Fréttablaðið - 16.03.2023, Síða 30

Fréttablaðið - 16.03.2023, Síða 30
Pétur Marínó Jónsson, Mjölnis maður og helsti MMA- sérfræðingur þjóðarinnar, telur að Gunnar Nelson muni hafa betur í bardaga sínum við Bryan Barberena á laugardag- inn en muni þó ekki sleppa óskaddaður úr honum. UFC Gunnar Nelson stígur aftur fæti inn í bardagabúrið á vegum UFC á laugardaginn í O2 höllinni í Lund- únum, tæpu ári eftir að hann bar sigur úr býtum gegn Japananum Takashi Sato. Í aðdraganda bardagans lenti Gunnar í kunnuglegri stöðu þegar skipta þurfti um andstæðing hans. Upphaflega átti Gunnar að mæta Daniel Rodriguez en sá þurfti að draga sig úr keppni og í hans stað kom hinn reynslumikli Bryan Barberena. „Ég held að þetta sé alveg þokka- lega góð breyting,“ segir Pétur aðspurður hvernig þessi breyting komi út fyrir Gunnar. „Alla vegana ekki of slæm af því að Rodriguez og Barberena eru báðir örvhentir bar- dagakappar. Það er aðalkosturinn við þetta. Barberena er ábyggi- lega betri í glímumaður heldur en Rodriguez en báðir vilja standa í sínum bardögum og skiptast á höggum við andstæðinga sína, það er akkúrat það sem Gunnar vill ekki gera. Með tilliti til þess held ég að leikplanið hjá Gunnari fyrir þennan bardaga gegn Barberena sé það sama og hann hafði ætlað sér gegn Rodriguez, hann hefur kannski bara aðallega þurft að aðlaga sig stíl Barberena. Barberena sé betri en Rodriguez í því að koma sér upp frá gólfinu þegar að hann er tekinn niður. Gunnar eigi erfiðan bardaga fyrir höndum Aron Guðmundsson aron @frettabladid.is „En það hefði verið erfiðara að ná Rodriguez niður, við höfum séð það í bardögum Barberena áður, til að mynda gegn Colby Covington, að hann var tekinn tíu sinnum niður í gólfið. Það var hins vegar bara vegna þess að hann náði að standa níu sinnum upp. Það er því einhver munur á þessum tveimur andstæð- ingum en skiptin hefðu getað orðið mun verri fyrir Gunnar fyrst svona var í pottinn búið.“ Hundur sem vill glundroða En hvar liggur aðalhættan í bardaga við Barberena fyrir Gunnar? „Mér finnst aðalhættan við hann vera hundurinn sem býr í honum. Hann er alveg til í stríð í bardaga- búrinu, það er stíll sem Gunnar er alls ekki með. Barberena nær oft að draga andstæðinga sína í ein- hverja vitleysu og allir sem fara á móti honum þurfa að vera tilbúnir í þannig stríð. Gunnar þarf að vera tilbúinn í 15 mjög erfiðar mínútur í búrinu gegn Barberena því hann er harður af sér, ótrúlega seigur og til í að taka við tveimur höggum í stað þess að geta gefið eitt frá sér. Ef Gunnar fer í eitthvert svona stríð, þá er Barberena að fara vinna því hann þekkir þá stöðu að fara í stríð og skiptast á höggum. Hann vill glundroða og getur vel slegið frá sér, komið með olnbogahögg ef þeir eru þétt saman og mun vera eins og gormur að reyna standa upp ef Gunnar nær honum niður. Gunnar vill hafa sína bardaga meira tækni- lega, hafa meiri stjórn á hlutunum og taka sína andstæðinga niður í gólfið. Ég er alveg viss um að hann nái Barberena niður í gólfið en það verður bras að halda honum þar.“ Þá segir Pétur að Gunnar viti af einu vopni í vopnabúri Barberena sem hann kemur til með að nota. „Barberena sparkar mikið í fæturna á andstæðingum sínum, hann nær inn lágspörkum og það er ábyggilega það fyrsta sem hann mun gera í bardaganum gegn Gunn- ari. Ef hann fer að ná þeim höggum oft á Gunnar þá mun það fara segja rosa mikið til sín í annarri og þriðju lotu, þá gæti hraðinn og sprengi- krafturinn farið hjá honum af því að lappirnar eru farnar eftir ein- hver spörk. Það gæti haft áhrif á til- raunir Gunnars til þess að sprengja bardagann upp og ná Barberena í gólfið.