Fréttablaðið - 16.03.2023, Qupperneq 24
Mikil fiskneysla
gefur ómega-3
fitusýrur sem eru líkam-
anum afar gagnlegar.
Oft er talað um að matur sem
er ættaður frá Miðjarðarhaf-
inu sé góður og heilsusam-
legur kostur. Hvers vegna
ætli það sé? Svarið er fyrst og
fremst það að hann saman-
stendur af blönduðu fæði,
fiski, kjöti og grænmeti.
elin@frettabladid.is
Það má segja að uppistaðan í fæði
sem er mikið borðað í löndunum
umhverfis Miðjarðarhafið sé
fjölbreytt. Það er mikið af græn-
meti, rótargrænmeti, belgjurtum,
korni og pasta auk sjávarfangs,
hollrar fitu úr fiski og ólífuolíu. Þá
skiptir máli að íbúar þessa svæðis
njóta þess að sitja saman og borða.
Félagsskapurinn skiptir máli en
maturinn öðru fremur tengir
saman fjölskyldu og vini. Skyndi-
matur er ekki á borðum og að
henda í sig samloku á ferðinni er
ekki í boði. Miðjarðarhafsmatur er
ekki fituskertur en gæði fitunnar
skipta miklu máli í matreiðslunni.
Mikil fiskneysla gefur ómega- 3
fitusýrur sem eru líkamanum
afar gagnlegar en einnig er fita úr
ólífuolíunni, hnetum og möndlum
sem oft er notað í matargerðinni
og gefur bæði bragð og karakter.
Þannig er hollustan og hreinleik-
inn í fyrirrúmi. Það er einfalt að
verða sér úti um hráefni fyrir Mið-
jarðarhafsmáltíð. Um allan heim
hafa vísindamenn komist að því að
jafnvægi í Miðjarðarhafsmataræði
virðist leiða til minni hættu á
hjarta- og æðasjúkdómum, sykur-
sýki, offitu, vitglöpum og ákveðn-
um tegundum krabbameins.
Árið 2013 sýndi rannsókn sem
birtist í New England Journal
of Medicine að fólk sem heldur
sig við Miðjarðarhafsfæði væri
mun ólíklegra til að fá hjartaáfall,
heilablóðfall eða aðra hjarta- og
æðasjúkdóma en fólk sem borðar
lágfitu-mataræði. Þátttakendur í
rannsókninni sem borðuðu Mið-
jarðarhafsfæði með ólífuolíu og
hnetum minnkuðu áhættuna á
hjartasjúkdómum um 30%. Fólk
léttist á þessu mataræði og bólgur í
líkamanum minnkuðu.
Miðjarðarhafsmataræði hentar
mjög vel þeim sem æfa mikið eða
eru duglegir að hreyfa sig. Það
gefur góða orku og mettar vel. Á
Ítalíu er matur borðaður hægt,
helst í langan tíma. Hæg kolvetni
tekur langan tíma að brjóta niður
í líkamanum og gefur þannig orku
sem endist. Kolvetni úr sælgæti eða
gosdrykkjum gefa strax orku sem
klárast fljótt. D-vítamín sem er
öllum nauðsynlegt finnst í miklum
mæli í feitum fiski eins og laxi, síld
og makríl. Þá er Miðjarðarhafs-
matur járnríkur.
Lax í ofni með fetaosti
og ólífum
fyrir fjóra
Hér er uppskrift að einföldum laxi
sem er hollur og bragðgóður. Þar
fyrir utan eru fá innihaldsefni og
auðvelt að gera. Gott er að bera
þennan rétt fram með góðu fersku
salati.
600 g laxaflök
150 g fetaostur
4–5 sólþurrkaðir tómatar
70 g kalamata ólífur, steinlausar
Salt og pipar
Ferskt timían
Hitið ofninn í 150 gráður. Deilið
laxinum í fjóra bita og skerið
smá vasa ofan í hvern bita. Myljið
fetaost í skál, hakkið tómata og
ólífur og blandið saman við ostinn.
Setjið blönduna í vasann á laxinum.
Bragðbætið með salti og pipar.
Klippið smávegis timían yfir.
Bakið í 15 til 20 mínútur eða þar
til laxinn er eldaður. n
Borðaðu að hætti Miðjarðarhafsbúa
Grískur matur er bæði góður og heilsusamlegur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Einkennandi matur
við Miðjarðarhafið
er fjölbreyttur
n Grænmeti, ávextir og ber
n Fiskur og sjávarfang
n Belgjurtir, margs kyns
baunir
n Hnetur og möndlur
n Edik og ólífuolía
n Kolvetni í formi pasta,
brauðs og hrísgrjóna
n Kjúklingakjöt
N Æ R F A T A D A G A R
B R A N D S O N . I S
Gríptu tvennu á 50% afslætti
Tvennt úr nærfatadeild í körfu
Notaðu kóðann: BOGO
Skannaðu kóða og nýttu þér
50% AFSLÁTT
AF NÆRFÖTUM
8 kynningarblað 16. mars 2023 FIMMTUDAGURHEILSUR ÆKT