjúklingar eru fljótari að ná sér. Í mörgum tilfellum er
örsmáum ígræðum komið fyrir sem búa til nýtt frárennsli.1214
MIGSaðgerðir eru fjölmargar en þær eru ýmist gerðar með eða
án augasteinaskipta. Ábendingar aðgerðanna eru mismunandi og
því er niðurstöðunum í þessari rannsókn skipt í tvo hópa, MIGS
aðgerð með eða án augasteinaskipta.15
Mikilvægt er að fá vísbendingar um hvort glákuaðgerðir séu
gerðar nógu tímanlega á íslenskum sjúklingum. Með tilkomu
MIGSaðgerðanna mætti ætla að augnlæknar sendu sjúklinga til
skurðaðgerða fyrr í sjúkdómsferlinu. Megintilgangur þessarar
rannsóknar var að skoða alvarleika sjónsviðsskerðingar þegar
sjúklingum var vísað í MIGShjáveituaðgerð. Niðurstöður voru
bornar saman við sjónsviðsskerðingu hjá sjúklingum sem vís
að var í hefðbundna hjáveituaðgerð á Íslandi ásamt því að bera
saman við erlendar rannsóknir.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin var afturskyggn og náði til allra sjúklinga sem undir
gengust sína fyrstu MIGaðgerð á tímabilinu 1. janúar 2019 til 30.
júní 2020. Upplýsingar fengust úr sjúkraskrárkerfi Landspítala
og Augnlækna Reykjavíkur. Leyfi voru fengin fyrir rannsókn
inni hjá vísindasiðanefnd (leyfi 20154), Persónuvernd og fram
kvæmdastjóra lækninga á Landspítala.
Gláka er krónískur taugasjúkdómur (chronic optic neuropathy) og
er hækkaður augnþrýstingur sterkasti áhættuþátturinn. Allir sem
teknir voru með í núverandi rannsókn voru greindir með gláku
þrátt fyrir að sumir væru ekki með neinar breytingar á sjónsviði
en oft koma sjóntaugaskemmdir fram áður en sjónsviðsskerðing
mælist.16,17 Í rannsókninni var Hodappglákuflokkunin notuð til
samanburðar, MD (mean defect) <6 dB flokkast sem væg sjónsviðs
skerðing, MD 612 dB sem miðlungsalvarleg og MD >12dB sem
alvarleg sjónsviðsskerðing.18
Á rannsóknartímabilinu voru framkvæmdar 137 MIGSað
gerðir, allar aðgerðirnar voru framkvæmdar af sama skurðlækni.
Á tímabilinu voru einnig framkvæmdar 78 hjáveituaðgerðir
(trabeculectomy), 22 canaloplastyaðgerðir og 32 Ahmed shuntí
setningar.
Tafla I. Upplýsingar um úrtak rannsóknar skipt eftir því hvort MIGS (minimally invasive glaucoma surgery) aðgerð
var framkvæmd með augasteinaskiptum eða ekki. Sýnt er meðaltal ± staðalfrávik. Fjöldi (%).
Heildarhópur Með augasteinaskiptum Án augasteinaskipta
Fjöldi sjúklinga 112 44 68
Aldur við aðgerð 75 ± 11 77* ± 6 73* ± 13
Augnþrýstingur, mmHg 23,0 ± 5,9 22,0 ± 5,5 23,7 ± 6,1
Þykkt hornhimnu, μm 530¢ ± 42,4 521¢¢ ± 41 534¢¢¢ ± 43
Sjónsviðsskerðing 8,8 ± 6,4 6,3* ± 6,0 10,3* ± 6,2
Fjöldi glákulyfja 2,3 ± 1,2 1,8* ± 1,0 2,6* ± 1,1
Gerð MIGS-aðgerðar
Xen 79 (70) 18 (41) 61 (90)
iStent 26 (23) 26 (59) 0
PreserFlo 7 0 7 (10)
Gerð gláku
Frumgleiðhorna 81 (72) 29 (66) 52(76)
Flögnunar 24 (21) 14 (32) 10 (15)
Lágþrýstings 5 (4) 0 5 (7)
Litar 2 (2) 1 (1) 1 (1)
¢Gögn fyrir 44 af 112, ¢¢gögn fyrir 13 af 44, ¢¢¢gögn fyrir 31 af 68, *Markverður munur á breytum (p<0,01) milli undirhópanna tveggja.