Fréttablaðið - 16.03.2023, Side 2
Ég er með átta bóka-
skápa og nota þær
bækur á hverjum
einasta degi.
Arngrímur Vídalín Stefánsson,
lektor í íslenskum bókmenntum
Skýr skilaboð
„Engin manneskja er ólögleg,“ var hrópað á mótmælum gegn útlendingafrumvarpi Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra við Alþingi þar sem greidd voru
atkvæði um frumvarpið í gærkvöldi. Frumvarpið var samþykkt með atkvæðum 38 þingmanna gegn 15. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Aðalfundur Ferðafélagsins Útivistar verður haldinn
fimmtudaginn 30. mars 2023 kl. 20.
Fundurinn verður haldinn í sal Garðyrkjufélags
Íslands að Síðumúla 1.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Ferðafélagið Útivist
AÐALFUNDUR
Undirskriftasöfnun er hafin
til að verja einkaskrifstofur
kennara Háskóla Íslands.
Verið er að færa aðstöðu
kennaranna í opin rými og
„hot-desking“.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SKÓLAMÁL Vel á fjórða hundrað
hafa undirritað áskorun um að
snúið verði við ákvörðun um að
kennarar Háskóla Íslands missi
einkaskrifstofur sínar.
„Það er eins og enginn hafi pælt
neitt í þessu,“ segir Arngrímur
Vídalín Stefánsson, lektor í íslensk-
um bókmenntum og forsvarsmaður
undirskriftalistans. Í samræmi við
skipanir Framkvæmdasýslu ríkis-
ins til opinberra vinnustaða verða
starfsmenn færðir í opin rými.
Deild Arngríms er færð úr Árna-
garði yfir í Hús íslenskra fræða, en
þar verða ekki einu sinni föst skrif-
borð í boði heldur þurfi starfsfólk að
leita að næsta lausa borði, svokallað
„hot-desking“. Þá verður farið yfir í
að rífa veggi út úr Árnagarði.
„Þetta hefur gefið af sér mjög illa
raun í öllum tilvikum sem ég veit
um,“ segir Arngrímur og vísar til
dæmis til Háskólans í Malmö þar
sem hafi þurft að verja miklum fjár-
munum til að endurbyggja veggi.
„Þetta hefur verið reynt víða með
hörmulegum árangri. Þetta dregur
úr allri samvinnu, starfsánægju og
rannsóknarvirkni,“ segir Arngrímur
og leggur áherslu á rannsóknarhlut-
verk háskólakennara. „Ég er með
átta bókaskápa og nota þær bækur
á hverjum einasta degi til að stunda
mínar rannsóknir.“
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
febrúar eru að verða miklar breyt-
ingar á nýtingu fasteigna ríkisins.
Algengt var að ríkisstarfsmenn
hefðu 25 fermetra rými en í dag hafa
þeir 15 fermetra.
Arngrímur segir þetta ekki henta
háskólakennurum, sem eru oft að
vinna með viðkvæm gögn. „Við
eigum að sitja saman í eins konar
lobbíi sem lítur út eins og flugstöð
eða mathöll með tölvurnar okkar
fyrir framan alla,“ segir hann. Ekki
sé heldur gert ráð fyrir að kennarar
geti fundað með nemendum sínum,
oft um viðkvæm málefni.
Aðspurður hvort einkaskrifstofur
séu umhverfisvænar segir Arn-
grímur að það niðurrif sem nú sé í
gangi sé hvorki umhverfisvænt né
sé sögufrægum byggingum sýndur
sómi. Nefnir hann niðurrif innan úr
Hótel Sögu, sem Háskólinn keypti,
því til stuðnings.
„Þetta er stærsta k jaramál
háskólakennara frá upphaf i,“
segir Arngrímur og að kominn sé
tími til að binda vinnuaðstöðu í
kjarasamninga. „Ég lít svo á að ef
Framkvæmdasýsla ríkisins eða
viðkomandi ráðuneyti ætlar ekki
að mæta þessari sjálfsögðu kröfu
þá sé jafnvel kominn tími til þess að
við sýnum það í verki að við getum
lamað háskólann,“ segir hann.
Reiknar Arngrímur með að funda
með rektor þegar undirskriftasöfn-
un lýkur. Það fari eftir árangri þess
fundar hvað gerist næst. n
Háskólakennarar harma
að missa einkaskrifstofur
Arngrímur segir málið stærsta kjaramál háskólakennara. MYND/AÐSEND
erlamaria@frettabladid.is
LEIKSKÓLAMÁL Thelma Björk Wil-
son, móðir í Reykjavík, segist í áfalli
yfir því að það stefni í neyð í leik-
skólamálum í Reykjavík.
„Meðalaldur barna við inntöku í
leikskóla í borginni er tæplega tutt-
ugu mánuðir og það hefur verið
þannig í einhver ár. Barnið mitt er
sjö mánaða en í haust þrýtur mitt
fæðingarorlof við tólf mánuði,“ segir
Thelma og spyr hvað þá taki við.
„Á annar aðilinn á þessu heimili
að vera heima með barnið og vera
tekjulaus á meðan? Hversu lengi?“
spyr Thelma í samtali við Frétta-
blaðið.
Thelma stofnaði Facebook-síðuna
Leikskólamál í lamasessi 2023. Þar
boðar hún til mótmæla í Ráðhúsi
Reykjavíkur klukkan níu fyrir
hádegi í dag.
„Við ætlum að krefja borgina
svara. Ég hvet alla til að mæta, for-
eldra með börnin sín, ömmur, afa
og vinnuveitendur. Það eru allir í
vandamálum varðandi þetta og
þetta þarf að laga,“ segir Thelma. n
Krefja borgina svara um leikskólamál
Thelma Björk Wilson mótmælir.
helenaros@frettabladid.is
UMFERÐ Íbúar í Laugardal eru
orðnir langþreyttir á bílaumferð
um göngustíg við bílastæði World
Class. Eftir langa bið fékk Sóley Kal-
dal loks áheyrn hjá fulltrúa Reykja-
víkurborgar í fyrradag.
Að sögn Sóleyjar var upplýst að
borgin forgangsraðaði stöðum
sem þarfnist breytinga og að þessi
staður væri ekki á topplistanum. Þó
hefði verið samþykkt að setja niður
steypu klumpa á tveimur stöðum.
„Í rauninni mun umferðin til að
byrja með vera jafn mikil þar til fólk
fattar að það komist ekki lengur
þarna,“ segir Sóley. Langtímaáætlun
borgarinnar sé að fjarlægja stæðin
næst líkamsræktarstöðinni. n
Fjarlægja umdeild
bílastæði síðar
Sóley Kaldal
Göngustígurinn og bílastæðin.
2 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023
FIMMTUDAGUR