Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Side 22
mann, Stóru-Giljá, A.-Hún., Þorgeir Jósefsson, Akra-
nesi, Ole Hertervig, Siglufirði.
Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktun:
Landsfundur Sjálfstæðismanna 1940 lýsir yfir því,
að hann telur iðju- og iðnaðarstarfsemi í landinu,
byggða á heilbrigðum grundvelli, nauðsynlegan þátt
í atvinnulífi þjóðarinnar, og heitir slíkri starfsemi
fylgi sínu og stuðningi, meðal annars með því að
vinna að því eftir föngum:
1. Að iðja og iðnaður eigi kost á lánsfé til starf-
semi sinnar í réttu hlutfalli við aðra atvinnuvegi
þjóðarninar.
2. Að útlendri iðnaðarframleiðslu verði ekki íviln-
að í tollaálögum gagnvart þeirri íslenzku, né veitt að-
staða til ósanngjarnrar samkeppni (Dumping).
3. Að sett verði löggjöf um iðnskóla, er tryggi
þeim svipaða aðstöðu og héraðs- og gagnfræðaskól-
um.
4. Að ekki verði dregið úr þeim kröfum um sér-
kunnáttu iðnaðarmanna, sem nú gilda, svo að stefnt
verði áfram að því, að fá sem bezta iðnaðarvinnu
og iðnaðarframleiðslu (Kvalitetsvinnu).
5. Að dregið verði úr þeim hömlum, sem nú eru
á því, að fá áhöld og efni til iðju og iðnaðarstarfa,
og að ekki komi til framkvæmda gagnvart iðnaðinum
reglugerð um skömmtunarvörur, þar sem hér er um
tiltölulega fá fyrirtæki að ræða og þar af leiðandi
mjög lítið sem sparast, en skömmtunin veldur hins
vegar truflunum í rekstri þessara fyrirtækja.
6. Að hlynt verði að því, að heimilisiðnaður eflist
sem mest og fái sem bezta aðstöðu.
20
J