Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.12.1940, Qupperneq 24
sér fyrir því, að ríkið styðji öfluglega sem fjölþætt-
astan fiskiðnað í landinu.
4. Fundurinni lætur í ljós ánægju sína yfir því, að
síðasta Alþingi samþykkti frumvarp ólafs Thors um
að heimila stækkun á Síldarverksmiðjum ríkisins á
Raufarhöfn og Siglufirði.
Skorar fundurinn á ríkisstjórn og aðra hlutaðeig-
endur að gera sitt ítrasta til þess að þessi viðbót við
verksmiðjurnar verði komin upp fyrir næstu síldar-
vertíð, þar sem hér er um stórkostlegt hagsmunamál
síldarútvegsins og allrar þjóðarinnar að ræða.
5. Fundurinn telur það höfuðnauðsyn á yfirstand-
andi tíma, að framleiðsla útflutningsverðmæta í land-
inu sé efld sem mest og skorar því á þingmenn flokks-
ins og fulltrúa í ríkisstjórn að beita sér fyrir, að á
yfirstandandi ári verði leyfður innflutningur á góð-
um og hentugum framtíðar-fiskiskipum.
7. Viðskiptamálanefnd:
Kosin í nefndina: Árni Jónsson frá Múla, frú Guð-
rún Jónasson, Rvík, frú Jakobína Mathiesen, Hafnarf.,
Guðbjörg Bjarnadóttir, frk., Rvík, Axel Kristjánsson,
Akureyri, Björn Ólafsson, Rvík, Guðmundur Guð-
jónsson, Rvík, Hallgrímur Benediktsson, Rvík, Mar-
teinn Þorsteinsson, Fáskrúðsfirði, Sigurður Ágústs-
son, Stykkishólmi, Sveinn M. Sveinsson, Rvík, Ste-
fán A. Pálsson, Rvík, Ingólfur Jónsson, Hellum,
Rang., Kristinn Benediktsson, Hólmavík, Eyjólfur
Jóhannsson, Rvík.
Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktanir:
Aðaltitlaga:
Með því að stefna flokksins er byggð á því, að
22