Læknablaðið - 01.12.2022, Page 30
558 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
F R É T T I R
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra
ræddi mikilvægi alþjóðlega námsins sem
fer fram við læknadeild Komeníusarhá
skólans í Martin við heilbrigðisráðherra
Slóvakíu í opinberri heimsókn á dögunum.
Forsetinn og heilbrigðisráðherra hittu
íslenska læknanema í Slóvakíu
„Er ekki skrítið að fólk geti tekið þá
ákvörðun að ferðast til útlanda í meirihátt
ar breytingar á meltingarfærum sínum án
þess að tala við nokkra heilbrigðisstétt?“
spyr Hildur Thors, læknir offituteymis
Reykjalundar. Það sé ekki samþykkt fyrir
aðra sjúkdóma eða heilbrigðisþjónustu.
„Þetta er villta vestrið,“ segir hún og
kallar eftir því að fólkið fái undirbúning
og árlega eftirfylgni eins og klínískar
leiðbeiningar segi til um.
Í venjulegu árferði fara allt að 150 í
efnaskiptaaðgerð á Landspítala en nú
hafi dregið úr og skjólstæðingar sendir
til Svíþjóðar. Yfir 1000 einstaklingar fóru
í efnaskiptaskurðaðgerð á Klíníkinni
árið 2021, samanborið við 34 upphafsárið
2017, samkvæmt fréttum RÚV í fyrra. Þá
er óþekkt hve mörg sækja út fyrir land
steinana. Hildur segir bagalegt að þær
upplýsingar skorti.
„Er fólk að þessu fyrir útlitið eða vegna
hættulegra efnaskiptasjúkdóma, eins og
hjarta og æðasjúkdóma og sykursýki, sem
geta stytt líf þess?“ spyr hún og útilokar
ekki að fordómar gegni hlutverki í því að
ákvarðanir um efnaskiptaaðgerð séu látn
ar óáreittar og á ábyrgð einstaklinganna
sjálfra og jafnvel ýti einstaklingum af stað
í slíka aðgerð án umhugsunar. „Það er
farið að líta á efnaskiptaskurðaðgerðir sem
útlitsaðgerð,“ segir Hildur.
Hún segir skilyrði að fólk fari í eftirlit
einu sinni á ári eftir efnaskiptaaðgerðir
það sem eftir er ævinnar. „Ég veit ekki
hve margir sinna því,“ segir hún og það
sé ekkert skipulagt eftirlit sem neinn haldi
utan um. „Fólk fær kannski ráðleggingar
en enginn fylgist með því hvort þeim er
fylgt.“
Hildur bendir á að til séu klínískar
leiðbeiningar frá árinu 2020 um hvernig
meðhöndla eigi fullorðna með offitu. „Þar
eru ákveðin skilmerki sem við teljum að
fara eigi eftir,“ segir hún. „Þær eru sam
hljóða þeim sem gilda í Evrópu.“ Þetta séu
leiðbeiningar, ekki lög, og því hverjum
lækni í sjálfsvald sett að fylgja þeim. „Þær
eru gerðar samkvæmt bestu vitneskju og
ef fólk vill vera faglegt fylgir það þeim.“
Hildur segir andann vera þannig að
vilji fólk borga, fái það aðgerðina. Þau
finni oft á Reykjalundi að þegar fólk sé
loks boðað í meðferð sé það búið að fara í
Offita er sjúkdómur sem ekki á
að meðhöndla með útlitsaðgerð
„Offita er sjúkdómur og við verðum að taka á honum sem slíkum,“ segir Hildur Thors, læknir
offituteymis Reykjalundar. „Farið er að líta á efnaskiptaskurðaðgerðir sem útlitsaðgerð,“ segir hún og
kallar eftir því að þau sem fara á eigin vegum í aðgerð geti fengið undirbúning og eftirfylgni
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fylgdi forseta Íslands í opinbera heimsókn til Slóvakíu. Þeir hittu íslenska læknanema þar og má sjá þá hér ásamt Elizu Reed
forsetafrú með hópnum. Mynd/forsetaembættið
Einnig ýmsa samstarfsfleti milli landanna
til framtíðar á sviði menntunar og vísinda.
Ráðherrann fylgdi forseta Íslands. Þeir
heimsóttu einnig íslenska læknanema.
„Öll aðstaða í skólanum er til fyrir
myndar og það var einstaklega skemmti
legt að sjá hversu framúrstefnulegt og vel
búið færni og hermisetur er í skólanum,“
segir Willum. Við skólann stunda nú um
170 Íslendingar nám í læknisfræði og 79