“ Býr meira í honum Heyra má á fólkinu sem stendur næst Gunnari í hans undirbúningi að staðan á honum í aðdraganda bardagans sé mjög góð, um hafi verið að ræða einn besta undirbún- ing hans á UFC-ferlinum. „Ég held að þetta hafi bara gengið mjög vel hjá honum, maður hefði kannski verið til í að sjá hann vera lengur úti í Dublin hjá John Kav- anagh þjálfara sínum og SBG en staðan á honum er hrikalega góð verð ég að segja. Það hafa engin meiðsli verið að hrjá hann, það er eitt af því sem þjálfarateymið hans hefur nefnt því þeir hafa ekkert þurft að vinna í kringum einhver meiðsli eins og er oft raunin með bardaga- menn. Aðaláskorun þjálfaranna hefur verið að sannfæra Gunnar um tankinn sem hann býr yfir. Hann hefur verið í mikilli styrktar- og þolþjálfun undanfarin ár og er með mjög góðan tank sem hann þarf bara að fara treysta meira á. Að hann geti keyrt á meiri hraða í bardögum sínum en hann hefur verið að gera síðustu árin. Þjálfarar Gunnars eru sammála um að hann sé farinn að keyra hraðann upp á æf ingum sem gerir það að verkum að hann hefur verið að kýla og gera meira. Ég vona að það haldi áfram og að v ið fáum að sjá það í bardag- anum.“ Verið sé að vanmeta Barberena Á öllum helstu veðbönkum má sjá að Gunnar er talinn sigurstrang- legri bardagamaðurinn á laugar- daginn. Pétur telur hins vegar að mjórra sé mununum milli Gunnars og Barberena en veðbankar telja. Þeir séu kannski að horfa aðeins of mikið í þá staðreynd að Barberena tapaði síðasta bardaga sínum gegn Rafael dos Anjos. „Mér finnst stuðlarnir aðeins ójafnari en ég bjóst við og tel að fólk sé að vanmeta Barberena. Dos Anjos fór nokkuð auðveldlega í gegnum Barberena og menn eru kannski að horfa á að svipuð teikn séu á lofti fyrir þennan bardaga, að Gunni fari nokkuð auðveld- lega í gegnum hann, nái honum í gólfið og því um líkt. Mér finnst hann þó vera hættulegri á papp- írum en margir segja því hann er svo villtur og galinn. Honum er skítsama þó einhver sé að reyna ná honum niður, þá reynir hann bara að standa aftur upp og er að sama skapi alveg sama þó að hann fái á sig nokkur högg. Hann heldur bara áfram, það býr smá tortímandi í honum. Það er alltaf erfitt að eiga við þannig gæja, sér í lagi ef bar- daginn dregst á langinn.“ Sannfærandi sigur geri mikið Framan af á sínum UFC-ferli átti Gunnar reglulega sæti á topp 15 lista veltivigtardeildarinnar. Þar hefur hann hins vegar ekki verið til lengri tíma núna. Hvað myndi sigur gegn Barbe- rena gera fyrir hann? Sér í lagi sannfærandi sigur? „Sigur gæti komið honum í grenndina við topp 15 sætin, þá erum við að tala um að hann sé kominn á smá skrið með tvo sigra í röð þar sem sá seinni væri á móti Barberena sem hafði verið á þriggja sigra skriði áður en hann tapaði á móti Dos Anjos, sem hefur lengi vel verið ofarlega í UFC, sér í lagi í létti- vigtardeildinni. Ég hugsa að sann- færandi sigur í þessum bardaga geti fært Gunnari andstæðing sem situr í einu af þessum topp 15 sætum í næsta bardaga hans.“ Hver nig spáirðu að Gunnar i farnist á laugardaginn? „Ég held að þetta verði drullu- erfiður bardagi fyrir Gunnar sem mun á endanum hafa betur eftir dómaraákvörðun. Gunnar getur unnið allar lotur bardagans en kemur út úr búrinu með einhverjar skrámur og mar eftir þetta því það er eiginlega enginn sem fer í gegn- um Barberena án þess að fá nokkra marbletti.“ n Gunnar þarf að vera tilbúinn í 15 mjög erfiðar mínútur. Pétur Marinó Jónsson, ritstjóri MMAFrétta og MMA-sérfræð- ingur 14 ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 16. MARS 2023 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.