Fréttablaðið - 16.03.2023, Síða 6
Uppboðið fer fram alla
daga frá 9 til 21.
Vörubretti með dóti verða seld
hæstbjóðanda hjá Góða hirðinum.
lovisa@frettabladid.is
UMHVERFISMÁL Frá 20. mars til þess
24. verður uppboð daglega á Euro-
brettum sem safnast hafa upp hjá
Góða hirðinum síðustu daga. Versl-
uninni var lokað í síðasta mánuði
vegna f lutninga og frá því hefur
ekkert farið út en mikið komið inn.
Framkvæmdastjóri segir um sjö
tonn koma inn á hverjum degi.
Í tilkynningu frá Góða hirð-
inum segir að uppboðið fari fram
á Facebook-síðu Góða hirðisins frá
klukkan 9 til 21 á hverjum degi.
Fyrirkomulag uppboðsins verður
þannig að sett verður inn mynd af
bretti sem verður hægt að bjóða
í og tekið fram hvaða vöruf lokki
vörurnar á því tilheyra og hvað er
mikið á því. Dæmi er til dæmis leik-
fangabretti með tólf kössum af dóti.
Boðið fer þannig fram að skilin
eru eftir ummæli fyrir neðan færslu
með upphæð, fullu nafni og síma-
númeri. Boð eru bindandi. n
Uppboð á notuðu dóti
Auglýsing um skipulagsmál
í Sveitarfélaginu Vogum
Sveitarfélagið Vogar auglýsir forkynningu á tillögu að
breytingu á aðalskipulagi og nýju deiliskipulagi við
Kirkjuholt í samræmi við 2. mgr. 30 gr. og 4. mgr.
40. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fyrirhugað er að koma fyrir nokkrum íbúðarlóðum þar sem
gert er ráð fyrir sérbýlis- og fjölbýlishúsum á 1-2 hæðum.
Breyta þarf aðalskipulagi vegna breytinga á landnotkun.
Viðfangsefni deiliskipulagsins er m.a. að afmarka lóðir og
byggingarreiti ásamt því að skilgreina fyrirkomulag aðkomu
og setja þau ákvæði sem ástæða er til í deiliskipulag.
Skipulagsgögnin er hægt að nálgast á vef sveitarfélagsins
www.vogar.is
Opið verður hjá skipulags- og byggingarfulltrúa á bæjarskrif-
stofu að Iðndal 2, 190 Vogum miðvikudaginn 22. mars 2023
milli kl. 13:00 – 16:00 þar sem íbúum og hagsmunaraðilum
gefst kostur á að kynna sér tillögurnar.
Íbúar og hagsmunaaðilar geta sent inn ábendingar varðandi
tillögurnar á bæjarskrifstofu að Iðndal 2, 190 Vogum, eða á
netfangið byggingarfulltrui@vogar.is fyrir 29. mars 2023.
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Fjármálaráðuneytið heldur sig við ranga staðhæfingu Bjarna Benediktssonar á þingi um frétt Fréttablaðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Enn hafa engar tímaskýrslur komið fram vegna reikninga Íslaga til fjármála-
ráðuneytisins og Lindarhvols. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fjármálaráðuneytið hefur
enn ekki getað sýnt fram á
að neinar tímaskýrslur hafi
fylgt reikningum Íslaga vegna
vinnu fyrir ráðuneytið og
Lindarhvol.
olafur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Fjármálaráðherra
sagði á þingi á mánudag að forsíðu-
frétt Fréttablaðsins síðastliðinn
föstudag, hefði verið röng „að öllu
leyti“.
Óskað var skýringa á þessum
ummælum vegna þess að fréttin
byggðist að mestu á gögnum frá
ráðuneytinu. Svar barst frá ráðu-
neytinu í gær.
Upplýsingafulltrúi fjármálaráðu-
neytisins ítrekar staðhæfingu fjár-
málaráðherra á Alþingi á mánudag
um að frétt Fréttablaðsins síðast-
liðinn föstudag um að engar tíma-
skýrslur væru á bak við tíu þúsund
tíma reikninga frá lögfræðistofu
Steinars Þórs Guðgeirssonar, sem
greiddir voru vegna vinnu fyrir
ráðuneytið og Lindarhvol, hafi verið
röng „að öllu leyti“.
Ráðuneytið heldur því fram að
skýrslur hafi verið gefnar vegna
allra reikninga og skrifar:
„Í tilviki Lindarhvols fylgdu
ekki sundurliðaðar tímaskýrslur
reikningum heldur voru skýringar
látnar stjórn félagsins í té reglulega á
meðan eiginleg starfsemi fór fram.“
Þetta fer hins vegar í bága við
verksamning milli Lindarhvols og
Íslaga. Þar stendur:
„Í upphafi hvers mánaðar skal
verktaki skila verkbeiðanda tíma-
skýrslu ásamt reikningi vegna verk-
efna sem hann hefur sinnt í næst
liðnum mánuð á undan.“ Öllu skýr-
ara getur það ekki verið.
