Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Blaðsíða 21
Jón Bjarnason, Akranesi, Guðjón Scheving, Vest-
ttiannaeyjum, Hjörtur Kristjánsson, Patreksfirði.
Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun:
1- Landsfundur Sjálfstæðisflokksins lýsir ánægju
sinni yfir stofnun málfundafélaga Sjálfstæðisverka-
^anna og þakkar þeim verkamönnum, sem í þessu
hafa haft forystu.
Landsfundurinn telur nauðsynlegt, að unnið verði
sem víðast að stofnun slíkra félaga, að samband
beirra í milli verði stofnað og erindreki ráðinn til
bess að vinna í þágu þeirra.
Felur fundurinn miðstjórn að veita félögunum í
Þessu alla þá aðstoð, sem hún má.
_2. Landsfundur Sjálfstæðismanna lýsir fylgi sínu
Vlð stefnu þá í verklýðsmálum, sem fram kemur í
frumvarpi Bjarna Snæbjörnssonar.
Einkum telur fundurinn brýna nauðsyn á því, að
hinum óeðlilegu tengslum Alþýðusambands íslands
°g Alþýðuflokksins verði slitið.
Fundurinn felur öllum trúnaðarmönnum flokksins
að fylgja þessum málum eftir og linna ekki baráttu í
Þeim, fyrr en Sjálfstæðisverkamenn hafa náð fullu
Jafnrétti við aðra innan verklýðssamtakanna.
5. Iðnaðarmálanefnd.
Kosin í nefndina: Helgi Hermann Eiríksson, skóla-
stjóri, frú Gunnhildur Ryel, Akureyri, frú Kristín
Sigurðardóttir, Rvík, frú Sigríður Runólfsdóttir, ísa-
firði, Bjarni Snæbjörnsson, alþm., Magnús Magnús-
son, Vestmannaeyjum, Ragnar Thorarensen, Flateyri,
Sigurður Halldórsson, trésmiður, Rvík, Björn Berg-
19