Rétt er að árétta að engar tíma-
skýrslur hafa fengist af hentar
vegna vinnu Íslaga fyrir Lindarhvol
og ráðuneytið og Esther Finnboga-
dóttir, starfsmaður ráðuneytisins
og eini stjórnarmaður Lindarhvols,
hefur lýst því yfir að engar tíma-
skýrslur séu fyrirliggjandi.
Ráðuneytið heldur því fram að
í fréttinni hafi „ranglega“ verið
gefið í skyn að reikningar upp á 181
milljón hafi verið vegna eins verk-
efnis. Þarna virðist ráðuneytið fara
með vísvitandi f leipur. Í fréttinni
stendur að ráðuneytið hafi frá 2016
greitt Íslögum 181 milljón „fyrir
ýmsa lögfræðiþjónustu án þess að
tímaskýrslur hafi verið lagðar fram
fyrir þeirri vinnu sem rukkað var
fyrir. Var þessi vinna meðal annars
vegna Lindarhvols.“
Þá er einnig rangt hjá ráðuneyt-
inu að í fréttinni hafi því verið
haldið fram að kaup á þjónustu
Íslaga hafi ekki samræmst reglum
um opinber innkaup. Einungis er
bent á að verkefnið hafi ekki verið
boðið út og vísað til gildandi laga.
Ráðuneytið vísar í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar til að mótmæla
þeirri staðhæfingu sem fram kemur
í fréttinni, að skiptar skoðanir séu
um gæði þeirrar vinnu sem ráðu-
neytið greiddi fyrir. Alþingi hefur
ekki afgreitt þessa skýrslu Ríkis-
endurskoðunar einmitt vegna þess
að greinargerð Sigurðar Þórðar-
sonar hefur verið haldið leyndri,
en í henni koma fram alvarlegar
athugasemdir við starfsemi Lindar-
hvols sem fullkomlega er skautað
fram hjá í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar, auk þess sem sýnt hefur
verið fram á alvarlegar og umfangs-
miklar staðreyndavillur í skýrslu
Ríkisendurskoðunar. Verður því að
teljast óheppilegt hjá ráðuneytinu
að vísa til hennar sem áreiðanlegrar
heimildar um gæði vinnu Steinars
Þórs Guðgeirssonar.
Vart hefur það heldur farið fram
hjá neinum undanfarnar vikur og
mánuði að tekist er á um birtingu
greinargerðar setts ríkisendur-
skoðanda sem gagnrýnir meðal
annars umrædda skýrslu og vinnu
og aðskilnað verkefna og ábyrgðar
hjá Íslögum. n
Enn engar tímaskýrslur
Esther Finnbogadóttir,
starfsmaður ráðuneyt-
isins og eini stjórnar-
maður Lindarhvols,
hefur lýst því yfir að
engar tímaskýrslur séu
fyrirliggjandi.
bth@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Ný gögn sýna
aukningu í unglingadrykkju hér á
landi að sögn Ársæls Arnarssonar,
prófessors á menntavísindasviði
Háskóla Íslands. Drykkja ungmenna
er þó nánast eins lítil og almennt ger-
ist á byggðu bóli að sögn hans.
„Auðvitað viljum við ná þessum
tölum enn neðar og það er mikilvægt
að gera sér grein fyrir því að sá árang-
ur sem náðst hefur er ekki sjálfgefinn
heldur krefst þess að forvörnum sé
sinnt af einurð,“ segir Ársæll.
Spurður hvort stytting fram-
haldsskólans hafi komið illa við
suma nemendur, aukið álag og gert
nemendur útsettari fyrir lyfjum og
vímuefnum, segir Ársæll það óljóst.
Eins mætti spyrja um áhrif Covid.
„Hins vegar er það svo að líðan
unglinga hefur verið að dala í
nokkuð mörg ár. Löngu fyrir Covid
vorum við farin að sjá merki um
það.“
Aukin skjánotkun veldur ákveðn-
um hópi unglinga enn frekari vanda
að sögn Ársæls.
„Það á ekki við um alla unglinga
en hjá nokkuð stórum hópi eru
sterk tengsl óhóf legrar notkunar
samfélagsmiðla og bágrar andlegrar
heilsu.“ n
Vanlíðan unglinga hófst fyrir Covid
Doktor Ársæll
Arnarsson
gar@frettabladid.is
BANDARÍKIN Tollverðir í höfninni í
Cincinnati í Bandaríkjunum fundu
gull að jafnvirði 9,7 milljóna króna
í sendingu með fatnaði að því er
skýrt var frá í gær.
Gullið fannst við reglubundið
eftirlit með gegnumlýsingu að því
er fréttastofa CBS greinir frá. Þegar
sendingin var opnuð komu í ljós
gullstangir og box með gullmolum.
Sendingin er sögð hafa komið frá
San Francisco og hafa verið á leið til
Hong Kong.
Hreinleiki gullsins reyndist vera
98 prósent og verðmæti þess því
67.830 dollarar. Uppgefið virði
sendingarinnar á fylgiskjölum var
hins vegar aðeins 125 dalir. Skylt er
að gera alríkisyfirvöldum sérstak-
lega grein fyrir sendingum sem eru
yfir 2.500 dollara virði. n
Fatnaður reyndist gull
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
6 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023
FIMMTUDAGUR